Allt um íþróttir - 01.02.1952, Blaðsíða 20
sem nokkrum mánuðum síðar sigr-
aði hann í einvígi (+2, -^-0, =8).
1932 gerði hann jafntefli við
Flohr í einvígi ( + 3, -=-3, =10) og
skipaði ásamt honum 2. sætið á
eftir Alekhine í skákmóti í Bern.
Það endurtók sig í Ziirich 2 árum
síðar. Um það leyti tók að verða
vart afturfarar hjá Alekhine, og
skoraði Euwe á hann til einvígis.
Eftir afsvör þau, sem Alekhine
hafði gefið Capablanca og einvígi
hans tvö við Bogoljubov, var al-
mennt talið, að Alekhine hefði tek-
ið áskorun Euwe í þeirri trú, að
þar fengi hann auðveldan sigur, og
enginn vafi þykir leika á því, að
Alekhine hafi vanmetið andstæð-
ing sinn, og ekki lagt í neinn und-
irbúning svo neinu næmi fyrir ein-
vígið. En Euvve tók þátt í hörðu
skákmóti í Leningrad (6. af 12)
og jólamótinu í Hastings, þar sem
hann varð e stur, fyrir ofan Capa-
blanca og Botvinnik.
Einvígið var tvísýnt og hart,
tvisvar náoi Alekhine nokkru for-
skoti, en með því að vinna 20., 21.,
25. og 26. skákirnar náði Euwe 2
vinninga forskoti og sigraði með
15y2—14i/2 ( + 9, h-8, =13). Alek-
hine hafði sett sem skilyrði fyrir
einvígið, að hann fengi forgangs-
rétt til einvígis um titilinn, missti
hann hann, og ekki var einvíginu
fyrr lokið en hann skoraði á arf-
taka sinn.
Næsta ár var Euwe athafnasam-
ur í skákheiminum, hann lagði allt
kapp á að treysta aðstöðu sína í
hásætinu, vegna einvígisins árið
eftir. í hinu mikla og sterka móti
í Nottingham varð hann 3.—5.
ásamt Fine og Reshevsky með x/2
vinning minna en Botvinnik og
Capablanca, en y2 vinning meir en
Alekhine, og það var aðeins vegna
óheyrilegra afleikja, sem verið
hafa Achillesarhæll hans alla tíð,
að hann varð af efsta sætinu.
Gagnstætt öllum spádómum náði
Alekhine titlinum á ný í einvígi
þeirra 1937 með miklum yfirburð-
um ( + 10, +4, =11).
Síðustu vikurnar fyrir hið fræga
mót A.V.R.O., sem haldið var í
Hollandi 1938, varð Euwe að halda
áfram kennslu fram á síðustu
stundu, og hafði því ekki nægan
tíma til undirbúnings og byrjaði
mjög illa. í síðari umferðinnoi náði
hann sér á strik með því að sigra
Fine, Botvinnik og Capablanca, og
gera jafntefli við hina fjóra, og
náði með því 4. sæti ásamt Reshev-
sky og Alekhine. En 1940 urðu
vonir hans um nýtt einvígi um
heimsmeistaratitilinn að engu, er
hann beið lægra hlut í einvígi fyr-
ir Keres ( + 5, -7-6, =3).
Styrjaldarárin tefldi Euwe að-
eins í heimalandi sínu, aðalvið-
burðurinn þau árin var sigur yfir
Bogoljubov í einvígi ( + 5, -=-2,
=3).
Er Alekhine féll frá, kom til tals,
að Euwe yrði sjálfkjörinn heims-
meistari, þar eð hann hefði haldið
titlinum næst á undan síðasta
„valdatímabil“ Alekhines. Þeirri
ráðstöfun mótmælti Euwe og beitti
sér af alefli fyrir því fyrirkomu-
lagi, sem viðhaft var 1948.
Vegna væntanlegrar baráttu um
22
IÞRÓTTIR