Allt um íþróttir - 01.03.1952, Side 11
bundnum framförum og smáfikr-
ar sig nær fjögurra metra mark-
inu. Vonandi hættir Kolbeinn ekki
fyrr en hann hefur a. m. k. hefur
náð því takmarki.
Bjarni Linnet er í sömu skorð-
um og undanfarin ár.
Jóhannes Sigmundsson er nýr
maður, sem kom öllum á óvart
með getu sinni. Tækni hans er
sögðu mjög fábrotin, en eflaust er
hér um að ræða mjög mikið efni,
og verður gaman að fylgjast með
framförum hans. Kristleifur var
mun lakari í stönginni nú en árið
áður. Bæði er, að stöng sú, er hann
hafði yfir að ráða, var hið mesta
manndrápstæki, og hitt, að ekki fer
vel saman að æfa stangarstökk og
þrístökk. Þá er það drengjameist-
arinn Ásgeir Guðmundsson, úr
Borgarfirði; hann er skemmtilegur
stangarstökkvari og fjölhæfur
íþróttamaður, sem ber víða niður.
Verður gaman að sjá, hvað úr hon-
um verður. Hann er ennþá korn-
ungur. Svo er það ísleifur á Sel-
fossi. Hann æfir jafnan litið, en
er allajafna öruggur með 3.30.
Hvemig væri það annars, ísleifur,
að æfa vel í sumar og sjá þá, hvort
ekki hleypur fjörkippur í framfar-
irnar. — Þá er það Friðrik Hjör-
leifsson. Engum, sem sér Friðrik,
dylst, að þar er á ferðinni ákaf-
lega mikið íþróttamannsefni. S.l.
sumar sannaði hann vel og dyggi-
lega, hvað í honum býr. Hann, sem
er sjómaður að atvinnu, var í landi
2 mánuði yfir hásumarið, og á
þeim tíma stökk hann 3.30 í stöng,
hljóp 100 m. á 11.2 og vann ýmis
önnur íþróttaafrek, sem margur
íþróttamaður með betri aðstæður
til æfinga en Friðrik þættist vel
Torfi Bryngeirsson
sæmdur af. — Hér koma svo síð-
astir úr hlaði félagarnir Bjami
Guðbrandsson og Baldvin Ámason.
Þeir eru ennþá ungir að ámm og
eiga vonandi eftir að fljúga yfir
hærri hæðir áður en langt um líður.
Hástökk:
Skúli Guömundsson, K.R..............1.90
SigurSur FriSfinnsson, F.H..........1.83
Jón Ólafsson, Umf. Stígandi........1.83
Kolbeinn Kristinsson, Umf. Selfoss . 1.80
örn Clausen, I.R....................1.80
Páll Þ. Kristinsson, Völsungar . . . 1.80
Gisli GuSmundsson, Umf. Vaka . . . 1.78
Birgir Helgason, K.R................1.76
47
ÍÞRÖTTIR