Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.09.2015, Síða 26

Fréttatíminn - 11.09.2015, Síða 26
Fanndís fór til Noregs árið 2013 að reyna fyrir sér sem atvinnukona í knattspyrnu og dvaldi þar í eitt og hálft ár. Hún var ekki sátt og kom heim aftur. „Ég byrjaði á að fara til Kolbotn sem er lið í nágrenni Oslóar og var þar í eitt ár,“ segir hún. „Svo fór ég til Bergen og var þar í hálft ár. Liðið sem fékk mig þangað heitir Arnebjörner og það var ekki alveg staðið við gerða samninga þar,“ segir Fanndís. „Það var búið að lofa mér góðri íbúð í Bergen og kærastinn minn átti að fá vinnu og ýmislegt, sem síðan stóðst ekki,“ segir Fanndís en kærasti hennar til þriggja ára heitir Alexander Freyr Sindrason sem leikur knattspyrnu með Haukum. „Ég átti að búa ein- hversstaðar í burtu frá borginni og því sem var lofað var ekki að stan- dast og ég ætlaði ekki að láta bjóða mér það,“ segir Fanndís. „Ég dreif mig heim, þar sem félagaskipta- glugginn var opinn heima.“ Ertu ákveðin týpa? „Já mjög,“ segir hún og hlær. Fanndís segir muninn á íslenska boltanum og þeim norska alltaf fara minnkandi. Bestu liðin á Ís- landi gætu alveg gert góða hluti í norsku deildinni. „Munurinn er kannski mestur þegar kemur að lélegustu liðunum,“ segir Fanndís. „Lélegustu liðin í Noregi eru betri en þau sem eru lélegust hér heima,“ segir hún. „Það eru fleiri jafn góð. Ég sé ekki eftir því að hafa komið heim, sérstaklega ekki í dag. Daginn eftir að ég vann Ís- landsmeistaratitilinn,“ segir hún og hlær. „Ég er alveg opin fyrir því að fara eitthvert aftur, en það verður að vera almennilegt. Ég nenni ekki að fara í einhverja með- almennsku. Ég vil þá bara fara í topplið til þess að berjast um titla.“ Hætt að gefa boltann Fanndís er dóttir Friðriks Friðriks- sonar, fyrrverandi markmanns ís- lenska landsliðsins í knattspyrnu, og Nönnu Leifsdóttur sem keppti á skíðum á ólympíuleikunum í Sa- rajevo árið 1984 fyrir Íslands hönd. Hún segist þó ekki hafa verið mikið í íþróttum sem barn. „Ég lék mér sjaldan í fótbolta sem barn,“ segir hún. „Ég var yfirleitt í eltingaleik í kirkjugarðinum í Vest- mannaeyjum, eða einhversstaðar úti í hrauni að klifra eða slíkt. Fótbolti hefur aldrei verið mikið í hausnum á mér, fyrr en núna kannski,“ segir Fanndís. „Mínir draumar eru ekkert endilega að komast í eitthvert stórt lið eða slíkt. Takmarkið fyrir þetta mót var alltaf að vinna titilinn, og var það í fyrra líka þó það hafi ekki alveg gengið,“ segir hún. „Það voru pínu von- brigði. Í ár var þetta ekki spurning.“ Fanndís er markahæst í Pepsi- deildinni með 19 mörk og er það í fyrsta sinn sem hún skorar jafn mikið. „Ég hef alltaf verið dugleg að leggja upp,“ segir hún. „Oft átt úrslitasendinguna og slíkt. Ég er kannski bara hætt að gefa boltann,“ segir Fanndís og hlær. „Ég verð eiginlega að setja eitt um helgina svo ég fari í tuttugu mörk. 19 er leiðinleg tala,“ segir hún. Fanndísi líður vel hjá Breiðabliki og segir félagið vera betra en önnur lið erlendis þegar kemur að aðstöðu og umgjörð. Hún segir að félagið eigi að hafa það markmið að vinna á hverju ári. „Það er allt svo flott hérna,“ segir hún. „Aðstaðan, þjálf- arinn og starfsfólkið. Ástæðan fyrir því að við höfum ekki unnið titilinn í tíu ár er sú að það hefur vantað kjarkinn. Það þarf sterka persónu- leika til þess að spila í meistara- flokki. Það er gargað og gólað og PI PA R\ TB W A • S ÍA Gleraugnaverslunin þín MJÓDDIN Sími 587 2123 FJÖRÐUR Sími 555 4789 SELFOSS Sími 482 3949 frá 0 kr. Barnagleraugu (Já, þú last rétt!) Öll börn upp að 18 ára aldri eiga rétt á endurgreiðslu frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð vegna gleraugnakaupa. Þú getur fengið gleraugu hjá okkur á endurgreiðsluverði miðstöðvarinnar. fer fyrir brjóstið á mörgum,“ segir hún. Kvennaboltinn er að síast inn Misskipting milli kvenna og karla- boltans á Íslandi hefur verið mikið í umræðunni undanfarin misseri og hefur Fanndís haft skoðun á þeim hlutum. Hún segist þó sjá breyt- ingu á hverju ári. „Margt af þessu er bara klaufalegt,“ segir hún. „Eins og þetta með bikarana sem voru til