Allt um íþróttir - 01.02.1952, Blaðsíða 27
izt á Getraunahjálpina, sem ætluð
er til þess að aðstoða lesendur við
að fylla út seðlana, vega líkurnar
fyrir tapi, sigri eða jafntefli, birtir
nýjustu töflur með stöðu liðanna
og gefur margvísleg ráð í sam-
bandi við seðlana. Hann flettir
blaðinu og byrjar að finna nöfn
liðanna í töflunum og síðan byrjar
hann. Telji hann nú heimavinning
í efsta leiknum líklegan, merkir
hann 1 í fyrsta úrslitadálk, sem
merktur er 1. Nú gizkar hann á,
að jafntefli verði hjá Burnley og
Newcastle, og þá setur hann X í
miðúrslitadálkinn, sem merktur er
með X, og í þriðja leiknum telur
hann sennilegt eða jafnvel öruggt,
að West Bromwich sigri, og þá rit-
ar hann 2 í þriðja úrslitadálkinn,
sem merktur er á sama hátt með 2.
Þannig heldur hann áfram með
alla 12 leikina og fyllir síðan út
2., 3., 4. o. s. frv., ef hann ætlar að
kaupa fleiri en 1 dálk. Síðan fyll-
ir hann út báða hina hlutta seðils-
ins nákvæmlega eins, og er það
mjög þýðingarmikið.
Daginn eftir á hann leið fram
hjá umboðsmanninum og leggur
inn seðilinn eða seðlana. Hann tel-
ur saman dálkana, sem hver um
sig kostar, segjum 25 aura. Hann
stimplar seðilinn, klippir neðsta
hluta seðilsins af og fær viðskipta-
vininum hann, en heldur hinum 2
eftir, og fyrir ákveðinn tíma send-
ir hann þá til aðalskrifstofu fyr-
irtækisins, þar sem farið er yfir
þá, eftir að leikjunum er lokið.
Áður hefur þeim verið skipt, öðr-
um hlutatnum er haldið eftir, en
hinum er komið fyrir í vörzlum
opinbers eftirlitsmanns, sem hefur
eftirlit með fyrirtækinu fyrir hönd
viðskiptavinanna, ef svo má segja.
Hann fer yfir þá seðla, sem vinn-
inga hljóta og ber þá saman við
þann helminginn, sem hann held-
ur, og staðfestir vinningana og
hverjir skuli hljóta þá.
Þegar aðalskrifstofan fer yfir
seðlana, eru teknir frá þeir seðlar,
sem hafa 12, 11 og 10 leiki rétta,
og á milli þeirra er vinningsupp-
hæðinni, sem er helmingurinn af
heildarupphæðinni, sem viðskipta-
vinirnir hafa keypt dálkana fyrir
(brúttótekjum). Þessum helming
er skipt jafnt í þrjá hluta, einum
er skipt meðal þeirra, sem hafa 12
leiki rétta, og er deilt í upphæð-
irnar með dálkafjöldanum, því að
sá, sem hefur 2 dálka með 12 rétt-
um, hlýtur helmingi meira í vinn-
ing en sá, sem hefur 1 réttan. Á
sama hátt er farið með þriðjung-
ana, sem koma á 11 og 10 rétta.
Falli leikur niður, koma vinningar
á 11, 10 og 9 rétta o. s. frv.
í Noregi og Danmörku er há-
mark vinnings 50.000 kr., en í
Englandi hefur vinningsupphæðin
til skamms tíma verið ótakmörk-
uð, en er vinningar upp á 100.000
sterlingspund voru orðnir vikuleg
fyrirbæri fyrir ári síðan, var upp-
hæðin takmörkuð við 75.000 stpd.
Fyrir leikdaginn 19. janúar var
greiddur hjá stærsta fyrirtækinu
75.000 sterlingspunda vinningur,
en 38.000 stpd. voru umfram og
var þeim jafnað á næstu vinning-
ana. Með gamla fyrirkomulaginu
IÞRÓTTIR
29