Allt um íþróttir - 01.02.1952, Qupperneq 25
ca. 2 hringir eru eítir, en þá slít-
ur Schade Reiff af sér og dregur
óðum á Zatopek, en Koskela er
ekki heldur af baki dottinn, því
að hann er kominn í þriðja sæti
og nálgast þeir nú báðir Tékkann.
Spenningurinn er gífurlegur, sér-
staklega hjá Finnunum, sem ein-
blína á sinn Koskela, í von um
uppreisn. Nú er hringt til merkis
um að einn hringur sé eftir, Zato-
pek er ennþá fyrstur, en Schade
og Koskela alveg á hælum hans,
þannig hlaupa kappamir þar til
aðeins 100 m. eru eftir, en þá ger-
ir Schade síðustu tilraunina, sem
reynist árangursláus, því að Zato-
pek bætir bara ennþá við sig og
geysist í mark á nýju Ólympíu-
meti, 14:06.6, annar Schade á 14:-
08.0, þriðji Koskela, fjórði Popov,
fimmti Reiff og sjötti Albertsson.
Síðustu árin hefur Zatopek bor-
ið höfuð og herðar yfir alla 10 km.
hlaupara heimsins. Hann varð
einnig Ólympíumeistari 1952, þó
að Schade fylgdi honum lengi vel.
Veðrið var skínandi, þegar keppn-
in fór fram og setti „járnbrautin“
glæsilegt ólympiskt met, 29:20.2
mín. Schade setti þýzkt met, 29:-
38.2. Þriðji varð Stokken, fjórði
Mimoum, fimmti Albertsson og
sjötti Koskela. Þetta verður ekki
lengra að sinni, en næst snúum
við okkur að stökkunum.
Sundmót Ægis
fór fram í Sundhöllinni 4. febr. s.l.
Mótið var aUskemmtilegt og náð-
ist góður árangur í mörgum grein-
um. — Helztu úrslit:
300 m. skriðs.: Ari Guðmunds-
son, Ægi 3:48.8. Ari vann gripinn,
sem um var keppt, í fimmta skipti
í röð og til fullrar eignar. Þetta er
næstbezti tími, sem Ari hefir náð
í 300 m. skriðsundi.
200 m. baksund: Hörður Jóhann-
esson, Æ. 2:48.3.
200 m. bringa: Sig. Jónsson, KR
2:56.7 og Kristján Þórisson, Umf.
Reykh. 2:57.7. Keppnin milli Sig-
urðar og Kristjáns var mjög hörð
og skemmtileg og er Kristján í
stöðugri framför. Sigurður er allt-
af jafnmikill keppnismaður.
100 m. skrið drengja: Gylfi Guð-
mundsson, Í.R. 1:07.2. Gylfi er
mjög glæsilegt efni; ef hann held-
ur áfram og lagfærir stílinn, mega
Ari og Pétur vara sig.
100 m. bringa kv.: Sesselja Frið-
riksdóttir, Á. 1:35.9.
50 m. bringa dr.: Sigurður Eyj-
ólfsson, KFK 38.6 sek.
50 m. bringa telpna: Guðný
Árnadóttir, Keflavík 44.7.
50 m. bak: Örn Ingólfsson, ÍR
38.8 sek.
4x100 m. fjórsund: Ægir.
Að lokum kepptu Menntaskólinn
og Gagnfræðaskóli Austurbæjar í
20 x 50 m. bringuboðsundi og sigr-
aði Gagnfræðaskólinn.
IÞRÓTTIR
27