Allt um íþróttir - 01.02.1952, Blaðsíða 30
16—17 ára unglingum tækifæri til
að spreyta sig gegn frægustu
landsliðsmönnum annarra liða.
Portsmouth hefur í vetur teflt
fram 6 eða 7 slíkum, sem gefa
þeim föstu ekkert eftir.
Staðan er ■ nú þessi:
Manch.Utd. 31 17 8 6 66-41 42
Arsenal 31 16 8 7 62-45 40
Portsmouth 31 17 6 8 54-42 40
Newcastle 30 14 7 9 77-50 35
Preston 31 13 810 57-42 34
Tottenham 31 14 611 54-47 34
Aston Villa 31 14 611 55-51 34
Bolton 31 13 810 48-49 34
Wolves 31 1111 8 62-47 33
Burnley 31 12 910 48-42 33
Manch. City 31 12 9 10 49-44 33
Blackpool 31 13 711 48-48 33
Charlton 31 13 711 55-56 33
Liverpool 31 914 8 42-42 32
Derby C. 31 11 6 14 50-56 28
Sunderland 30 10 713 49-50 27
W. B. A. 30 810 12 53-62 26
Chelsea 30 10 5 15 40-51 25
Stoke City 31 9 517 36-67 23
Middlebro 29 8 417 41-71 20
Fulham 31 6 718 45-60 19
Huddersf. 31 6 619 36-61 18
í 2. deild hefur verið breytt út
af venjunni, sem hefur verið sú,
að eftir því sem líður á leiktíma-
bilið, dregur æ meir í sundur með
duxum og fuxum, en síðustu vik-
urnar hefur „vígsvæðið" þrengst.
Um það leyti sem síðasta hefti
kom út, var það 17 stig, en nú eru
12 stig aðeins milli efsta liðs og
neðsta. Venjulega eru nokkuð skýr
mörk milli fallhættu og sigur-
möguleika, en nú bregður svo við,
að lið, sem ef til vill mætti segja,
að hefðu möguleika á að komast
upp, eins og miðlungsliðin, eru ekki
langt frá að vera í fallhættu. Nott-
ingham Forest, sem í vor sigraði
í 3. deild syðri, er nú efst með 36
stig eftir 31 leik, en síðan koma
Cardiff City, Sheffield Wednesday
og Leicester City með 35 og Bir-
mingham og Leeds United með 34.
í neðstu sætunum eru Doncaster
Rovers með 27, Bury 26, Coventry
25, Hull City og Queens Park Ran-
gers með 24.
Furðulegastur hefur verið ferill
Blackburn Rovers, sem eftir fyrstu
16 leikina var með 6 stig, en hefur
í næstu 16 fengið 25 stig og aðeins
tapað 2 leikjum. Að auki hefur því
vegnað vel í bikarkeppninni, selgið
út Nottingh. Forest og Hull City.
En umskiptin hafa verið dýru verði
keypt, því að þegar útlitið var sem
verst, voru keyptir 2 innherjar, er
hafa gerbreytt liðinu, Nightingale
frá Huddersfield og Quigley frá
Preston fyrir 20.000 st.pund hvor.
Spánn.
Real Madrid, sem nú
leiðir í spænsku deilda-
keppninni með 29 stig,
einu stigi á undan Barcelona og 2
á undan Atletico Madrid, hefur
stofnað til alþjóðlegs knattspymu-
móts í Madrid síðast í marz með
þátttöku Norrköpings-Kamratema
frá Svíþjóð, Intemazionale frá
Ítalíu, liði frá Uruguay, auk síns
eigin liðs.
32
IÞRÓTTIR