Allt um íþróttir - 01.03.1952, Page 13
Sigurður Friðfinnsson hefur
sýnt það, að hann er litlu síðri
langstökkvari en hástökkvari, en
spurningin er sú, hvort íslenzka
landsliðið hafi efni á, að hann van-
ræki hástökkið. Árangur Sigurðar
er frá Meistaramótinu, en þar varð
hann sem kunnugt er meistari í
þessari grein. Á meistaramótinu
var um örlítinn meðvind að ræða,
svo að árangur Sigurðar er e. t. v.
lítið eitt hagstæður.
Næstur kemur svo Valdimar
Örnólfsson, sem virðist vera upp-
rennandi langstökkvari og tók
miklum framförum á sumrinu.
Garðar Arason er ungur Sigl-
firðingur og vakti mikla athygli
með hinum ágætu framförum, sem
hann tók á sumrinu. Það er geysi-
mikill kraftur, sem býr í Karli Ól-
sen og einhvern veginn finnst mér
hann aldrei beita honum til fulls.
En hvemig mundi kraftur hans
nýtast í þrístökki? Það væri ekki
svo vitlaust hjá honum að athuga
það. Guttormur Þormar virðist nú
heldur vera tekinn að dala, en á
samt alltaf yfir jafnmikilli hörku
að búa, þegar á reynir. Ólafur
Jónsson, Austfirðingur, býr yfir
miklum stökkvarahæfileikum, sem
til þessa hafa lítt notið sín.
Hér reka þeir svo lestina félag-
arnir Gunnlaugur Jónasson og
Guðmundur Hermannsson. Sá fyrr-
nefndi er líkamsléttur, en mjög
fótasterkur og því ekki ólíklegt,
að langstökkið hæfi honum vel.
Guðmund Hermannsson þekkja all-
ir, og þessi árangur hans sýnir það
og sannar, hve góðum árangri hann
gæti náð i tugþraut, ef; hann keppti
í henni.
Þrístökk:
Kristleifur Magnússon, Týr.......1450
Kári Sólmundarson, Umf. Skallagr. 14.40
Torfi Bryngeirsson, K.R...........14.12
Jóhs. Guðmundsson, Umf. Samh. . 13.48
Vilhjálmur Pálsson, Völsungar . . 13.48
Daníel Halldórsson, l.R...........13.40
HörSur Pálsson, Umf. Tindastóll . 13.32
Hjálmar Torfason, Umf. Ljótur . . 13.28
Helgi Daníelsson, l.R............13.26
Kristján Pétursson, Umf. Keflav. . 13.21
Þrátt fyrir hinn ágæta árangur
Kristleifs, verður þó eflaust að
telja Kára bezta þrístökkvara árs-
ins, því hann sigraði Kristleif í öll
þau þrjú skipti, sem fundum þeirra
bar saman. Það verður gaman að
sjá þessa tvo garpa í sumar vel
æfða leiða saman hesta sína. Þá
er engan veginn víst, að metið
(14.71 m.) eða 15 metrarnir stand-
ist áhlaup þeirra.
Torfi sýndi nú áþreifanlega, að
sama er, hvar hann ber niður, hann
er alstaðar samur og jafn, ef til vill
yrði hann með því að æfa þessa
íþrótt engu síðri þrístökkvari en
lang- eða stangarstökkvari, en
hann hefur þegar nóg á sinni
könnu.
Þessir þrír menn voru algerlega
í sérflokki, svo sem sjá má af af-
rekaskránni. Þeir sem næstir
koma eru flestir nýir menn. Hér
saknar maður ýmissa nafna frá
fyrra ári, svo sem hins eitilharða
Jóns Bryngeirssonar, Odds Svein-
bjömssonar o. fl. Annars er ekki
gott að segja, hvað úr þessum
mönnum á eftir að rætast. Þeir
Jóhannes og Vilhjálmur eru greini-
IÞRÓTTIR
49