Allt um íþróttir - 01.02.1952, Side 26
Getraunirnar fara að hefjast
Ráðgert er, að á næstunni taki
hin íslenzka getraunastarfsemi til
starfa. Þetta rit hefur allt frá upp-
hafi hamrað á því, að þessari til-
vonandi lyftistöng íþróttamála
okkar yrði komið á og birti þegar
fyrir ári síðan stuttan þátt um
fyrirkomulag starfseminnar, og
vísast þeim, sem enn eiga jólaheft-
ið 1950, á hann.
Þar sem nú rekur að því, að
starfseminni verði komið í kring,
verður hér lítillega minnzt á þá
hlið starfseminnar, sem að við-
skiptavininum snýr.
Síðan Alþingi setti lög um einka-
leyfi til handa ríkinu (íþrótta-
nefnd) til að reka veðmálastarf-
semi í sambandi við íþróttakeppn-
ri, hafa margir fengið þá flugu í
höfuðið, að þetta væri svipað veð-
málum á skeiðvöllum eða veðmál-
um sjómannadagsráðs í sambandi
við kappróðurinn. Því fer mjög
fjarri, að svo sé.
Til að skýra ganginn í starf-
seminni, skulum við fylgja einum
viðskiptavini, sem hyggst reyna,
hve getspakur hann sé. Hann veit,
að Tóbaksbúðin á Breiðstræti 10
hefur tekið að sér umboð fyrir
Getraunirnar, og þangað leggur
hann leið sína. Hann biður þar um
seðla, sem fyrirtækið hefur dreift
út til allra umboðsmanna sinna.
Eitthvert kvöldið í ró og næði tek-
ur hann sig til og hyggst spreyta
sig á þessum furðuleppum, sem
honum finnst vera. Hann kemst að
raun um, að seðlarnir eru þrískipt-
ir og allir hlutarnir eru svo til
eins. Hverjum hluta er skipt í
tvennt, fremst eru 24 nöfn í 12 lín-
um, en aftari hlutinn er eins og
rúðustrikuð reikningsbók. Hefði
þetta verið í byrjun janúar síðastl.
hefði einn hluti seðilsins getað lit-
ið út eins og í síðasta jólahéfti.
Eins og myndin ber með sér,
eru á seðlinum tvenns konar dálk-
ar, 8 aðaldálkar og 24 úrslitadálk-
ar, eða 3 úrslitadálkar í hverjum
aðaldálki. Tölurnar fyrir ofan aðal-
dálkana tákna ekkert sérstakt, eru
aðeins til að gera mörkin milli að-
aldálkanna skýrari. En merkin fyr-
ir ofan úrslitadálkana eru nokkuð
sérstæð.' þar standa 1, X og 2 í
hverjum aðaldálki. Vinur okkar
kemst fljótlega að raun um, að
þetta eru einmitt merkin, sem allt
veltur á, því að í sambandi við
hvern leik þarf að segja fyrir um
einhvern af þremur úrslitamögu-
leikum: vinning, tap eða jafntefli.
Það skal því tekið fram, að úrslita-
tölur leikjanna skipta engu máli.
Vegna þess að föst regla er á röð
nafnanna fremst á seðlinum, og að
það lið, sem fyrr er nefnt, leikur
á heimavelli, en það síðamefnda
þá að sjálfsögðu að heiman, er
hægt að komast af með þetta ein-
falda merkjakerfi, í stað þess að
tilgreina með fullum nöfnum sig-
urvegara eða jafntefli.
Nú rámar vininn eitthvað í, að
í blaðinu 1 morgun hafði hann rek-
28
IÞRÓTTIR