Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.09.2015, Side 7

Fréttatíminn - 04.09.2015, Side 7
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ 19 50 - 20 15 65 Viðskiptavinum í Vildarþjónustu Arion banka gefst kostur á að kaupa Leikhúskort Þjóðleikhússins á sérstökum kjörum. Settu þrjár spennandi leiksýningar að þínu vali á Leikhúskortið þitt og láttu hreyfa við þér í vetur. Verð til vildarviðskiptavina Arion banka er 9.500 kr. Verð til viðskiptavina undir 25 ára er 7.500 kr. Fullt verð á Leikhúskorti Þjóðleikhússins er 11.500 kr. Skilyrði er að greitt sé með korti frá Arion banka í miðasölu Þjóðleikhússins eða í síma 551 1200. Tilboðið gildir til 10. september 2015. Þú finnur allt um sýningar leikársins á leikhusid.is. Dýrmæt upplifun á góðu verði H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 5- 17 98 Veruleg hreyfing er á fylgi stjórnmálaflokka milli mánaða, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup, netkönnun sem gerð var 6.-30. ágúst og lauk því sama dag og Píratar héldu aðalfund sinn. Píratar og VG bæta við sig en fylgi Samfylking- arinnar og Sjálfstæðisflokksins minnkar milli mánaða. Nær 36% segjast myndu kjósa Pírata sem er um fjórum prósentustigum meira en fyrir mánuði. Þetta er mesta fylgi sem flokk- urinn hefur mælst með í Þjóðarpúlsi Gallup. Næstum 12% myndu kjósa VG sem er aukn- ing um þrjú prósentustig milli mánaða. Rúm- lega 9% segjast myndu kjósa Samfylkinguna ef kosið yrði til Alþingis í dag sem er um þremur prósentustigum minna en fyrir mán- uði. Þetta er minnsta fylgi sem Samfylkingin hefur mælst með í Þjóðarpúlsi Gallup síðan í maí 1998, ári áður en flokkurinn bauð fyrst fram til Alþingis. Fylgi Sjálfstæðisflokksins minnkar um rúmlega tvö prósentustig milli mánaða en tæplega 22% segjast myndu kjósa flokkinn ef gengið væri til kosninga nú. Fylgi flokksins hefur ekki verið minna frá nóvember 2008. Fylgi Framsóknarflokksins og Bjartrar framtíðar minnkar lítið milli mánaða. Liðlega 11% segjast myndu kjósa Framsóknarflokkinn og rösklega 4% Bjarta framtíð. Björt framtíð mælist nú í fyrsta skipti undir 5% markinu sem þarf til að fá jöfnunarþingsæti. Næstum 6% segjast myndu kjósa aðra flokka en nú eiga sæti á Al- þingi. Tæp- lega 12 % taka ekki afstöðu eða neita að gefa hana upp og næstum 12% segj- ast myndu skila auðu eða ekki kjósa ef kosið yrði til Alþingis í dag. Stuðningur við ríkisstjórnina minnkar um tvö prósentustig milli mánaða. Rúmlega 34% þeirra sem tóku afstöðu segjast styðja hana. - jh Ráðstefna um aðgengi fatlaðra að menningu og listum Öryrkjabandalag Íslands, Lands- samtökin Þroskahjálp og Rann- sóknasetur í fötlunarfræðum bjóða til ráðstefnunnar Sköpun skiptir sköpum: Menning margbreytileikans, á Grand Hótel frá klukkan 9.30 til 17.30 í dag, 4. september. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að aðgengi fatlaðs fólks að menningu og listum bæði sem neytendur og framleiðendur. Fyrir- lesarar munu koma bæði úr fræða- og listaheiminum og fatlað listafólk mun gefa gestum sýnishorn af list sinni. Meðal þeirra sem koma fram er uppistandarinn Josh Blue sem mun flytja erindi á ráðstefnunni, en fötl- unarhúmor er að hans mati áhugavert og mikilvægt tæki til gagnrýni og sköpunar. Hann verður einnig með uppistand í Háskólabíói í kvöld klukkan 20 og fá þátttakendur á ráðstefnunni afslátt af miðum á atburðinn. - fb Rússatogari í brotajárn Rússneski togarinn Orlik, sem legið hefur í Njarðvíkurhöfn frá því í október í fyrra, verður dreginn til Helguvíkur þar sem hann verður rifinn í brotajárn. Fyrst þarf þó að fjarlægja spilliefni úr skipinu, meðal annars krabbameins- valdinn aspest, að því er fram kemur í Víkurfréttum. Þar segir að Hringrás hf. hafi óskað eftir heimild hafnaryfir- valda til að athafna sig á hafnar- svæðinu við tæmingu spilliefnanna. Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar veitti heimildina, með þeim skilyrðum þó að framkvæmdin truflaði ekki starfsemi hafnarinnar. Áður hafa skip eins og flutningaskipið Fernanda, sem brann í hafi, og gamla varðskipið Þór verið rifin í Helguvík. Tæp 5 prósent gætu fengist úr þrotabúi Baugs Tæplega 5 prósent gætu fengist upp í kröfur á Baug, að því er fram kom í úttekt Viðskiptablaðsins í gær, fimmtudag. Baugur Group, eitt um- svifamesta fyrirtæki Íslandssögunn- ar, var tekið til gjaldþrotaskipta árið 2009. Samþykktar kröfur í þrotabú Baugs nema um 100 milljörðum króna en alls var lýst í búið kröfum upp á tæplega 400 milljarða, að því er fram kemur í blaðinu. Stefnt er að því að skiptum ljúki á þrotabúinu á næsta ári en beðið er eftir milljarða- greiðslum í kjölfar sigra í tveimur dómsmálum þrotabúsins gegn Banque Havilland og Kaupþingi.  Stjórnmál Veruleg hreyfing á fylgi flokkanna Píratar með 36 prósent fylgi fréttir 7 Helgin 4.-6. september 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.