Allt um íþróttir - 01.02.1952, Page 18
5 og 10 km. hlaup hæfa honum
bezt í framtíðinni.
Rafn Sigurðsson kemur svo
næstur. Hann er mjög fjölhæfur
hlaupari, eins og áður getur, en
þarf að „stöðva sig af“, taka ein-
hverja ákveðna vegalengd fyrir.
Þá getur hann ábyggilega komizt
mjög langt. — Tími Harðar er frá
K.R.-mótinu, en þá var stormátt
og árangurinn því einhverju betri
en tíminn gefur til kynna. Torfi
er ef til vill framtíðarmaður á 1500
og 3000 m., en eins og áður er sagt,
þarf hann að æfa vel til þess. En
hann hefur bæði kjark og líkams-
þrek til að bera, það sýndi hann
glögglega á Í.R.-mótinu s.l. vor.
— Stefán Guðmundsson er ungur
Skagfirðingur, sem tók ágætum
framförum á sumrinu.
5000 metra hlaup:
Iiristján Jóharmsson, Umf. SkíSi. 15:49.8
Stefán Gunnarsson, Á.........16:16.6
Victor Miinch, Á. . .........16:51.2
Bergur Hallgrimsson, Skri'iSur . 17:08.6
Eirikur Þorgeirsson, Umf. Hrun. 17:08.8
Magnús Helgason, Týr.........17:25.6
Kristinn Bergsson, Þór, Ak. . . . 17:59.6
Loksins komst annar íslending-
ur undir 16 mín. Kristján á heiður
skilið fyrir. Næsta takmark hans
á að vera að komast undir 15 mín.
Stefán getur líka betur, og við
skulum vona, að næsta sumar færi
þessa garpa enn ofar á afrekalista
íþróttanna. Victor Miinch keppti
sjaldan á síðasta sumri, aðeins
þrisvar í þessari grein; 16:31.2
náði hann í Osló. Þeir menn, sem
næstir koma, eru allir ungir að ár-
um og efnilegir langhlauparar. —
Á Eirík Þorgeirsson vildi ég minn-
ast nokkrum orðum. Hann er
sterkur, en ekki að sama skapi
nógu mjúkur. Með góðri æfingu
gæti hann þó komizt alllangt, ef til
vill ekki síður á 10 km. — Afrek
Kristins er Akureyrarmet.
10.000 metra hlaup:
Stefán Gunnarsson, Á......... 55:05.6
Kristján Jóhannsson, Umf. SkíSi. 55:18.4
Victor Munch, Á.............. 54:55.2
Loksins höfum við aftur fengið
menn, sem nenna að hlaupa 10 km.
svo mynd sé á. Árangur þeirra
Stefáns og Kristjáns eru frá meist-
aramótinu og árangur þess fyrr-
nefnda met. Enginn efi er á, að
allir þessir þrír menn geta betur,
og vonandi eiga þeir eftir að ná
betri árangri og bæta þar með það
gat, sem 10 km. hafa verið íslenzku
landsliði.
Framh. í ncesta blaSi.
Leiðréttingar.
Talsvert af villum slæddist inn i
skákina milli Rétis og Alekhines
í jólaheftinu, og eru lesendur vin-
samlega beðnir velviiðrngar. Þriðji
leikur svarts féll alveg niður, en
átti að vera ... d7—d5. 14. ...
Bc8—g4; 22. Hal—cl . . .; 28. ...
Rd5—c3; 30. ... Rxe2 sk. — í
aths. eftir 31. Kgl—h2 á að vera:
32. f2xH. Línan, sem fallið hefur
niður, á að vera: . .. vinna ridd-
arann á b7. 1 aths. eftir 32. Hc4?
á að vera ... ekki hægt vegna 33.
RxR! eða ... BxR. 34. leikur
hv. Hc4—c2 og hvítur á ekki
margra kosta völ.
20
IÞRÓTTIR