Fréttatíminn - 04.09.2015, Blaðsíða 40
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Kristín Jónsdóttir
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna
svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Forsýning alla helgina í Gallerí Fold
föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17,
þriðjudag kl. 10–17 (þau verk sem boðin eru upp á þriðjudag)
mánudaginn 7. september
og þriðjudaginn 8. september
uppboðin hefjast kl. 18
Eldhúsið
er hjarta
heimilisins
Marta Rún Ársælsdóttir og Arnór Eyvar Ólafsson festu kaup á
fallegri íbúð í Bryggjuhverfinu í sumar. Marta er mikil áhuga-
manneskja um mat og eyðir miklum tíma í eldhúsinu. Með dyggri
aðstoð frá afa sínum gerði hún draumaeldhúsið að veruleika.
M arta Rún Ársælsdóttir starfar í húsgagnaversl-uninni Norr11. „Þar næ
ég að tengja saman mín tvö helstu
áhugamál, hönnun og mat. Í frí-
tíma mínum eyði ég svo óendan-
legum tíma í að lesa uppskrifta-
bækur, prófa nýjar uppskriftir og
blogga um þær.“ Marta er einn af
meðlimum bloggsíðunnar Femme.
is þar sem hver bloggari hefur sitt
sérsvið og er Marta iðin við að setja
inn uppskriftir af girnilegum rétt-
um og kokteilum.
Handlaginn afi
Marta og Arnór keyptu íbúðina í
sumar og fluttu inn fyrir tveimur
mánuðum. „Fyrir mér er eldhús-
ið algjört aðalatriði og því fannst
mér skipta miklu máli að taka það
í gegn. Við höfðum hins vegar ekki
alveg ráð á að skipta út eldhúsinn-
réttingunni svo við leituðum að
Marta Rún er mikil áhugamanneskja
um mat og prýða margar fallegar
matreiðslubækur hillurnar í eldhúsinu.
Nýjasta gersemin er nýútkomin bók
Jamie Oliver: Everyday Super Food, en
hann er í miklu uppáhaldi hjá Mörtu.
Mynd/Hari.
Marta og Arnór máluðu innréttinguna og settu veggfóður á milli. Ljósin eru frá Lýs-
ingu og hönnun og perurnar eru frá House Doctor og keyptar í Fakó. Við gluggann
hefur Marta sett upp fallegan kaffibar. Mynd/Hari
Veggfóðrið er úr hollensku netversluninni Behangfabriek sem sendir nú til Íslands,
þökk sé Mörtu. Mynd/Hari.
ódýrari lausnum,“ segir Marta.
Hún tók því til sinna mála og fór
með einn skáp úr innréttingunni í
Slippfélagið og fékk ráðgjöf frá varð-
andi málningu sem hentaði viðnum.
Í framkvæmdunum fékk hún dygga
aðstoð frá afa sínum, Gesti Guðna-
syni. „Málningarvinnan var mikið
þolinmæðisverk og áttum við afi
dýrmætar samverustundir á meðan
þessu stóð. Á milli umferða drukk-
um við svo ófáa kaffibolla.“ Marta
hefur nú komið sér upp sérstökum
kaffibar við gluggann. „Kaffivélin
er án efa mest notaða eldhústækið.“
Veggfóður frá Hollandi
Marta hafði ákveðnar hugmyndir um
hvernig hún vildi hafa vegginn fyrir
neðan efri skápana. „Ég fæ mikinn
innblástur á Pinterest og veggfóðrið
fann ég þar. Mig langaði að flísaleggja
vegginn, en það er bæði dýrt og
óhentugt ef mig langar svo að breyta
aftur. Ég fann hollenska netverslun á
Pinterest, Behangfabriek, sem sendir
ekki til Íslands, en ég ákvað að senda
þeim tölvupóst og þeir bættu bara Ís-
landi við listann hjá sér.“ Veggfóðrið
er hannað fyrir eldhús og á að þola
hita og fituslettur. Það kemur sér vel
því Marta er dugleg að halda matar-
boð. Í þeim koma barstólarnir við eyj-
una einnig að góðu gagni. „Þegar vin-
konurnar eru mættar geta þær tyllt
sér við eyjuna og sötrað rauðvín á
meðan ég klára að elda,“ segir matar-
bloggarinn Marta Rún.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
40 heimili og hönnun Helgin 4.-6. september 2015