Allt um íþróttir - 01.03.1952, Síða 25

Allt um íþróttir - 01.03.1952, Síða 25
l\ú,nar i3i, ’jamaíon: Fréttabréf frá Svíþjóð. Stokkhólmi, 10. marz 1952. Það er nú orðið alllangt síðan ég lét frá mér heyra, og bið ég afsökunar á slóðaskapnum. Hér hefur hver stórviðburðurinn rekið annan á íþróttasviðinu, og hafið þið áreiðanlega frétt um þá þarna heima, löngu áður en þessi grein kemst fyrir augu ykkar. Ég vel því það ráðið að spjalla meira almennt um íþróttirnar hérna í Svíþjóð. Svíar eru enn allslegnir eftir ófarimar í Osló. Þeir höfðu að vísu ekki gert ráð fyrir jafnmikilli sig- urför og í St. Moritz, en að svona herfilega mundi ganga, hafði eng- um dottið í hug. Mikið hefur ver- ið um ósigrana rætt margir brand- arar komið fram um íþróttamenn- ina. Sá seinasti, sem ég heyrði, var, að eiginlega væri það ekki þeirra sök, heldur Óskars konungs annars, að Svíar unnu ekki Ólym- píuleikana, eins og þeim „bar“. Því að ef hann hefði ekki látið Noreg ganga sér úr greipum, er sam- bandsslitin urðu, hefðu Svíar unn- ið. Þá hefur og verið rætt um, hvort íþróttimar í Svíþjóð séu á fallanda fæti. Margt finnst mér nú raunar benda í þá átt. Til dæmis má nefna, að á íþróttaæfingum stúdenta í Stokkhólmi mæta venju- lega 20—30 manns, en stúdentar eru nálega 1000 hér í borg. Þá má og nefna, að ég fór til Gávle með einum bekkjarbróður mínum, sem þar býr, til að fara á skíði eina helgi. Veðrið var indælt allan tím- ann og margir vom á skíðum. En það, sem vakti furðu mína, var, að það var næstum allt miðaltira fólk og smáböm. Unga fólkið hafði auðsjáanlega önnur áhugamáu. Hins vegar gera nú íþróttafrömuð- ir og blöðin allt, sem hægt er, til að glæða áhugann á ný, en hvort það tekst, getur einungis framtíðin skorið úr. Svo að maður snúi sér að ein- stökum íþróttagreinum, þá ber skíðagöngu hæst hér. Sárabót þótti mörgum að Stokkhólmarinn Sigge Martin skyldi vinna Vasa- gönguna svo óvænt og glæsilega. íshockey er óhemju vinsæl grein og óneitanlega er það spennandi. Hef ég þá helzt í huga leiki U.S.A.- liðsins og „Tre kronor“, sænska landsliðsins. Fyrri leikurinn var fyrir hálfum mánuði og endaði 6:6, og í kvöld unnu Ameríkanar með 6:5. í sænska liðinu spila meðal annarra tvíburarnir Stig og Hans Andersson, sem komu með Djur- IÞRÓTTIR 61

x

Allt um íþróttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.