Allt um íþróttir - 01.02.1952, Side 19
Heimsmeistarar í skák VII:
DR. MACHGIELIS EUWE
1935—1937.
Eftir því sem dregur að Ólym-
píuleikunum verða deilurnar um
skýrgreininguna á áhugamannin-
um æ háværari. Af þessum deilum
og kröfunum um þátttökurétt til
handa atvinnumönnum í þessum
íþróttahátíðum, eiga leikir ekki
erfitt með að gera sér í hugarlund,
að iðkendur líkamlegra íþrótta
skiptast í 2 andstæða flokka.
Hin eðla íþrótt, skáklistin, þekk-
ir ekki slíka skiptingu. í skák-
keppnum er engum legið það á
hálsi, að hann hafi sitt lífsviður-
væri af skákiðkunum sínum. Aftur
á móti fer ekki hjá því, að nokkr-
um ljóma sé varpað á árangur
þeirra, sem þrátt fyrir annir ann-
ara skyldustarfa komast í fremstu
röð.
Dr. Max Euwe er fæddur í bæn-
um Watergraafsmeer, sem nú er
eitt af úthverfum Amsterdam í
Hollandi, þ. 20. nóv. 1901. For-
eldrar hans voru vel efnuð og var
hann fljótlega settur til mennta.
Strax í bemsku tók að bera á ein-
stökum skákgáfum hans og 10 ára
tók hann þátt í jólaskákmóti (4.
flokki) og vann hverja skák. —
Framfarir hans voru stöðugar og
jafnar, hann kom aldrei fram á
sjónarsviðið eins og hvirfilvindur
né ávann sér frægð á svipstundu,
eins og flestir fyrirrennarar hans.
IÞRÓTTIR
Hann varð efstur í 2. fl. 1915 og
sótti jafnt og þétt á og varð efst-
ur í 1. fl. 1919. Sama ár varð hann
2.—3. á hollenzka meistaramótinu
og síðar sama ár fór hann til
fyrsta alþjóðaskákmóts síns, er
hann varð 4. í Hastings.
Samtímis hafði hann lokið
• menntaskólanámi og hafið há-
skólanám í stærðfræði 1919. Engu
að síður gaf hann sér alltaf við
og við tíma til að taka þátt í
nokkrum mótum og auka reynslu
sína og þekkingu, með einvígum
við helztu skákmeistarana. Skák-
meistari Hollands varð hann 1920
og hefur haldið þeim titli til þessa
dags og sama ár markar innreiö
hans í fremstu röð skákmeistar-
anna. Næstu árin gat hann þó ekki
leyft sér að sinna skákinni nema í
leyfum, en eftir að hann hafði tek-
ið doktorsgráðu í fræðigrein sinni
1926, varð þátttaka hans í meiri
háttar mótum æ tíðari.
Um áramótin 1926—7 tefldi
hann einvígi við Alekhine, sem
nokkrum mánuðum síðar hreppti
heimsmeistaratitilinn af Capa-
blanca. Eftir harða baráttu sigr-
aði Alekhine með 1 vinning yfir
( + 3, -=- 2, =5) og var Euwe eftir
það viðurkenndur stórmeistari. í
jólamótinu í Hastings 1930 varð
hann efstur, fyrir ofan Capablanca,
21