Fréttatíminn - 04.09.2015, Page 18
Meira en
helming
ævinnar
saman í
hljómsveit
Hljómsveitin Dikta sendir frá sér sína
fimmtu hljóðversplötu í næstu viku og
hefur gripurinn fengið nafnið Easy Street.
Platan var unnin að hluta til í Þýskalandi
og eru 4 ár síðan Dikta sendi síðast frá
sér plötu. Sveitin er á 17. aldursári og
var stofnuð í Garðabænum. Meðlimir
sveitarinnar eru allir Garðbæingar, þó
söngvarinn, Haukur Heiðar, telji sig meiri
Álftnesing. Allir eru þeir skólagengnir í
öðrum fræðum en tónlist og má segja að
Dikta sé ein menntaðasta sveit lands-
ins. Útgáfutónleikar Easy Street verða
í Norðurljósasal Hörpu, miðvikudags-
kvöldið 9. september.
Haukur Heiðar Hauksson
33 ára.
Söngur, gítar og píanó
Læknir, er að klára sérhæfingu í heimilislækningum.
„Ég er búinn að vera lengur í Diktu en ekki. Ég þekki ekkert annað
en að vera í hljómsveitinni. Ég byrjaði samt ekki fyrr en ári eftir
stofnun. Ekki margir sem vita að Dikta keppti í músíktilraunum á
fyrsta ári sínu, en þá með söngkonu. Svo kom ég.“
Uppáhalds lag á Easy Street: I Miss You.
Jón Þór Sigurðsson
33 ára.
Trommuleikari
Flugmaður hjá Erni og skotfimimaður.
Á Íslandsmetið í skotfimi og er Íslandsmeistari. Silfur og brons á
smáþjóðaleikunum og stefnir á ólympíuleika fyrr en síðar.
„Ég er sá versti í Diktu og líklega sá versti á landinu að muna nöfn
á lögum. Ég man aldrei hvað lögin heita. Það sem er verra er það
að strákarnir eru með einhver vinnuheiti í langan tíma, og svo
á síðustu stundu breyta þeir nafninu. Ég er á því að það sé með
ráðum gert.“
Uppáhalds lag á Easy Street: See it. (Sem er vinnuheiti en heitir
Do You Remember? á plötunni.)
Jón Bjarni Pétursson
33 ára.
Gítarleikari
Íþrótta- og tónmenntarkennari í Flataskóla í Garðabæ.
„Við erum allir helsjúkir Garðbæingar, kannski viðurkennir
Haukur það ekki þar sem hann er af Álftanesinu.“
Uppáhalds lag á Easy Street: Century. Gömul hugmynd sem ég
vann með og útkoman lifnaði við og fór í allt aðra átt en í upphafi.
Skúli Z. Gestsson
33 ára.
Bassaleikari
Kennari í Langholtsskóla. Í námsleyfi.
Er í stýrihóp Biophilia menntaverkefnis Reykjavíkurborgar og
norrænu ráðherranefndarinnar.
„Það má ekki gleyma því að sveitin fékk aðstöðu í kjallara Garða-
skóla og á gömlu bæjarskrifstofunum í Garðabæ. Ef við hefðum
ekki fengið þennan stuðning þá hefði þetta band aldrei orðið til.
Það má halda þessu til haga, þó víða sé pottur brotinn í Garðabæ
í dag.“
Uppáhalds lag á Easy Street: Out of breath.
Plötur Diktu
Hunting For Happiness 2006
Get It Together 2009
Trust Me 2011
Thank You EP 2011
Easy Street 2015
18 tónlist Helgin 4.-6. september 2015