Fréttatíminn


Fréttatíminn - 04.09.2015, Síða 54

Fréttatíminn - 04.09.2015, Síða 54
54 heilsa Helgin 4.-6. september 2015 Morgunverðar Taco Léttleiki tilverunnar á Balí Lúsasjampó eyðir höfuðlús og nitV irk ni s tað fes t í klín ísk um pró fun um * Öflugt - fljótvirkt - auðvelt í notkun Virkar í einni meðferð Fljótvirkt: Virkar á 10 mínútum 100% virkni gegn lús og nit Náttúrulegt, án eiturefna * Abdel-Ghaffar F et.al; Parasitol Res. 2012 Jan; 110(1):277-80. Epub 2011 Jun 11. FÆST Í ÖLLUM APÓTEKUM Fyrir 2 ára og eldri Mjög auðvelt að skola úr hári! Íslenskar upplýsingar er að finna á www.licener.com/IS V i lborgu Halldórsdóttur hafði dreymt um að ferðast til Bali frá því hún samdi textann við lagið Húsið og ég, sem eiginmaður hennar, Helgi Björns, gerði frægt um árið. „Í textanum sem ég samdi árið 1978 segir með- al annars: „Einu sinni fórum við í bað og ferðuðumst til Balí,“ en það var ekki fyrr en síðasta haust sem draumurinn loksins rættist og nú er ég yfir mig ástfangin af þessari eyju guðanna,“ segir Vilborg, sem ætlar að dvelja á Balí frá og með haustinu. Úrval Útsýn býður upp á einstaka 13 daga ferð til eyjarinnar í vetur. Vilborg mun taka á móti hópnum 1. nóvember og verða honum innan- handar. „Um sérferð er að ræða sem þýðir að takmarkaður fjöldi sæta er í boði. Þetta verður því einstaklings- miðuð fararstjórn þar sem ég mun gera mitt besta til að aðstoða fólk við að finna afþreyingu í takt við áhuga,“ segir Vilborg. Balí er veisla fyrir augað, and- ann og líkamann og segir Vilborg lengd ferðalagsins vera vel þess virði. „Eyjan er lítil en hér er hægt að gera fjölbreytta hluti. Hér er mik- il menning, fallegar byggingar og handverk, æðislegar strendur og fallegar gönguleiðir, að ógleymd- um ferskum og góðum mat.“ Vil- borg segir að Balí sé tilvalinn stað- ur til að hreinsa hugann. „Auðvitað getur maður ræktað sjálfan sig og hugann heima, en stundum þarf maður ákveðna fjarlægð líka.“ Í ferðinni mun Vilborg bjóða upp á jóga í morgunsárið alla daga. „Við munum byrja daginn á því að teygja okkur mót deginum í gleði og hlýju, hleypa röddinni út og taka stríðs- manninn auk sjálfstyrkjandi leik- listaræfinga.“ Allar fyrirspurnir má senda á gudny@uu.is sem tekur á móti þeim með bros á vör. Frestur til að bóka draumaferðina til Balí er til 10. september. Unnið í samstarfi við Úrval Útsýn H ei m ild a f w w w .h ei ls ut or g. is Margir hafa borðað Burrito í morgunmat, en færri hafa fengið sér Taco, enda hefur það ekki haft hollustustimpil á sér hingað til. En þessi morgunverðar Taco upp- skrift er full af trefjum, prótíni úr baunum og eggjum og hollri fitu úr avókadó. Það er ekki flókin samsetning eða langur innkaupalisti. Svo er þetta mjög fljótlegt að græja í morgunsárið. Taco morgunverður fyrir 2 Hráefni 2 lífrænar tortillur, hitaðar ½ bolli svartar baunir (hellst án sódíum) 1 tsk malað kúmen 1 tsk túrmerik Salt og pipar eftir smekk 4 egg (2 heil og 2 eggjahvítur) 2 bollar spínat eða grænkál (eða blanda af hvoru tveggja) 4 tsk kókósolía eða extra virgin olía ½ avókadó, skorinn þunnt Steinselja til að setja punktinn yfir i-ið Taco sósa ef þú vilt krydda líf þitt aðeins fyrir daginn! Aðferð Hrærðu saman 2 heil egg og eggjahvítu úr tveimur, settu til hliðar. Settu tortill- urnar á góðan hita í ofninum þar til að þær eru orðnar vel stökkar. Hitaðu við lágan hita svörtu baunirnar, túrmerik, kúmen, salt og pipar. Á meðan þessi blanda er að hitna, settu þá 2 tsk af olíu í pott og hitaðu aðeins upp spínatið og grænkálið. Settu restina af olíunni á pönnu og steiktu nú eggin. Settu heitar tortillur á disk, settu baunirnar fyrst, spínat og svo egg. Toppar þetta með avókadó og steinselju. Vilborg Hall- dórsdóttir sér um fararstjórn í draumaferðinni til Balí. M yn d/ G et ty Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur örva brennslu og meltingu og eru bjúglosandi. Sérstaklega er mælt með vörunni til að hreinsa líkamann. Colonic Plus Kehonpuhdistaja www.birkiaska.is www.birkiaska.is Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans. 2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni. Bodyflex Strong www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.