Fréttatíminn - 14.08.2015, Qupperneq 37
Kaffi- og
möndlugrautur
1/3 bolli hafrar
1 espresso eða 25-30 ml af sterku
kaffi
1/2 dós kaffijógúrt eða hrein jógúrt
50 ml mjólk (léttmjólk eða
möndlumjólk)
1 tsk chia fræ
1-2 tsk. möndlusmjör
1/2 banani
Nokkur bláber
1 tsk. möndlur
1 stk. hnetur að eigin vali (má sleppa)
Aðferð: Hrærið saman öllum
innihaldsefnunum nema banana, blá-
berjum og hnetum. Skerið bananann
í sneiðar og saxið möndlur og hnetur.
Hellið helmingnum af blöndunni í
krukkuna og raðið bananasneiðum
ofan á og dreifið möndlum yfir.
Hellið restinni af blöndunni yfir og
raðið afgangnum af banananum
og bláberjum ofan á og dreifið
afgangnum af möndlunum ykkar og
hnetum yfir. Geymið í lokaðri krukku
í ísskáp yfir nótt.
Berja- og
mangógrautur
1/3 bolli hafrar
2/3 bolli AB mjólk eða hrein jógúrt
1 tsk chia fræ
Frosið mangó
Ber að eigin vali, til dæmis jarðarber,
bláber eða hindber.
Einnig hægt að nota blönduð frosin
ber.
Kókosmjöl eða flögur.
Aðferð: Hrærið saman höfrum, AB
mjólk og chia fræjum í skál. Setjið
helminginn af blöndunni í botninn
á krukkunni. Bætið við mangó og
helming af berjunum ásamt kókos-
mjöli. Hellið restinni af blöndunni yfir
og bætið við restinni af berjunum
og stráið ef til vill meira kókosmjöli
yfir. Geymið í lokaðri krukku í ísskáp
yfir nótt.
Nesti í
krukku
G irnilegir grautar í krukku eru tilvaldir sem nesti í skólann. Þá er hægt að und-
irbúa í rólegheitum kvöldið áður og
losna þannig við stressið sem mynd-
ast oft þegar verið er að hafa sig til á
morgnana. Hér má finna hugmynd-
ir af tvenns konar krukkugrautum,
annar slær í gegn hjá krökkunum
en hinn er aðeins meira fullorðins.
Myndir/Getty
Gæsla Grunnskólar í kópavoGi
Dægradvöl við alla skóla bæjarins
D ægradvöl starfar við alla grunnskóla Kópavogsbæjar og stendur til boða fyrir öll
börn í 1. - 4. bekk. Dægradvöl er frjálst
tilboð þar sem börn dvelja við leik og
skapandi starf í umsjá starfsfólks eftir
að skóla lýkur, að því er fram kemur
á heimasíðu bæjarins. Börnin eru
skráð inn í Dægradvöl og fylgst vel
með hvar þau eru að leik og starfi uns
þau eru skráð út við brottför.
Opnunartími Dægradvalar er frá
því að skóladegi barnanna lýkur og
til klukkan 17. Boðið er upp á dagaval
og hægt er að velja mis langa vistunar-
tíma milli daga. Boðið er upp á vistun-
artíma til 14, 15, 16 eða 17. Dægradvöl
er opin alla daga sem grunnskólar
starfa og einnig allan daginn á starfs-
dögum kennara á skólatíma. Dægra-
dvöl er ekki opin í vetrarfríum skól-
anna. Starfsemi Dægradvalar hefst á
skólasetningardegi og lýkur á skóla-
slitadegi.
Sumardvöl fyrir börn fædd árið
2009
Frá síðastliðnum mánudegi, 10. ágúst,
til og með 21. ágúst er í boði ágústopn-
un dægradvala (Sumardvöl) við alla
grunnskóla í Kópavogi fyrir verðandi
6 ára bekk, þ.e. börn fædd árið 2009
en gert er ráð fyrir að þessi börn út-
skrifist af sínum leikskóla fyrir sum-
arfrí og hefji aðlögun að næsta skóla-
stigi Sumardvöl við sinn hverfisskóla.
Ágústopnun dægradvala er unnin
í anda þeirrar stefnu að skapa bætta
samfellu milli skólastiga. Markmið-
ið er að stuðla að vellíðan, öryggi og
jákvæðri aðlögun barnanna, jafnt
félagslega sem námslega, að umhverfi
grunnskólanna áður en kennsla hefst.
Sumardvöl byggir m.a. á þróunar-
verkefni sem unnið hefur verið á leik-
skólanum Fífusölum í samstarfi við
Salaskóla undanfarin ár. Síðastliðið
sumar var Sumardvöl í boði við flesta
alla skóla með góðum árangri en nú
í sumar verður í fyrsta skipti boðið
upp á Sumardvöl við alla grunnskóla
bæjarins.
Sumardvölin er opin frá klukkan 8
að morgni til klukkan 16 síðdegis og
geta foreldrar valið mislangan dvalar-
tíma yfir daginn. Tekið er á móti börn-
unum milli 8–9.
Boðið er upp á heitan mat í há-
deginu og hressingu fyrir og eftir
hádegi.
skólar og námskeið 37 Helgin 14.-16. ágúst 2015