Fréttatíminn - 04.09.2015, Page 60
Vörurnar frá Sólgæti eru hollar og
góðar fyrir sælkera á öllum aldri sem
vilja gera vel við sig. Líttu í kringum
þig í næstu verslun. Þú kemur eaust
auga á eitthvað ljómandi gott.
H E I L N Æ M T O G
N Á T T Ú R U L E G T
LJÓMANDI
GOTT
solgaeti.isheilsa.is
B loggið varð til þegar Ásthildur flutti til Hollands ásamt fjöl-skyldunni fyrir tveimur árum.
„Ég hef verið viðloðandi bætta heilsu
síðan ég lauk námi í hjúkrunarfræði
við Háskólann á Akureyri 2001,“ segir
Ásthildur, sem stundar nú meistara-
nám í geðheilbrigðisfræðum. „Þegar
við fluttum til Hollands hafði ég meiri
frítíma og þar sem ég hef mikið verið
að vinna með fólk bæði í fjarþjálfun og
eins í heilsumarkþjálfun þá var það allt-
af að koma upp í samtölum mínum við
fólkið mitt að millimálin væri eitthvað
sem fólk ætti oft á tíðum í vandræðum
með.“ Bloggið fékk því nafnið Matur
milli mála.
Anti-sportisti sem gerðist
einkaþjálfari
Ásthildur hefur þó ekki alltaf hugsað
fyrst og fremst um heilsuna. „Sem
unglingur var ég lítið að pæla í slíku.
Ég sagðist vera anti-sportisti, elskaði
franskar og það eina sem ég gat eldað
var spaghetti með tómatsósu og sett
franskar í ofninn.“ Hún er því afar stolt
mamma í dag þegar hún fylgist með
dætrum sínum elda sér dásamlega
girnilegar og hollar máltíðir. „Áhuginn
á heilsunni sjálfri hófst með hjúkrunar-
náminu og heilsutengdi mataráhuginn
kom svo þegar ég fór að sjá hvað hollt
mataræði getur gert fyrir aukna orku,
betri svefn og betri líðan. Ég trúi því
einnig að við getum fyrirbyggt ansi
marga sjúkdóma og slíkt með réttu
mataræði,“ segir Ásthildur.
Innihald bitar:
½ bolli kókosmjöl (fínt)
2 msk kókosolía
1 msk hunang
1 msk vatn
¼ tsk vanillaextractdropar
Nokkur korn af sjávarsalti
Innihald súkkulaði:
2 msk lífrænt kakóduft
2 msk kókosolía
1 msk hunang
Aðferð:
Byrjaðu á því að setja kókos-
olíu og hunang saman í lítið
glas og velgja t.d. í heitu vatni
í vaskinum. Verður þægilegra
að eiga við olíuna þannig.
Kókosmjöli, kókosolíu,
hunangi, vatni, vanilluextract
og sjávarsalti blandað saman
í skál.
Látið standa í 5-10 mínútur
til að allt kókosmjölið verði
örugglega blautt í gegn.
Fínt að nota litla kúpta
skeið til að móta bitana. Á
þessum tímapunkti eru þeir
mjög lausir í sér. Engar áhyggj-
ur þeir munu harðna þegar
olían harðnar í frystinum.
Bitunum raðað á smjör-
pappír t.d. á lítið skurðarbretti
sem kemst svo fyrir í frystinum.
Sett í frysti í 15-20 mínútur.
Á meðan bitarnir eru í frysti
er súkkulaðið búið til.
Það er einnig vel hægt að
notast við tilbúið súkkulaði –
þá er það bara brætt t.d. í potti
eða vatnsbaði.
Lífrænu kakódufti, kókos-
olíu og hunangi er blandað
saman í skál – hér er einnig
gott að setja skálina ofan í eld-
húsvaskinn með heitu vatni og
hræra þessu saman þar. Passa
bara að vatnið sullist ekki ofan
í skálina.
Bitarnir teknir úr frystinum.
Ég setti nú bara bitana ofan
í súkkulaðið og velti þeim þar
svo þeir yrðu alveg þaktir.
Aftur sett í frystinn í a.m.k.
10 mínútur.
Hér getur verið spurning
hvort þú viljir gera aðra
umferð af súkkulaðibaðinu. Ég
gerði það allavega og þá varð
þetta ennþá betra.
Svo er fínt að sáldra
kókosmjöli yfir síðasta lagið af
súkkulaðinu – en þú verður að
hafa ansi hraðar hendur því að
súkkulaðið harðnar mjög fljótt
þar sem bitarnir eru ískaldir.
Aftur sett í frystinn og
tekið út t.d. 5 mínútum áður en
boðið er upp á bitana (þ.e.a.s.
ef þeir eru þá ekki þegar
búnir!).
Milli-
málið
skiptir
máli
Hjúkrunarfræðingurinn,
einkaþjálfarinn, heilsumark
þjálfinn og meistaraneminn
Ásthildur Björnsdóttir heldur úti
blogginu maturmillimala.com þar
sem hún deilir heilsusamlegum
uppskriftum og hugmyndum
af millimálum með lesendum.
Í tengslum við störf sín hefur
hún tekið eftir því að fólk er oft
að vandræðast með nesti og
millimál og því ákvað hún að
gefa út sérstakt uppskriftahefti
sem inniheldur 40 mismunandi
hugmyndir að hollum og góðum
nestishugmyndum.
40 nestishugmyndir
Á síðastliðnum tveimur árum
hefur Ásthildur útbúið nokkur
uppskriftahefti sem innihalda
girnilegar uppskriftir. Nýjasta
afurðin er Nestispakkinn. „Hann
inniheldur rúmlega 40 einfaldar
nestishugmyndir, uppskriftir og
myndir. Oft vantar fólk nýjar hug-
myndir um hvað taka skal með sér
í nesti, hvort sem það er í skólann
eða í vinnuna.“ Fréttatíminn fékk
Ásthildi til að deila einni glænýrri
uppskrift úr Nestispakkanum.
Ásthildur Björnsdóttir deilir heilsusamlegum uppskritum og hugmyndum af milli
málum á blogginu www.maturmillimala.com
Ásthildur tekur allar
myndir fyrir bloggið sjálf
og eru þær afar fallegar.
„Það skiptir nefnilega
mjög miklu máli að
það sem við borðum
líti vel út. Útlit, lykt,
áferð og auðvitað bragð
hefur áhrif á hvernig við
njótum matarins.“
Innihald:
1 dós kjúklingabaunir
1 dós túnfiskur í vatni
1 lítil rauð paprika – skorin
í teninga
¼ bolli rauðlaukur – smátt
saxaður
¼ bolli fersk steinselja –
smátt söxuð
2 tsk kapers (litlu grænu
kúlurnar)
½ tsk þurrt rósmarín
krydd
¼ bolli sítrónusafi
2 msk extra virgin
ólífuolía
Sjávarsalt og nýmalaður
svartur pipar eftir smekk
4 bollar blandað salat
Aðferð:
Blandaðu öllu saman
nema salatinu í stóra skál.
Settu salatið í botninn á
ílátinu sem þú ætlar að
nota fyrir nestið.
Helltu blöndunni þar yfir.
Ofurpróteinríka túnfisksalatið: (fyrir 2)
Heimagerðir Bounty bitar
60 heilsa Helgin 4.6. september 2015