Fréttatíminn - 11.09.2015, Page 6
Vertu eins og
heima hjá þér
GARLAND
2,5 sæta sófi.
Corsica grár. Viðarfætur.
Stærð: 178 x 68 x 83 cm
99.990 kr.
134.990 kr.
ROMANCE
2,5 sæta sófi.
Dökkgrár. Viðarfætur.
Stærð: 170 x 82 x 87 cm
139.990 kr.
179.990 kr.
KAMMA
Þriggja sæta sófi með viðarfótum. Dökk-, ljósgrátt eða
brúnt slitsterkt áklæði. Stærð: 201 x 84 x :105 cm
89.990 kr. Afmælisverð
Reykjavík og Akureyri www.husgagnahollin.is
Húsgagnahöllin 50 ára
Eftir hálfrar aldar farsæla sögu kynnum við endurnýjaða og glæsilega verslun með stórauknu vöruúrvali. Við þökkum þjóðinni samfylgdina og traustið í fimm áratugi. Fagnaðu þessum tímamótum með okkur og gerðu einstök kaup.
Vertu eins og
heima hjá þér
Nýtt blað er komið í dreifingu
http://www.youblisher.com/p/1212708-Baeklingur-september/
www.husgagnahollin.is
558 1100
Reynist um
80 kíló af
fíkniefnum
að ræða er
þetta eitt
alstærsta
fíkniefnamál
sem upp
hefur komið
hér á landi.
Stuttmyndahátíðin Gullmolinn var
haldin hátíðleg í annað sinn þann
9. september. Hún var haldin í
Molanum, ungmennahúsi í Kópa-
vogi, sem heldur utan um hátíðina.
Að þessu sinni komust þrettán
myndir á lokakvöldið og stóðu
þrjár myndir uppi sem sigurveg-
arar. Þriðja sætið hlaut hugljúfa
heimildarmyndin Amma eftir
Eyþór Jóvinsson sem segir frá
jólahaldi á Flateyri. Annað sætið
hlaut stuttmyndin New York, New
York eftir Arnar Geir Gústafsson
og Birni Jón Sigurðsson en hún
segir frá vináttu tveggja drengja
og fylgjast áhorfendur með síðasta
degi þeirra saman. Sigurmynd
Gullmolans í ár var spennutryll-
irinn „Það er margt sem myrkrið
veit“ eftir Ingu Söndru Hjartar-
dóttur og Lovísu Láru Halldórs-
dóttur. Myndin fjallar um Unu
sem upplifir yfirnáttúrulega hluti í
kjölfar fóstureyðingar.
Dómarar hátíðarinnar voru ekki
af verri endanum en í dómarasóf-
anum sátu Börkur Gunnarsson
leikstjóri, Sigurður Skúlason leik-
ari og Valdís Óskarsdóttir klippari.
Gullmolinn miðar að því að vera
lyftistöng efnilegra kvikmynda-
gerðarmanna og er það von for-
ráðamanna hátíðarinnar að hún
festi sig í sessi og verði framvegis
árlegur viðburður. - fb
E itt stærsta fíkniefnamál sem komið hefur upp hér á landi er nú til rann-sóknar hjá rannsóknarlögreglunni
á Austurlandi í samstarfi við fíkniefna-
deild lögreglunnar á höfuðborgarsvæð-
inu. Um er að ræða innflutning á um 80
kílóum af hvítu efni sem enn hefur ekki
verið efnagreint, eftir því sem næst verður
komist. Lögregla verst allra frétta en
búist er við yfirlýsingu frá henni hvað úr
hverju.
Málið kom upp á Seyðisfirði á þriðjudag-
inn þegar hollenskt par á fimmtugsaldri
sem komið hafði til landsins með Nor-
rænu var handtekið eftir að um 80 kíló af
hvítu efni fundust í húsbíl þess. Parið var
í framhaldinu úrskurðað í tveggja vikna
gæsluvarðhald og flutt til Reykjavíkur.
Karlmaðurinn situr nú í gæsluvarðhaldi á
Litla Hrauni, samkvæmt fréttum RÚV og
mbl.is, en engar upplýsingar hafa fengist
um gæslustað konunnar.
Parið hafði tekið húsbílinn á leigu hjá
erlendri bílaleigu og samkvæmt frétt Rík-
isútvarpsins hafði ekki verið gerð tilraun
til að fela efnið vandlega, heldur hafi það
verið í nokkrum plastpokum sem voru í
farangri og búnaði bílsins. Árni Elíasson,
yfirtollvörður á Seyðisfirði, sagði í kvöld-
fréttum RÚV á miðvikudagskvöldið að
málið hefði ekki átt sér langan aðdrag-
anda. „Það er ekki hægt að segja það en
grunnurinn að þessu er vönduð áhættu-
greining hjá tollinum á Íslandi í samvinnu
við tollyfirvöld í Færeyjum og lögreglu
hér á landi,“ sagði hann.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Frétta-
tímans tókst ekki að ná sambandi við
rannsóknaraðila málsins, hvorki hjá lög-
reglunni á Austurlandi né í Reykjavík og
tollverðir á Seyðisfirði sögðust ekki hafa
neitt meira um málið að segja, enda væri
það komið alfarið í hendur lögreglu.
Engar upplýsingar hafa fengist um
hvort einhverjir Íslendingar eigi aðild að
innflutningnum, en í einni frétt RÚV um
málið kemur fram að parið hafi fullyrt að
það hafi engin tengsl við landið – það hafi
aldrei komið hingað áður.
Reynist um 80 kíló af fíkniefnum að
ræða er þetta eitt alstærsta fíkniefna-
mál sem upp hefur komið hér á landi. Í
Pólstjörnumálinu svokallaða árið 2008,
sem þá var stærst slíkra mála, nam inn-
flutningurinn 40 kílóum af amfetamíni og
e-töflum. Í því máli var þyngsti dómur yfir
sakborningi níu og hálfs árs fangelsi.
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
KviKmyndir Stuttmyndahátíðin Gullmolinn haldin í annað Sinn
Spennutryllir bar sigur úr býtum
Birnir Jón Sigurðsson sem varð í öðru
sæti og Sandra Hjartardóttir sem
sigraði.
SEyðiSfjörður StórSmyGl fíKniEfna mEð norrænu
Eitt stærsta fíkniefnamál sem
upp hefur komið á Íslandi
Hollenskt par var í vikunni handtekið og úrskurðað í tveggja vikna gæsluvarðhald eftir að um 80
kíló af hvítu efni fundust í bíl þess.
Fíkniefnin fundust í húsbíl sem hollenskt par kom með hingað til lands með ferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar.
Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
6 fréttir Helgin 11.-13. september 2015