umræðu í sumar. Strák- arnir voru með miklu stærri bikar en stelpurnar þó þeir væru á sama aldri. Það er bara klaufalegt. Það er árið 2015 og þetta á ekki að vera svona, en ég held að þetta hafi ekki verið gert með vilja. Þetta er þó að breytast. Umfjöllunin er að breyt- ast, en ef við biðjum ekki um hana þá er hún ekki til staðar. Ef áhuginn er svo ekki meiri á stelpnabolta þá þýðir ekkert að kvarta undan því,“ segir Fanndís. „Við verðum þá bara að halda áfram að gera vel og á endanum síast þetta inn. Ég held samt að HM kvenna, sem var í sumar, hafi alveg sýnt það að kvennafótbolti er líka skemmtilegur. Eins höfum við í kvennalandsliðinu smitað út frá okkur með góðum árangri. Við erum búnar að fara á tvö Evrópu- mót þó okkur hafi kannski ekki verið fagnað á Ingólfstorgi,“ segir Fanndís og glottir. „Það er heldur ekkert það sem við erum að biðja um. Ég veit að það eru miklu meiri fjármunir í gangi í karlaboltanum, en sumir hlutir eiga samt að ganga jafnt yfir, og þeir gera það oft. Það er mjög vel staðið að þessu hjá Breiðabliki. Kannski er það af því að við erum svo frekar,“ segir hún og hlær. „Það þarf stundum frekju til. Það er ekki hægt að ætlast til þess að eitthvað sé gert fyrir mann, þegar maður biður ekki um neitt.“ Keppnisskapið frá pabba Var aldrei pressa á þér frá pabba að verða markmaður eins og hann? „Nei, en ég hef keppnisskapið frá honum,“ segir Fanndís. „Ég man þegar pabbi var að spila með ÍBV og fór stundum með mig út að leika í fótbolta og hann leyfði mér aldrei að skora hjá sér. Ekki séns. Ég held að ég sé eins,“ segir hún. „Ég fór í fótboltaskóla Leiknis í sumar og tók þátt í einhverri vítakeppni hjá litlu krökkunum og vann. Ég ætlaði mér samt ekki að gera það,“ segir hún. „Það bara óvart gerðist og ég dauðskammað- ist mín. Ég er mikil keppnismann- eskja og finnst gaman að keppa. Ég er týpan sem telur allt á öllum æfingum. Mamma er líka mikil keppnismanneskja svo þetta er ekkert skrýtið,“ segir hún. „Stelp- urnar eru samt hættar að pirra sig á þessu.“ Fanndís segist þreytt á um- ræðunni um hvort leikmenn séu uppaldir hjá félögunum sem þeir spila með, og oftast er þetta öfund- sýki andstæðinganna sem kveikir þessa umræðu. „Mér finnst þetta fáránleg umræða,“ segir hún. „Ég var talin upp meðal leikmanna sem eru ekki aldir upp hjá Breiða- bliki en ég hef spilað allan minn meistaraflokksferil sem Bliki. Hef verið hér í 10 ár og elska Breiða- blik,“ segir hún. „Ég tel mig líka alda upp hjá ÍBV en umræðan fer alltaf af stað þegar liði gengur vel. Ef maður á sinn feril í einhverju liði þá er maður alinn þar upp. Það er einfalt. Það eru ekki margir KR- ingar í karlaliðinu hjá KR, og það talar enginn um þá sex útlendinga sem kvennalið Stjörnunnar hefur innanborðs. Enda er það fáránleg umræða,“ segir Fanndís. Lítið hjarta Fanndís er mikil fyrirmynd á vell- inum eftir tíu ára reynslu í meist- araflokki. Hún segir ungar stelpur í dag mjög efnilegar. „Margar af ungu stelpunum þekkja ekkert ann- að en að spila inni og þær eru marg- ar að spila eins og kempur þrátt fyrir ungan aldur,“ segir Fanndís. „Ég er að vísu af þeirri kynslóð líka að hafa æft inni allt mitt líf. Ég fór að vísu á eina æfingu á Vallargerðis- velli í Kópavogi þegar ég var fimm- tán ára. Það er að vísu skondið því ég ætlaði ekki að þora á æfinguna. Pabbi skutlaði mér í Hamraborg og ég átti að labba þaðan, en ég guggn- aði á því og settist í strætóskýlið til að taka næsta strætó heim. Þá keyrði vinkona mín úr liðinu fram hjá og stoppaði til þess að pikka mig upp. Ég þorði ekki annað en að fara með henni á þessa æfingu á mölinni. Ég er nefnilega með lítið hjarta þó ég sýni það sjaldan,“ segir Fanndís Friðriksdóttir. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is „Ég fór í fótboltaskóla Leiknis í sumar og tók þátt í einhverri vítakeppni hjá litlu krökkunum og vann. Ég ætlaði mér samt ekki að gera það. Það bara óvart gerðist og ég dauðskammaðist mín. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson 26 viðtal Helgin 11.-13. september 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.