Fréttatíminn - 11.09.2015, Blaðsíða 12
V
Vandi fylgir vegsemd hverri. Velgengni ís-
lenska karlalandsliðsins í knattspyrnu í
undankeppni Evrópumeistaramótsins – og
raunar í aðdraganda síðustu heimsmeistara-
keppni einnig – hefur sýnt fram á að þjóðar-
leikvangur okkar, Laugardalsvöllur, er of lít-
ill. Hann tekur aðeins 9.800 manns í sæti og
því komast færri að en vilja á heimaleiki liðs-
ins. Undanfarin ár hafa miðar á leiki lands-
liðsins því verið eins konar happdrættisvinn-
ingar fyrir þá sem náð hafa í
gegnum miðasölukerfið, jafn-
vel á undarlegustu tímum sól-
arhringsins. Aðrir hafa setið
eftir með sárt ennið. Raunar
eru færri miðar í boði fyrir al-
menning því hluti fer til gesta,
styrktaraðila Knattspyrnu-
sambands Íslands og fleiri.
Þegar vel gengur, eins og nú,
eru allir leikir stórleikir. Áður
voru það aðeins stöku leikir er
vænta mátti aðsóknar langt um-
fram það sem rými vallarins leyfði. Reglur Al-
þjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, meðal
annars um sæti fyrir alla, þýða að Laugardals-
völlur rúmar mun færri en dæmi eru um frá
fyrri árum þegar selja mátt í stæði vallarins.
Frægasta dæmið um gríðarlegan áhuga og
aðsókn er frá árinu 1968 þegar knattspyrnu-
liðið Valur mætti Benfica í Evrópukeppni
meistaraliða. Með portúgalska liðinu lék einn
þekktasti og dáðasti knattspyrnumaður heims
á þeim tíma, Eusebio. Því flykktust menn á
völlinn til þess að sjá goðið, tvöfalt fleiri en nú
komast fyrir í áhorfendastúkum Laugardals-
vallar. Alls sáu 18.194 áhorfendur Val gera
jafntefli við stórliðið en það met var ekki slegið
fyrr en árið 2004, þegar íslenska landsliðið
lék vináttuleik við ítalska landsliðið að við-
stöddum 20.204 áhorfendum.
Þess má geta að þegar Valsmenn unnu
afrek sitt gegn portúgalska meistaraliðinu
og settu vallarmetið voru Íslendingar alls
200,281 svo við lá að tíundi hluti þjóðarinnar
væri á vellinum. Áhuginn síðustu misseri er
stöðugri en áður enda vakti það víða athygli
í liðinni viku, þegar íslenska karlalandslið-
ið sigraði bronslið Hollendinga frá síðustu
heimsmeistarakeppni, að um þrjú þúsund
stuðningsmenn fylgdu liðinu til Amsterdam,
um 1 prósent þjóðarinnar.
Íslenska liðið tryggði sér á sunnudaginn
þátttökurétt á Evrópumeistaramótinu á næsta
ári þótt enn eigi það tvo leiki eftir í riðlakeppn-
inni, gegn Lettlandi og Tyrklandi. Það er
magnaður árangur og vekur víða eftirtekt að
svo fámenn þjóð nái slíkum árangri en Íslend-
ingar eru fámennasta þjóðin frá upphafi sem
tryggir sér sæti í úrslitakeppni karlalandsliða
í knattspyrnu. Ekki er að efa að slegist verður
um miðana á heimaleikinn gegn Lettlandi 10.
október næstkomandi. Forráðamenn ríkis,
borgar og Knattspyrnusambandsins hljóta
í kjölfar árangurs liðsins að setjast niður og
leggja framtíðarlínur vegna þjóðarleikvangs-
ins og hugsanlegrar stækkunar. Fram kom hjá
Geir Þorsteinssyni, formanni Knattspyrnu-
sambandsins, eftir að þátttökuréttur Íslands
á Evrópumeistaramótinu var tryggður, að
byggja þyrfti yfirbyggðan leikvang fyrir 20-25
þúsund manns. Leikvangurinn væri allt of lít-
ill. Í sama streng tók Eggert Magnússon, fyrr-
verandi formaður Knattspyrnusambandsins,
í sjónvarpsþætti á Stöð 2 og ítrekaði að slíkur
völlur yrði að vera yfirbyggður þar sem FIFA
og UEFA, Knattspyrnusamband Evrópu, gera
orðið kröfur um leiktíma að vetrarlagi. Frá því
var greint fyrr í vikunni að Knattspyrnusam-
bandið og stjórnvöld hefðu rætt óformlega um
stækkun Laugardalsvallar en Geir Þorsteins-
son taldi heppilegt að einkaaðilar kæmu að
stækkuninni og að þar gæti verið ýmis konar
þjónusta á borð við hótel eða veitingastaði. Ill-
uga Gunnarssyni, ráðherra íþróttamála, líst
enn fremur vel á þá hugmynd að fá einkaaðila
að verkinu.
Gerð slíks leikvangs er viðamikið og dýrt
verkefni. Því þarf að gaumgæfa alla þætti áður
en til kemur. Það snertir ekki síst aðstöðu
frjálsíþróttafólks sem líka keppir á Laugar-
dalsvelli. Gangi þetta hins vegar eftir verður
ekki aðeins til öflugur heimavöllur fyrir helstu
knattspyrnulandsleiki karla og kvenna, bikar-
úrslitaleiki og Evrópuleiki íslenskra félagsliða,
heldur aðstaða til tónleikahalds en stærstu
viðburðir stórhljómsveita víða um heim eru
einmitt á íþróttaleikvöngum sem rúma marga.
Athyglisverð hugmynd um stækkun Laugardalsvallar í einkaframkvæmd
Landsliðið vaxið upp úr vellinum
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
Fjórar sýningar að eigin vali
á besta verðinu.
Áskriftarkort
Borgarleikhússins
Vertu með
í vetur!
Miðasala
borgarleikhus.is
568 8000
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
MEÐ VIRÐINGU
OG KÆRLEIK Í 66 ÁR
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
www.útför.is
12 viðhorf Helgin 11.-13. september 2015