Fréttatíminn - 04.09.2015, Page 48
„Ég held að Íslendingar séu hrifnir af finnskri hönnun því þeir eiga margt sam-
eiginlegt með Finnum, til dæmis smekk og húmor,“ segir Maarit Kaipainen, einn af
eigendum Finnsku Búðarinnar sem opnaði nýverið sína aðra verslun sem staðsett er
í Kringlunni. Mynd/Hari.
Finnska Búðin opnar í Kringlunni
Finnska Búðin opnaði nýverið sína aðra verslun. Aðdáendur finnskrar hönnunar geta nú glaðst
því að í nýju búðinni, sem staðsett er í Kringlunni, er boðið upp á enn meira úrval af vörum frá
þekktum finnskum merkjum eins og Marimekko og Iittala. Upprunalega verslunin við Laugaveg
mun starfa áfram og þar mun sama góða stemningin ráða ríkjum.
H ugmyndin að Finnsku búðinni varð til í finnskri sögustund í Norræna hús-
inu fyrir rúmlega þremur árum,“
segir Maarit Kaipainen, einn af
eigendum búðarinnar. „Við Satu
Rämö hittumst þar með börnin
okkar sem eru hálf-finnsk og hálf-
íslensk. Við erum báðar viðskipta-
fræðingar að mennt og erum auk
þess vanar að gera hluti frekar en
að hugsa um hluti. Búðin varð því
fljótt að veruleika.“ Þriðji eigand-
inn, Piia Mettälä, bættist svo við
fljótlega. Búðarreksturinn er meira
og minna fjölskylduverkefni. „Við
viljum alltaf gera allt sjálf og finnst
mikilvægt að vera sýnileg í búðinni
og skapa þannig hlýja og heimilis-
lega stemningu,“ segir Maarit.
Vildu kynna finnska hönnun
fyrir Íslendingum
Finnska Búðin hefur nú verið starf-
rækt á Laugavegi 27 í þrjú ár í fal-
legu bakhúsi. „Við seljum finnska
hönnun sem okkur langaði að
kynna fyrir Íslendingum, til dæm-
is glervöru, gjafavöru og fatnað,“
segir Maarit. Meðal merkja má
nefna Marimekko sem er þekkt
fyrir mikil gæði, litríka hönnun
og klassísk og vel sniðinn fatnað.
„Rýmið á Laugaveginum er lítið og
þegar við tókum inn aukið úrval af
fatnaði fórum við að horfa í kringum
okkur eftir stærra húsnæði,“ segir
Maarit. Finnska Búðin opnaði svo
sína aðra verslun í Kringlunni í síð-
asta mánuði.
Múmínálfarnir alltaf vinsælastir
„Við erum staðsett á 3. hæð, á svo-
kölluðum Bíógangi sem er verið
að endurhanna og betrumbæta um
þessar mundir,“ segir Maarit. Nýja
verslunin er rúmgóð og einkennist
vöruúrvalið að mestu leyti af fatn-
aði og skóm. Auk þess má finna fal-
lega fylgihluti, töskur, barnaföt og
glervörur frá Iittala í versluninni. Í
haust mun svo bætast jafnt og þétt
við vöruúrvalið. „Við vorum að fá
fallegar sendingar af trévörum og
skarti frá Aarikka og lífrænum
skinnvörum frá Marita Huurinai-
nen,“ segir Maarit. Múmínálfarnir
verða svo að sjálfsögðu fyrirferðar-
miklir í Finnsku Búðinni, enda al-
gjört eftirlæti Íslendinga. Aðspurð
um þennan mikla áhuga Íslend-
inga á finnskri hönnun segir Ma-
arit það tengist líklega því hversu
líkar þjóðirnar eru. „Íslendingar
og Finnar eru með svipaðan húmor
og smekk. Íslendingar treysta auk
þess finnskri hönnun.“
Unnið í samstarfi við
Finnsku Búðina
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Á MÚRBÚÐARVERÐI
DEKA PROJEKT
INNIMÁLNING
Deka Projekt 10,
10 lítrar (stofn A)
6.990
Deka Projekt 05,
10 lítrar (stofn A)
6.195
Deka Projekt 02,
10 lítrar (stofn A)
5.390
Þ að var alltaf ætlunin að bæta fleiri dýrum við Pyropet fjöl-skylduna,“ segir Þórunn, en
hún hannaði fyrsta kertið, Kisu,
þegar hún var við nám við Royal
College of Art í London árið 2011.
Kertið lítur út eins og saklaus kett-
lingur við fyrstu sýn en inni í vax-
inu er falin beinagrind sem birtist
óvænt eftir að kveikt hefur verið á
kertinu. Fuglinn Bíbí bættist svo við
fyrr á þessu ári, en hann er til tveim-
ur litum, gulum og grænum. Í vetur
munu svo hreindýrið Dýri og kanín-
an Hoppa bætast í hópinn. PyroPet
fjölskyldan verður því að kjarnafjöl-
skyldu. „Hreindýrið er búið að vera
frekar lengi á teikniborðinu, en það
var frekar tæknilega flókið í fram-
kvæmd vegna hornanna sem koma
upp úr vaxinu,“ segir Þórunn. Fleiri
nýjungar eru væntanlegar með
haustinu, þar á meðal svört Kisa,
en hún hefur hingað til aðeins ver-
ið fáanleg í bleikum og gráum lit.
Svarta kisan mun koma í búðir um
næstu mánaðamót í tilefni hrekkja-
vökunnar.
Pyropet
fjölskyldan
stækkar
Vöruhönnuðurinn
Þórunn Árnadóttir
hefur slegið í gegn með
kertum sínum sem
hún hannar ásamt Dan
Koval undir merkjum
Pyropet. Kisa og Bíbí
hafa notið mikilla vin-
sælda á heimilum víðs
vegar í heiminum og
í vetur mun fjölga í
Pyropet fjölskyldunni.
Hreindýrið
Dýri verður
fáanlegt í
hvítu og bláu.
Kanínan
Hoppa verður
fáanleg í hvítu
og bleiku.
Myndir/Þórunn
Árnadóttir.
Í tilefni hrekkjavökunnar verður Kisa fáanleg
í svörtum lit í haust.
48 heimili og hönnun Helgin 4.-6. september 2015