Fréttatíminn


Fréttatíminn - 11.09.2015, Side 52

Fréttatíminn - 11.09.2015, Side 52
Einar Carl. Í vor hóf hann svo að setja saman sín eigin námskeið sem byggja á Movement Improvement. „Á námskeiðunum leitumst við eftir að auka hreyfigetu og styrk í æfingum sem að lang mestu leyti eru framkvæmdar með líkams- þyngd. Einnig er farið í hvernig best er að læra nýjar æfingar og stig- magna þær á hærra svið á skömm- um tíma.“ Æfingarnar snúast ekki eingöngu um styrk heldur stuðla þær einnig að betri almennri hreyfi- getu og liðleika. „Æfingarnar felast 52 heilsutíminn Helgin 11.-13. september 2015 Hreyfilist frá öllum heimshornum eykur hreyfigetu Einar Carl Axelsson, heilsu- nuddari og þjálfari, kennir fyrsta hérlenda námskeiðið í Movement Improvement, sem kalla mætti hreyfiflæði á íslensku. Einar Carl sérhæfir sig í hreyfiferlum og vinnur meðal annars með Annie Mist og Katrínu Tönju, fyrrverandi og núverandi hraustustu konu heims. Markmið Movement Improvement er að auka styrk og liðleika og dýpka þannig skilning iðkenda á hreyfigetu líkamans. U m er að ræða æfingakerfi þar sem æfingum úr hinum ýmsu greinum er blandað saman, til dæmis úr crossfit, fim- leikum, brasilísku danslistinni capoeira og svonefndum götufim- leikum eða parkour,“ segir Einar Carl Axelsson sem kynntist hrey- fiflæði í gegnum ísraelska vin sinn, Ido Portal. „Hann æfði capoeira þegar hann var ungur og langaði að teygja það form lengra og fór því að blanda saman alls konar hreyf- ingum úr bardagalistum, fimleik- um og fleira í eina hreyfilist,“ segir auk þess ekki í endalausum endurtekningum, heldur vinnum við frekar í að auka flækjustig æfinga sem krefst lið- leika og styrks,“ segir Einar Carl. Fyrir alls konar fólk með verki og vesen Einar Carl segir þessa tegund þjálfunar henta öllum. „Ég hef verið með dans- ara, húsmæður og keppnisfólk úr Mjölni með verki og vesen á sama tíma í tímum hjá mér.“ Þar sem unnið er með eig- in líkamsþyngd er hægt að finna erfið- leikastig sem hentar öllum. Að sögn Ein- ars Carls er ávinn- ingurinn af Move- ment Improvement f jölþættur. „Þetta snýst ekki eingöngu um að auka liðleika heldur að auka styrkinn samhliða og nýta hann til að fara dýpra í hverja æfingu.“ Sterkari án þessa að lyfta einu lóði Þorsteinn Ingi Valdi- marsson leitaði til Einars Carls vegna bakvandamála fyr- ir nokkru. „Ég fór til hans í nudd sem hjálpaði mér mikið, Einar Carl kenndi mér til dæmis ýmsar teygjuæf- ingar. Hann sagði mér svo frá þessu námskeiði og ég ákvað að slá til og sé alls ekki eftir því.“ Þorsteinn líkir námskeiðinu við töfra- brögð og segir að Einar Carl sé töfra- maðurinn. „Hug- myndafræðin er einföld og það er auðvelt að meðtaka skilaboðin. Æfing- arnar einkenn- ast af fjölbreytni, léttleika og það ríkir góður andi á æfingum og enginn t ími er eins.“ Eftir nokkrar vikur á námskeiðinu hefur Þorsteinn styrkst mjög mikið og er orðinn liðugri. „Verkurinn í bakinu hefur horfið, en það magnaða við þetta er að ég er búinn að styrkjast mikið án þess að lyfta einu einasta lóði.“ Einar Carl bauð upp á fyrstu Movement Imp- rovement námskeiðin í vor og fer áhuginn vax- andi. „Það er alltaf fullt í hádegistímunum og ég hef verið að bæta við tím- um klukkan 11. Auk þess eru alltaf tímar á morgn- ana.“ Tímarnir fara fram í sal Ferðafélags- ins í Mörkinni. Áhugasamir geta kynnt sér Movement Imp- rovement á Facebook síðunni Mobility Flex. Einar Carl Axelsson hefur sett saman námskeið fyrir þá sem vilja auka styrk og liðleika samtímis. Þjálfunin nefnist Movement Improvement og samanstendur af æfingakerfi þar sem æfingum úr hinum ýmsu greinum er blandað saman. „Þetta er þjálfun sem kemur á óvart og engir tveir tímar eru eins.“ Mynd/Hari. Gígja Þórðardóttir, sjúkraþjálfari og umsjónarmaður Heilsutímans. Heilsuumfjöllun í Fréttatímanum eflist Umfjöllun um heilsu í Fréttatím- anum mun aukast með haustinu. Fréttatíminn hefur hafið samstarf við sjónvarpsstöðina Hringbraut og doktor.is. Sjónvarpsþáttur- inn Heilsutíminn verður sýndur á mánudagskvöldum á Hringbraut í vetur. Auk þess mun Teitur Guð- mundsson læknir ganga til liðs við Heilsutímann og vera með fasta pistla í blaðinu og í sjónvarpsþætt- inum. Heilsutíminn verður hér eftir í Fréttatímanum eins og áður og á frettatiminn.is. Sjónvarpsþátturinn verður frum- sýndur á mánudagskvöldum klukk- an 20 og endursýndur nokkrum sinnum í vikunni. Umsjónarmaður með þáttunum er Gígja Þórðardótt- ir sjúkraþjálfari. Hún mun einnig hafa yfirumsjón með Heilsutíman- um í Fréttatímanum. Í Heilsutím- anum verður fjallað um allt það nýj- asta í heilsurækt og hvað fólk getur gert til að efla sjálft sig. „Þar verður meðal annars farið yfir nýjar rann- sóknir í heilsugeiranum, viðtöl við fagfólk og gefin góð ráð til lesenda varðandi mataræði, hugarfar, hreyf- ingu og margt fleira,“ segir Gígja. „Við munum einnig kynnast ýmsum heilsueflandi námskeiðum og fjalla nánar um heilsutengd efni sem við höfum tekið fyrir í blaðinu, líkt og heilsu móður og barns, svo dæmi sé tekið.“

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.