Allt um íþróttir - 01.03.1952, Síða 31
Fyrir hvert stórmót undirbýr
Botvinnik sig af ótrúlegri ná-
kvæmni og elju, jafnt líkamlega
sem andlega, rannsakar niður í
kjölinn skákir andstæðinga sinna
og undirbýr nokkrar byrjanir, sem
hann síðan beitir eftir fyrirfram-
gerðri áætlun, sem oftast er byggð
á sárænu mati á andstæðingunum.
Einnig iðkar hann íþróttir sér til
heilsubótar, helzt sund og róður,
því að það er bjargföst trú hans,
að hæfileikarnir séu ekki til mik-
ils nýtir, ef líkamlegt heilbrigði er
ekki fyrir hendi.
Strax og skákum hans lýkur
hverfur hann á brott og kemur
ekki aftur fyrr en hann á að tefla
á ný. Hann var eini keppandinn i
heimsmeistaramótinu, sem ekki lét
sjá sig, þegar hann átti frí. Meðan
hann athugar biðstöður, gætir
kona hans þess, að hann hafi ró
og næði, með því að taka sér varð-
stöðu við dyrnar. Oft hefur hann
fundið björgunarleið til jafnteflis
eða sigurs við slíka rannsókn.
Botvinnik hefur sömu hæfileika
og Lasker, að stýra skákinni inn
á leiðir, sem andstæðingurinn kann
illa við sig á eða hefur óbeit á, og
skýrir það að nokkru leyti tökin,
sem hann hefur haft á Keres, sem
mun aðeins einu sinni hafa unnið
hann.
Botvinnik beitir fáum byrjunum,
en þær sem hann beitir, þekkir
hann út og inn, ef svo má segja.
Hann á það ekki sjaldan til að
koma andstæðingum sínum á óvart
með óvæntum leikjum, því að hann
er frumlegur og hugmyndaríkur.
Venjulega byrjar hann hægt en ör-
ugglega að byggja upp skákina í
byrjuninni og eykur tökin og þung-
ann smátt og smátt í miðtaflinu,
og oftast klykkir hann út með leift-
urárás, sem molar alla mótstöðu.
Afleikir koma afar sjaldan fyrir
hjá honum og er það án efa ein
af rótum hins óbilandi sjálfstrausts
hans, og án þess getur enginn van-
azt til að ná hæstu metorðum skák-
heimsins, hversu miklir sem hæfi-
leikarnir eru.
Botvinnik er lítt gefinn fyrir ein-
faldar stöður, hann kýs helzt erf-
iðar og flóknar stöður. Margir eru
mjög miður sín í erfiðum stöðum,
en hann virðist njóta þess, að leysa
úr erfiðleikunum.
Þegar hætturnar steðja að frá
öllum hliðum og minnsta andvara-
leysi getur þegar í stað leitt til
ósigurs, og stöðurnar krefjast stál-
tauga og ótruflaðrar einbeitingar
vilja og athygli, þá er Botvinnik í
essinu sínu.
Skákstíll hans er fjarri því að
vera varnarstíll, og það er alrangt
að halda því fram, að hann kjósi
helzt erfiðar stöður til þess að
halda í efnislegan ávinning. Hugs-
anir hans snúast á hinn bóginn
alltaf um árás. Jafnvel þótt hann
sé í varnarstöðu, leitar hann sí-
fellt eftir tækifæri til að brjótast
í gegn með runu (kombínasjón).
Leiftursnöggt kemur höggið og
vörn er samstundis snúið leiftur-
snöggt upp í ómótstæðilega sókn.
Slík snögg og óvænt umskipti eru
einkennendi fyrir skákir hans. Bot-
vinnink þykir um margt svipa
ÍÞRÓTTIR
67