Allt um íþróttir - 01.02.1952, Síða 28
hefði þarna verið um að ræða vinn-
ing upp á 113.500 stpd. eða í ísl.
kr. 5.278.000 (á réttu gengi).
Það liggur í augum uppi, eftir
þessa lýsingu, að getraunaseðillinn
er nokkurs konar happdrættismiði,
þar sem viðskiptavinurinn velur
sér númer með 12 stöfum, en þarf
ekki að velja nema milli 3 talna í
hvert sæti, en með þeirri breyt-
ingu frá þeim tölum, sem við al-
mennt þekkjum, að rangur fyrsti
stafur er ekkert meiri villa en
rangur síðasti. Að velja milli 3ja
möguleika í 12 stöðum finnst sum-
um ef til vill ekki erfitt, en sé þetta
athugað nánar, þá þarf að fylla út
312 dálka til að loka öllum mögu-
leikum, en það er ekki nein smá-
tala, 813 = 531.441 dálkar.
En hverjum viðskiptavin er að-
eins leyft að fylla út 48 dálka í
hvert sinn, og til þess að auka
möguleikana og minnka skrif-
finnskuna, er til hið svonefnda
margföldunarkerfi, sem er fólgið í
því að fylla út jafngildi svo og svo
margra dálka í aðeins 1 dálki. Það
er gert með svonefndum hálf- og
heillokunum (halv- og helgarder-
ing). Hálflokun er það kallað, að
fylla út 2 möguleika í sama leikn-
um í sama dálki og jafngildir 2
dálkum, séu 2 leikir hálflokaðir,
jafngildir það fjórum dálkum, 3
hálflokaðir leikir í sama dálki
jafngilda 8 dálkum o. s. frv.
Heillokun er að fylla út alla þrjá
möguleikana og jafngildir það 3
dálkum, 2 heillokaðir jafngilda 9
dálkum, 3 heillokaðir 27 dálkum,
sem þá jafnframt er hámarkið.
Ein heillokun og 4 hálflokanir
jafngilda þá 48 dálkum. Annað
kerfi eru hinar svonefndu permuta-
sjónir, og þær grundvallast á lík-
indareikningi og taka 8—48 dálka.
Svo getreynum við!
Skautamót Islands.
Sett voru f jögur ný ísl. met.
Skautamót íslands fór fram á
íþróttavellinum í Reykjavík 11. og
12. febr. s.l. og var keppnin hörð
og skemmtileg. Þetta er í fyrsta
skipti sem skautakeppni er háð á
íþróttavellinum og er hér því um
nýbreytni að ræða. Alls voru fjór-
tán keppendur skráðir til leiks, þar
af tólf karlar og tvær konur frá
4 félögum: K.R., S.A., S.R. og
Þrótti, Reykjavík, og var meðal
þeirra Kristján Árnason, skauta-
meistari íslands 1951. Keppnin um
titilinn var miklu jafnari nú en í
fyrra, en Kristjáni tókst naum-
lega að halda titlinum. Hann sigr-
aði í 1500, 3000 og 5000 m. bg setti
ný met í 3000 og 5000 m. með
5:56.3 og 10:04.0 mín. Kristján
varð fjórði í 500 m. á 53.2 sek., en
þar sigraði Akureyringurinn Hjalti
Þorsteinsson á 52.0 sek. Edda Ind-
riðadóttir frá Akureyri vann 500
m. á nýju meti, 63.3 sek., og hún
setti einnig nýtt met á 1500 m. á
3:28.8, þó að hún keppti ein og
hefði þess vegna enga samkeppni.
30
IÞRÓTTIR