Allt um íþróttir - 01.02.1952, Qupperneq 29
Úrslit mótsins:
1. Kristján Ámason, KR.
225.317 stig.
2. Þorsteinn Steingrímsson, Þrótti,
231.001 stig.
3. Björn Baldursson, S.A.,
232.507 stig.
4. Hjalti Þorsteinsson, S.A.,
233.487 stig.
5. Þorvaldur Snæbjörnsson, S.A.,
240.947 stig.'
6. Jón R. Einarsson, Þrótti,
245.896 stig.
sjáanleg
Bretland.
Enska bikarkeppnin
hefur í ár boðið upp á
fleiri óvænt og ófyrir-
úrslit en verið hefur í
lengri tíma. í 3. umf. féll úr helm-
ingur 1. deildar-liðanna, og sáu
III. deildar-lið fyrir mörgum þeirra
— en óvæntastur var sigur Hull
City yfir Manchester United í
baðmullarborginni.
Einn er sá þáttur þessarar
keppni, sem sett hefur mestan
svip á hana, e. t. v. fyrir utan sjálf-
an úrslitaleikinn, en það eru leik-
irnir, þar sem Davíð fellir Golíat.
Lengst af hafa lið utan lígunnar
gegnt hlutverki Davíðs, og þar með
skyggt á góða frammistöðu III.
deildar-liða, en með stækkun III.
deildar hafa mörg félög fengið inn-
göngu í líguna og III. deildin kom-
ið meir við sögu í hlutverki Davíðs.
í síðustu umferðunum hafa 4 lið
úr „lávarðadeildunum" orðið að
lúta í lægra haldi fyrir félögum,
sem aðeins hafa haft það sér til
ágætis að lafa í III. deild. Leyton
Orient sá fyrir 2 gömlum og góð-
um nöfnum, Everton og Birming-
ham City, og báðum að heiman,
en þykir ekki hafa mikla mögu-
leika í 5. umferðinni gegn Arsenal.
En Arsenal hefur áður komizt í
kynni við „rönguna" á slíkum við-
ureignum og á það ef til vill líka
eftir á næstunni. Swindon Town
tók það 4 leiki að koma Cardiff
og Stoke City út úr keppninni, og
báðum með 1:0 eftir jafntefli, 1:1.
Sagan endurtekur sig stundum, og
ekki er ósennilegt, að Luton falli
næst í 2. tilraun eftir óútkljáðan
leik.
Meðan helztu keppinautarnir
berjast um áframhaldandi þátt-
töku í bikarkeppninni, hefur Man-
chester United skotizt upp í efsta
sætið og er á góðri leið með að
hljóta fyrsta meistaratitilinn eftir
stríðið, en það hefur hafnað í 2.
sæti í 4 af síðustu 5 leiktímabil-
unum. Það er nú talið hafa yfir
að ráða efnilegri ungum leikmönn-
um en nokkurt annað lið í I. deild,
að undanteknu Portsmouth, og á
þeim ekki hvað minnstan þátt í
árangri þessara félaga í vetur.
Þau veigra sér ekki við að gefa
IÞRÓTTIR
31