Fréttatíminn - 11.09.2015, Qupperneq 24
Tek ekki
þátt í
meðal-
mennsku
Um síðustu helgi tryggði lið Breiðabliks sér Íslands-
meistaratitilinn í Pepsideild kvenna í knattspyrnu
eftir tíu ára hlé. Markahæsti leikmaður liðsins,
Fanndís Friðriksdóttir, er 25 ára og þrátt fyrir
ungan aldur var hún einnig í meistaraliði Breiða-
bliks sem vann titilinn fyrir tíu árum, þá aðeins 15
ára. Hún hefur spilað yfir 50 landsleiki fyrir Íslands
hönd og fór í atvinnumennsku til Noregs á sínum
tíma. Hún hefur gríðarlegt keppnisskap en segir þó
að það sé líf fyrir utan knattspyrnuna.
F
anndís Friðriksdóttir, fyrirliði Íslands-
meistara Breiðabliks, er þrátt fyrir ungan
aldur, ein reyndasta knattspyrnukona
landsins. Hún er fædd á Akureyri, en flutti
snemma til Vestmannaeyja þar sem hún
bjó til 14 ára aldurs. Þá flutti hún ásamt foreldrum
sínum upp á land og hennar ferill með Kópavogs-
liðinu hófst. „Ég spilaði einn leik með meistaraflokki
ÍBV þegar ég var 14 ára og skoraði eitt mark,“ segir
Fanndís þegar hún rifjar þetta upp. „Ég vildi ekkert
flytja upp á land en fylgdi auðvitað foreldrum mínum.
Ég valdi Breiðablik vegna þess að Úlfar Hinriksson
var að þjálfa hjá Blikunum ásamt Ernu Þorleifsdóttur
sem ég þekkti úr Eyjum,“ segir hún. „Ég fór bara
beint í annan flokk, svo ég æfði lítið með þriðja flokki.
Mér var tekið mjög vel og er mikill Bliki.“
Ég fer bara til toppliðs, ef ég fer
Líf knattspyrnufólks snýst meira og minna um íþrótt-
ina en Fanndís hefur áttað sig á því að það er til líf
fyrir utan boltann. Hún hugsar ekki mikið um fótbolta
þegar hún er ekki sjálf að spila hann. „Það er líf fyrir
utan boltann,“ segir hún. „Maður fattar það þegar
maður prófar að fara til útlanda að spila. Ég er bara
ósköp venjuleg 25 ára stelpa, held ég. Ég er í Háskóla
Íslands að læra ferðamálafræði og fór í rauninni í það
nám til þess að velja mér eitthvað,“ segir hún. „Ég er
að taka þetta í rólegheitum og er ekkert að stressa
mig á þessu. Fótboltinn er bara eins og full vinna allt
árið, fyrir utan tvo mánuði kannski. Maður er alltaf
að æfa.“
Ég er alveg opin
fyrir því að fara
eitthvert aftur,
en það verður að
vera almennilegt.
Ég nenni ekki að
fara í einhverja
meðalmennsku.
Ég vil þá bara fara
í topplið til þess
að berjast um
titla.
Framhald á næstu opnu
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
24 viðtal Helgin 11.-13. september 2015