Fréttatíminn - 04.09.2015, Blaðsíða 14
Ö
Ömurleg staða flóttamanna sem nú
streyma til Evrópu, einkum frá Sýrlandi
en einnig frá öðrum löndum, rennur fólki
til rifja. Íslendingar, þúsundum saman,
hafa lýst sig reiðubúna til að veita aðstoð
til að taka á móti flóttamönnum um leið
og stjórnvöld eru hvött til þess að taka á
móti fleira fólki en þeim 50 sem stefnt var
að veita hæli hér á landi í ár.
Við þessu ákalli eru
stjórnvöld að bregðast
enda getum við ekki setið
hjá. Ríkisstjórnin fjallaði
um málefni flóttamanna
á þriðjudaginn þar sem
stofnuð var ráðherranefnd
um málefni flóttafólks og
innflytjenda. Nefndin mun
taka til umfjöllunar stöðu
mála, stefnumörkun og
stjórnvaldsákvarðanir í mál-
efnum flóttafólks, hælisleit-
enda og innflytjenda.
Við „venjulegar“ aðstæður væri mót-
taka 50 flóttamanna á einu ári hingað til
lands í ríflegri kantinum en á undanförn-
um 60 árum hafa Íslendingar tekið við 511
flóttamönnum, flestum á einu ári þegar 75
komu frá Kosovo árið 1999. Fjöldi þeirra
flóttamanna sem við höfum tekið við
undanfarin fimm ár er 39, þar af þrettán
frá Sýrlandi á þessu ári. Ástandið núna er
hins vegar langt frá því að vera „venju-
legt“. Þúsundir reyna að komast til Evr-
ópu á degi hverjum með öllum tiltækum
ráðum, hvort heldur er á landi eða sjó, en
talið er að á milli þriðjungs og helmings
íbúa Sýrlands sé á flótta undan hörmu-
legu borgarastríði. Flóttamannavandinn í
Evrópu hefur ekki verið meiri frá dögum
síðari heimstyrjaldarinnar.
Almennt er reynslan af flóttafólki sem
hingað hefur komið góð, allt frá því að
fyrst var tekið á móti ungversku fólki árið
1956, að því er Björn Teitsson, upplýs-
ingafulltrúi Rauða krossins, greinir frá.
Hann segir að Rauði krossinn ætti alltaf
að vera í stakk búinn til að taka á móti
flóttamönnum, sama hversu margir þeir
verða og að í sjálfu sér séu engin takmörk
á því hversu margir sjálfboðaliðar gætu
aðstoðað. Ekki verði vandkvæðum bundið
að fá fólk sem er tilbúið til að ganga til liðs
við Rauða krossinn sem byggir starf sitt á
þessum vettvangi á sjálfboðaliðakerfi sem
hefur verið við lýði frá árinu 1956. Hver
flóttamaður sem kemur til landsins fær
stuðningsfjölskyldu og heimsóknarvini
sem hjálpa til við ýmsa hversdagslega
hluti eins og að kenna fólki á leiðakerfi
strætisvagna og það skrifræði sem við
þarf að fást.
Gagnlegt er nú, þegar umræðan
stendur sem hæst um aðkomu Íslendinga
að þessu gríðarlega vandamáli og sam-
eiginlega ábyrgð okkar allra, að kynnast
reynslu þeirra sem hingað hafa komið
sem flóttamenn. Á Facebook-síðu sinni
lýsir Biljana Boloban, sem hingað kom 8
ára gömul ásamt fjölskyldu sinni árið 2001
eftir að fjölskylda hennar hafði upphaf-
lega flúið frá Króatíu til Serbíu, þar sem
þau áttu þó ekki í öruggt hús að venda:
„Við þurftum nefnilega að flýja landið og
yfirgefa allt sem við áttum og horfa ekki
til baka,“ segir Biljana og heldur áfram:
„Hér [í Keflavík þar sem fjölskyldan sett-
ist að] fékk ég að upplifa það að eiga fyrir
mat, að fara í sturtu og fara í hlýtt rúm
á kvöldin. Ég viðurkenni að það fylgdu
margar áskoranir að flytja í nýtt land þar
sem maður þekkir ekki neinn og þarf að
aðlagast nýrri menningu og skilja gamla
lífið sitt eftir. Hér fékk ég þó tækifæri
til að gera það sem mig langar við lífið
mitt...“
Vel þarf að undirbúa komu þeirra flótta-
manna sem við tökum á móti en sá undir-
búningur þarf að ganga hratt fyrir sig.
Þörfin er brýn. Þar kemur til kasta ríkis-
ins við ákvörðun um stefnumörkun en
síðan þeirra sveitarfélaga og einstaklinga
sem hafa lýst sig reiðubúna til aðstoðar.
Hlúa þarf að því fólki sem hrakið kemur
hingað og veita því nauðsynlega aðstoð og
þar með von um framtíð.
Von flóttamanna um framtíð
Við getum ekki setið hjá
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
14 viðhorf Helgin 4.-6. september 2015