Allt um íþróttir - 01.03.1952, Qupperneq 12

Allt um íþróttir - 01.03.1952, Qupperneq 12
Karl Gunnlaugsson, Umf. Hrunam. 1.75 Jóhann R. Benediktsson, Umf. Kefl.1.75 Haukur Clausen, Í.R.................1.75 Jafet SigurÓsson, K.R...............1.75 Skúli var ekki í góðri æfingu s.l. sumar, en dugði þó vel, er á hólm- inn var komið og sigraði sem kunn- ugt er í hástökkinu í landskeppn- inni 1 Osló. Sigurður var líka ekki nærri eins góður og sumarið 1950, enda átti hann nú við meiðsli að stríða fram eftir sumri, auk þess, sem hann keppti nú mun sjaldnar í þessari grein en það ár. Leitun mun vera að eins góðri líkamsbyggingu fyrir hástökk og hjá austfirzka risanum Jóni Ólafs- syni, um hann mætti segja, að hann væri bókstaflega skapaður fyrir íþróttir. Það er langt síðan Jón kom fram á sjónarsviðið og vakti strax miklar vonir, en þótt þær vonir virðist nú að miklu leyti hafa brugðizt, er Jón ávallt harður í horn að taka þegar hann keppir. Kolbeinn Kristinsson iðkar nú hástökkið fremur sem aukagrein, en er samt oftast viss með 1.75— 1.80. Þessum árangri náði hann í Noregi. Þá kemur Örn Clausen, hann keppti aðeins einu sinni í hástökki á sumrinu, og er ekki ólíklegt, að með því að keppa oftar, hefði hann getað stokkið 1.85—1.90. Páll Þ. Kristinsson, sem þykir sérlega efnilegur hástökkvari, tók miklum framförum á sumrinu (1.73 m. 1950); er ekki ólíklegt, að hann eigi eftir að taka miklum framförum. Gísli Guðmundsson er einn sterkur hástökkvari, sem m. a. sigraði Kolbein tvisvar á keppnis- árinu. Birgir Helgason hækkaði sig um 11 cm. á sumrinu og var í stöð- ugri framför allt sumarið. Hann á framtíðina fyrir sér, en er ennþá dálítið óviss í stíl, en á því ætti hann að geta ráðið bót, og þá er ekki gott að segja, hvar hann stanzar. Næst koma svo 4 menn með 1.75, allt ágætir hástökkvarar, sem von- andi eiga eftir að sýna getu sína enn betur síðar. Langstökk: örn Clausen, f.R...................7.12 Torfi Bryngeirsson, K.R............7.06 Kristleifur Magnússon, Týr........6.90 SigurSur FriSfinnsson, F.H.........6.88 Valdimar örnólfsson, Í.R...........6.69 GarSar Arason, F.I.S., Sigluf.....6.67 Karl Ólsen, Umf. NjarSv............6.63 Guttormur Þormar, Umf. Fljótsd. . 6.53 Ólafur Jónsson, XJmf. Leiknir .... 6.51 Gunnlaugur Jónasson, HörSur, Isaf. 6.50 GuSm. Hermannsson, HörSur, Isaf.. 6.50 í raun og veru lögðu þeir Öm og Torfi litla áherzlu á langstökk- ið s.l. sumar. Þó reyndust þeir hin- ir beztu að vanda, er á reyndi, eins og öllum er kunnugt. Árangur þeirra er nú ekki jafn góður og 1950, aðallega er hér þó um aftur- för að ræða hjá Torfa, en hún staf- ar fyrst og fremst af því, hve lítið hann æfði langstökk. Kristleifur Magnússon átti við erfiðleika og vanheilsu að stríða veturinn 1951 og olli það því, að hann komst ekki fyrr en mjög seint í æfingu, eða ekki fyrr en eftir miðjan september. Þessi ár- angur hans er frá fimmtarþraut Vestmannaeyja. Ekkert er líklegra en Kristleifur stökkvi yfir 7 m. nú í sumar. 48 ÍÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.