Fréttatíminn - 11.09.2015, Side 64
Þrátt
fyrir að
myrkrið
geti tekið
á sig hinar
ýmsu
myndir
þá var
ég bara
spennt-
astur fyrir
þessu
svartasta
myrkri
sem við
þekkjum.
Svartar myndir
úr úthverfum
Reykjavíkur
É g var með sýningu fyrir einu ári en það voru gömul verk. Ég hef ekki sýnt ný verk í tvö ár,“ segir Hall-grímur Helgason.
„Verkin eru flest unnin á þessu ári. Ég er fljótur að
vinna, en maður má samt ekki vera of fljótur,“ segir hann.
„Hver mynd á þessari sýningu tók svona eina viku eða þar
í kring í vinnslu. þetta eru allt svartar myndir. Þetta eru
allt myndir úr úthverfum Reykjavíkur, innkeyrslum um
nótt,“ segir Hallgrímur. „Bílar fyrir utan hús, nokkurs-
konar uppstillingar. Hugmyndin var nú blanda af mörgum
hlutum. Ég er oft að labba úti með hundinn og mér fannst
alltaf eitthvað heillandi við það að sjá heimili fólks upplýst
í skammdeginu,“ segir hann. „Svo langaði mig til þess
að mála myrkrið. Meirihluta ársins er myrkur hjá okkur
á Íslandi, en það hefur kannski ekki verið gert mikið af
því að ná því inn í myndlistina. Það tók mig svolítinn tíma
að finna rétta svarta litinn. Ég þurfti að prófa einhverjar
fimm tegundir þegar ég loksins fann þann rétta. Þrátt
fyrir að myrkrið geti tekið á sig hinar ýmsu myndir þá var
ég bara spenntastur fyrir þessu svartasta myrkri sem við
þekkjum,“ segir hann.
Hallgrímur er bæði þekktur fyrir myndlist sína sem
og ritverk. Hann vinnur nú að nýrri bók sem kemur út
fyrir jólin. „Þessar greinar eru mjög aðgreindar hjá mér,“
segir hann. „Það tekur alltaf smá tíma að fara í gang þegar
maður skiptir á milli, því maður vill ekki dreifa kraftinum
á milli þessara greina. Það kemur ný bók frá mér í næsta
mánuði og þetta er í fyrsta sinn sem ég skrifa í sjálfsævi-
sögustíl,“ segir hann. „Bókin fjallar um eitt ár í mínu lífi,
1981-1982, þegar ég var í námi í listaakademíunni í Mün-
chen. Það var kannski erfiðasti veturinn í mínu lífi,“ segir
hann. „Allavega var hann nógu erfiður til að vera efni í
bók. Ég mundi ekki endilega allt þegar ég byrjaði en um
leið og maður er að skrifa þá man maður allt. Þá fara hlut-
irnir að rúlla og eitthvað gerist. Allt í einu verður allt mjög
skýrt og skrítið hvernig þetta virkar,“ segir Hallgrímur
Helgason, rithöfundur og listmálari.
Sýning Hallgríms í Tveimur hröfnum stendur til 10.
október og allar upplýsingar um opnunartíma má finna á
facebooksíðunni Tveir hrafnar listhús.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Hallgrímur Helga-
son opnar í dag, föstudag, sýningu í listhúsinu Tveimur
hröfnum við Baldursgötu. Á sýningunni eru ný verk eftir
Hallgrím sem hann hefur unnið á undanförnum mánuðum.
Myrkrið er honum hjartfólgið í þessum myndum og segir
hann erfitt að koma íslensku vetrarmyrkri á prent. Hall-
grímur sýndi síðast ný verk fyrir tveimur árum og í næsta
mánuði kemur út ný bók eftir hann, þar sem hann rifjar
upp erfiðasta vetur sem hann hefur upplifað.
Myndlist sýning á nýjuM verkuM HallgríMs Helgasonar í tveiMur HröfnuM
Hallgrímur Helgason frumsýnir ný verk í
Tveimur hröfnum um helgina. Ljósmynd/Hari
64 menning Helgin 11.-13. september 2015