Fréttatíminn - 14.08.2015, Qupperneq 8
Áður var
enginn
ákveðinn
sem hafði
umsjón
með þessu.
Í Fréttatímanum síðastliðinn föstudag var fjallað um slysahættu sem getur
skapast við notkun útdraganlegra hundatauma í ákveðnum aðstæðum. Þar
var talað um að taumarnir væru kallaðir Flexi-taumar. Flexi er það fyrir-
tæki sem var fyrst á markað með tauma af þessu tagi og eru útdraganlegir
taumar því gjarnan kallaðir Flexi-taumar þó þeir séu framleiddir af öðru
fyrirtæki, svipað og talað er um „to google“, eða að gúggla, þó
verið sé að tala um leit með annarri leitarvél en Google.
Það var mat fréttamanns að það hefði meira upplýsinga-
gildi fyrir lesendur að nota þau heiti sem algengust eru
þegar talað er um tauma af þessu tagi Til að fyrirbyggja
misskilning vill Fréttatíminn því koma því á framfæri að
í fréttinni var ekki aðeins átt við útdraganlega tauma frá
Flexi heldur alla útdraganlega tauma. Með fréttinni fylgdi
einnig mynd af Flexi-taumi til að þeir sem þekkja ekki til
hundatauma átti sig betur á því hvers konar tauma er átt við.
Samgöngur Árétting vegna fréttar fréttatímanS
Á við alla útdraganlega tauma
B örnin finnast mun fyrr og við höfum mun betri aðgang að lög-reglunni eftir að þetta verkefni
hófst,“ segir Böðvar Björnsson, deildar-
stjóri Neyðarvistunar Stuðla, um sérstakt
12 mánaða átaksverkefni lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu til að koma í veg fyrir
að óæskilegir einstaklingar hýsi börn og
ungmenni undir lögaldri. Lögreglustjórinn
á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir
áframhaldandi fjárhagslegum stuðningi
frá velferðarráðuneytinu til að halda verk-
efninu úti en samkvæmt upplýsingum
Fréttatímans hafa ekki borist endanleg
svör.
Guðmundur Fylkisson yfirvarðstjóri
sem stýrir átaksverkefninu sagði í síðasta
Fréttatíma frá því að frá því verkefnið
hófst hafi tekist að minnka tímann sem leit
hefst að barni frá um 8 klukkutímum eftir
að leitarbeiðni berst niður í 20 mínútur.
Lögreglan fer með hluta þeirra barna sem
leitað er að á Stuðla og finnur Böðvar mik-
inn mun á samstarfi við lögregluna eftir
að verkefnið hófs. „Við getum alltaf haft
samband við Guðmund. Áður var enginn
ákveðinn sem hafði umsjón með þessu en
nú eru allar boðleiðir styttri og samstarf
lögreglu við fagaðila í málaflokknum hefur
verið til fyrirmyndar,“ segir hann.
Neyðarvistum Stuðla var breytt nokkuð
um síðustu áramót og plássum þar fjölgað
um eitt. Áður voru fimm pláss en Böðvar
segir að jafnaði hafi fjögur þeirra verið
nýtt á hverjum degi. „Nú erum við með sex
pláss; þrjú fyrir stráka, tvö fyrir stelpur og
eitt rými sem er ætlað fyrir sérstaklega
erfiðar vistanir eða jafnvel gæsluvarðhald,“
segir Böðvar. Hann segist ekki hafa tekið
það nákvæmlega saman hefur þó fundið að
nýting rýma á Neyðarvistun sé minni í ár
frekar en hitt. Þó sé fjöldi þeirra sem þar
eru vistaðir mjög breytilegur og jafnast
yfirleitt út þegar árin eru skoðuð í heild
sinni. Kynjahlutfall þeirra sem vistaðir eru
á Stuðlum er heldur jafnt.
Stuðlar heyra undir Barnaverndarstofu
en hún starfrækir einnig meðferðarúrræði
sem kallast MST, eða fjölþrepameðferð,
fyrir fjölskyldur unglinga með svo alvar-
legan vanda að vistun hans utan heimilis
er talin koma til greina en markmiðið er
að foreldrar verði bjargráða við leit barna
sinna. Þar er þeim því leiðbeint um ákveð-
ið verklag ef börn týnast og ef þau atriði
sem lögð er áhersla á virkar ekki að þá sé
rétt að hafa samband við lögreglu. Böðvar
segir þetta viðkvæman málaflokk og ein-
staka unglingum finnist það einhvers kon-
ar upphefð að lögregla leiti að þeim. Því sé
mikilvægt að leita allra annarra leiða áður.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
LögregLumÁL nýtt verkLag SkiLar Árangri
Týndu börnin finnast fyrr
Deildarstjóri Neyðarvistunar Stuðla finnur mikinn mun á því hversu fljótt týnd börn finnast eftir
að sérstakt átaksverkefni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hófst. Hann lýsir yfir ánægju
með samstarf við lögreglu og segir boðleiðir hafa styst mikið með tilkomu verkefnisins. Al-
gjört neyðarúrræði er að kalla til lögreglu vegna týndra barna. Framhald verkefnisins veltur á
stuðningi frá velferðarráðuneytinu.
Deildarstjóri Neyðarvistunar Stuðla segir merkjanlegan mun á því hversu fljótt týnd börn finnast eftir að lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu fór í sérstakt átak í málaflokknum.Ljósmynd/Hari
Opnunartímar Virkir dagar 11—18
Laugardagar 12—16
Síðumúla 21 s: 537 51 01 snuran.is
fæst hjá okkur
VW Up! frá aðeins:
1.790.000 kr.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
8 fréttir Helgin 14.-16. ágúst 2015