Fréttatíminn - 11.09.2015, Qupperneq 22
Unnsteinn Manuel Stefánsson, Salka Sól Eyfeld, Helgi Björnsson og Svala Björgvinsdóttir munu þjálfa keppendur í The Voice
Ísland í vetur. Þeim semur vel en hafa þó örlitlar áhyggjur af Svölu sem virðist ætla að stela öllum söngdívunum. Þættirnir hefja
göngu sína á Skjá Einum í október. Mynd/Hari
„Stærstu
stjörnur
hvers lands
þjálfa í
The Voice“
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
LEIKFÖNGIN
FÆRÐU Í KRUMMA
KÍKTU Á VEFVERSLUN
KRUMMA.IS
Nýjasta viðbótin í heimi raunveruleikasjónvarps hér á
landi, The Voice Ísland, fer í loftið á Skjá Einum í næsta
mánuði. Upptökur eru þó hafnar og fara fram í Atlantic
Studios á gamla varnarsvæðinu. Fréttatíminn kíkti í
heimsókn milli taka og spjallaði við þjálfarana fjóra, Sölku
Sól, Svölu Björgvins, Helga Björns og Unnstein Manuel.
V ið erum þjálfarar, ekki dóm-arar,“ er það fyrsta sem Salka Sól segir við blaða-
mann þegar spurt er út í nýja hlut-
verkið. „Það er ekki verið að setja
okkur í aðstæður þar sem við erum
að dæma annað fólk. Við erum að
búa til skemmtilega reynslu úr
þessu fyrir alla, bæði okkur og
keppendurna.“ Fjórmenningarnir
munu því ekki gegna hefðbundn-
um dómarastörfum heldur munu
þeir starfa náið með keppendum.
Ísland er 61. landið sem gerir sína
eigin útgáfu af þættinum og fóru
þjálfararnir á sérstakt undirbún-
ingsnámskeið áður en tökur hóf-
ust.
„Við fórum á námskeið hjá Hol-
lendingi sem er mikill Voice fræð-
ingur,“ segir Salka, en þættirnir eru
hollenskir að uppruna. „Hann var
mjög fróður og hamraði mikið á því
að við værum jákvæð og veittum ráð
sem gæfust þátttakendum vel.“
„Þar sem þátturinn er byggður
á erlendri fyrirmynd bjóst maður
kannski við að þurfa að fara eftir
skýrum fyrirmælum en skilaboðin
voru þau að vera við sjálf og passa
að keppendur verði það líka, sem er
frábært,“ segir Unnsteinn.
Í undirbúningnum fylgdust þau
einnig með útgáfu The Voice í öðr-
um löndum. „Ég komst til dæmis að
því að Filippseyjar eiga alveg magn-
aða söngvara,“ segir Svala. Aðspurð
um af hverju þau ákváðu að taka
verkefnið að sér eru þau sammála
um að þar hafi snið þáttarins ráðið
miklu. „Við þjálfararnir myndum
teymi með söngvurunum og reyn-
um að fá það besta út úr þeim. Þetta
fyrirkomulag gerir það að verkum
að þú ert að miðla þinni reynslu sem
söngvari og listamaður. Það er eitt-
hvað sem nýtur sín í þessum þáttum
og það fannst mér spennandi,“ segir
Helgi. „Það er mikið lagt upp úr ein-
staklingum sem hafa sinn eigin stíl,
rödd og pælingar um hvað þeir vilja
gera og verða,“ segir Svala, sem
heillaðist af The Voice við fyrsta
áhorf.
Söngdívurnar velja Svölu
Fyrir prufurnar voru 60 keppendur
valdir og stóð leitin yfir í allt sumar.
„Þetta eru allt rosalega góðir þát-
takendur og þeir eiga það skilið að
vera byggðir upp frekar en brotnir
niður og það ætlum við að gera,“
segir Helgi. „Þetta eru góðir söngv-
arar og við erum í mjög erfiðri stöðu
frá fyrsta þátttakanda,“ segir Unn-
steinn. Fyrstu prufurnar eru svo-
kallaðar blindprufur, en þá snúa
þjálfararnir baki í keppandann og
ef þeim líkar það sem þeir heyra ýta
þeir á takka og snúa sér við. Ef fleiri
en einn snýr sér við hefur kepp-
andinn fullt vald til að ákveða með
hverjum hann vill vinna. 32 kom-
ast áfram, en hver þjálfari velur 8
manns í sitt lið. Svala segir þessa
samkeppni milli þjálfaranna vera
skemmtilega.
„Við erum meira í því að keppa við
hvert annað og gera grín hvert að
öðru en ekki þátttakendum.“ „Svala
er líka búin að stela öllum söngdívun-
um,“ skýtur Salka inn í. „Henni geng-
ur langbest að safna í sitt lið.“ Svala
hlær og segir hlutverk þjálfarans
þó vera stressandi. „Ég varð mjög
stressuð að sitja í stólnum og þurfa
að útskýra af hverju ég sneri mér við
eða af hverju ég sneri mér ekki við.
Ég fékk alveg sting í magann. Ég er
mun vanari að syngja en tala.“
Tom Jones og Pharrell Íslands?
