Allt um íþróttir - 01.02.1952, Blaðsíða 24
Zatopek, Thldén, Reiff og Slijkhuis í 5000 m. á Ólympíuleikunum 19j8.
fimmti Finninn Taipale og sjötti
Landquist frá Svíþjóð. Svíarnir
eru fjölmennir á leikjunum, enda
glymur hið þekkta „Heja Sverige“
um allan völlinn. Nú bíðum við
eftir hinum raunverulegu úrslitum
í sumar og gaman verður að sjá,
hverjir þessara sex komast í úr-
slitin og hver sigrar.
Þó að keppnin í 1500 m. hafi ver-
ið skemmtileg, verður 5000 m.
hlaupið ennþá tvísýnna. Flestum
íþróttaunnendum er ennþá í fersku
minni keppnin á þessari vegalengd
á síðustu leikjum í London. Skyldi
keppnin í ár verða endurtekning á
þeirri keppni? Afrekaskráin 1951
bendir til þess, því að í fyrsta sæti
er einmitt Ólympíumeistarinn Gas-
ton Reiff (14:10.8), en í öðru sæti
Emile Zatopek (14:11.6), í þriðja
sæti er svo Þjóðverjinn Herbert
Schade (14:15.4), en hann er í
mikilli framför og vís til alls. Nú
er því miður enginn tími til að
ræða frekar um þetta, því að tólf
beztu 5000 m. hlauparar heimsins
eru lagðir af stað til baráttu um
hið eftirsótta hnoss. Fyrri hluta
hlaupsins hefur Reiff forystuna,
en þegar hlaupið er um það bil
hálfnað, tekur Zatopek kipp og
geysist fram úr, hann heldur for-
ystunni og er um það bil 20—30 m.
á undan Schade, Reiff, Popov og
Koskela. Þannig helzt bilið þar til
26
ÍÞRÓTTIR