En er það þannig að keppendur velji
þjálfara í takt við aldur sinn og pers-
ónueinkenni?
„Já það er kannski örlítil tilhneig-
ing til þess, en það dreifist samt al-
veg,“ segir Helgi. „Sumir ákváðu sig
eftir söluræður frá okkur þjálfur-
unum þegar við ýttum öll á takkann
á meðan aðrir skráðu sig kannski
í þáttinn með ákveðinn þjálfara í
huga,“ segir Unnsteinn.
Líkt og í erlendu þáttunum koma
þjálfararnir úr ólíkum áttum en
Salka segir að það sé ekki hægt
sé að bera þau saman við þjálfara í
öðrum útgáfum af The Voice. Helgi
segir hins vegar að hægt sé að finna
einhver líkindi. „Þetta snið er í 60
öðrum löndum, svo það er kannski
að finna samsvörun einhvers stað-
ar. En maður sér að yfirleitt eru það
stærstu stjörnur hvers lands sem
eru valdar í hlutverk þjálfaranna
svo að því leyti er þetta eins,“ segir
hann og glottir örlítið. „Ég held að
það sé smá munstur svo þjálfararnir
höfði til sem flestra. Unnsteinn er
allavega klárlega Pharrell Íslands.
Svo var Tom Jones í Bretlandi,“ seg-
ir Svala og gýtur augunum á Helga.
Óvæntar uppákomur
Fyrsti tökudagurinn var uppfullur
af óvæntum uppákomum. „Ég varð
hissa í hvert einasta skipti sem ég
sneri mér við,“ segir Unnsteinn, en
það kom honum einnig á óvart hvað
hann þekkti fá andlit. „Miðað við
litla Ísland bjóst ég við að kannast
við allavega einn keppanda, en svo
var ekki.“
„Skemmtilegast fannst mér þegar
ég sá fyrir mér eldri mann en svo
sneri ég mér við og þá var þetta bara
einhver smá gutti,“ segir Salka og
Svala tekur undir. „Ég hélt í eitt
skiptið að ég væri að hlusta á fimm-
tugan rokkara en svo var þetta bara
tvítugur strákur.“
Þjálfararnir áttu eftir að hlusta
á seinni 30 keppendurna þegar
spjallið fór fram og var Unnsteinn
sannfærður um að fjölga stelp-
unum í sínu liði. „Ég þarf að finna
einhverja dívu, Svala má ekki stela
þeim öllum.“
Hrói höttur, sakamál, réttur og
tónleikaferðalag
Stemningin meðal þjálfaranna er
bersýnilega góð og þau eru spennt
að eyða meiri tíma saman í vetur.
„Við höfum aðeins verið að hittast,
en ætlum að gera meira af því,“
segir Salka, og Helgi bætir við:
„Það er matarboð hjá mér annað
kvöld.“
Þau viðurkenna hins vegar að
það geti verið mikið púsluspil að
ná þeim öllum saman, enda upp-
tekin í ýmsum öðrum verkefnum.
„Það er mikið að gera hjá Amaba-
dama og svo verð ég eitthvað í út-
varpinu,“ segir Salka, en auk þess
sér hún um tónlistina í uppfærslu
Þjóðleikhússins á Hróa hetti. Svala
mun eyða dágóðum tíma í flugvél
fram að jólum. „Við í Steed Lord
erum að taka upp nýja plötu og
túra. Ég mun því fljúga á milli sem
er bara mjög gaman. Venjulega
kem ég bara heim einu sinni á ári
en núna kem ég allavega þrisvar.
Þetta verður því þannig að þegar
ég verð á Íslandi get ég sett alla
mína orku í The Voice, sem er mik-
ill kostur.“
Helgi mun einnig verða mikið á
ferðinni. „Ég er að fara að taka upp
sjónvarpsþáttaseríu í Danmörku
og svo er ég með nýja plötu sem
ég þarf að fylgja eftir.“ Þá verður
Helgi með í söngleiknum Mamma
Mia sem Borgarleikhúsið frumsýnir
eftir áramót. Unnsteinn segir að þau
öfundi Svölu af því að geta einbeitt
sér algjörlega að The Voice á meðan
tökur standa yfir. „Ég verð áfram
með Hæpið á RÚV og svo er ég með
lítið hlutverk í Rétti sem sýnt verð-
ur á Stöð 2. Allt verður þetta sýnt
í október og þetta fer því kannski
gegn mínum gildum þegar kemur
að athygli, en þetta er allt eitthvað
sem mig langaði að prófa.“ Sú staða
gæti því komið upp að Unnsteinn
verði á þremur stöðvum lands-
manna samtímis í vetur.
Upptökur á The Voice Ísland fara
fram í nokkrum lotum og þegar 12
keppendur verða eftir mun þjóðin
sjá um að kjósa þá áfram og velja að
lokum sigurvegarann. Hægt er að
fylgjast með undirbúningi þáttanna
á hinum ýmsu samfélagsmiðlum.
„Þegar þættirnir hefjast verður svo
gaman að fylgjast með okkur prí-
vat á Instagram og Snapchat,“ segir
Svala.
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
22893
22 viðtal Helgin 11.-13. september 2015