Fréttatíminn - 14.08.2015, Blaðsíða 11
Heiða er ekki
farsælasti pólitíkus
landsins. Hún stýrði
baráttunni í Reykja-
vík þar sem þau
skíttöpuðu. En ég
held að hún sé búin
að læra af þessu og
þroskast.
Yfirburðir: Zeolith®-þurrkun skýtur
Siemens enn og aftur í fyrsta sæti!
Í nýjustu úttektum sænska neytendablaðsins Råd & Rön (apríl 2015) og
danska neytendablaðsins Tænk (apríl 2015) á uppþvottavélum frá ýmsum
framleiðendum hlaut Siemens uppþvottavélin SN 45M209SK hæstu
einkunn. Með næsthæstu einkunn í úttekt Tænk er Siemens uppþvottavélin
SN478S01TS. Þetta staðfestir yfirburði Siemens uppþvottavéla.
Vélarnar fá toppeinkunn, eins og fyrri sigurvegarar Siemens, fyrir
þurrkhæfni, þökk sé einstakri Zeolith®-þurrkun,
sem skilar sérlega þurru og glitrandi hreinu leirtaui.
www.sminor.is
Zeolith®-þurrkun byggist á að láta hið náttúrulega steinefni
seólít soga í sig raka og gefa frá sér hita.
Sjá nánar um úttektir neytendablaðanna á heimasíðu okkar.
HÆSTA EINKUNN Ap
ril
2
01
5
þurrkun
tíðar og ef vilji sé fyrir því innan
flokksins þá sé hún til í slaginn.
Þessi ummæli vöktu vitaskuld
mikla athygli og flestir fjölmiðlar
tóku þau upp. Guðmundur Stein-
grímsson svaraði með færslu á
Facebook í byrjun vikunnar. „Ég
hef engan áhuga á að taka þátt í
formannsslag. Átök um embætti
og völd innan stjórnmálaflokka
eru töluverð meinsemd, að mínu
viti,“ ritaði Guðmundur og lýsti því
jafnan yfir að hann myndi beita sér
fyrir því á ársfundi flokksins að
embætti innan hans; formennska,
stjórnarformennska og þingflokks-
formennska róteri á milli fólks í
flokknum. Þetta hefur síðan verið
kölluð boðhlaupsleið.
Var áfengisfrumvarpið þúfan
sem velti hlassinu?
Hver er svo orsök þessa upphlaups
Heiðu Kristínar? Er það bara
vegna óánægju með fylgi flokksins
eða á þetta sér dýpri rætur?
Fólk innan flokksins segir að
Guðmundi og Heiðu Kristínu hafi
komið ágætlega saman í upphafi
en þó hafi alltaf verið smá stirð-
leikar á milli þeirra og þau stund-
um ósammála um nálganir.
Mikið var gert úr því að þau tvö
störfuðu saman, hlið við hlið, for-
maðurinn og stjórnarformaðurinn,
þegar flokkurinn var stofnaður.
Þegar Heiða Kristín náði hins veg-
ar ekki kjöri í alþingiskosningun-
um fjarlægðist hún smám saman
kjarnastarf flokksins. Hún hætti
sem stjórnarformaður um síðustu
áramót. Þá mun hún hafa lýst því
yfir í heyrenda hljóði að hún geti
ekki starfað með Guðmundi.
Margir viðmælendur Frétta-
tímans vilja rekja upphaf óánægj-
unnar og fylgistapsins til áfengis-
frumvarpsins á Alþingi á síðasta
ári. Björt framtíð var í hugum
kjósenda hennar frjálslyndur
flokkur en tregða þingmanna
flokksins til að styðja frumvarp um
afnám einkasölu ríkisins á áfengi
passaði ekki við þá ímynd. „Þá fór
kúlstimpillinn af þeim,“ sagði einn
viðmælenda blaðsins.
Finnst flokkurinn orðinn of
formfastur
Sé teiknuð upp einföld sviðs-
mynd af átökunum í flokknum
eru tvær fylkingar sem takast á.
Annars vegar eru það Guðmundur
Steingrímsson formaður, Róbert
Marshall, hans nánasti samstarfs-
maður, og fylgjendur þeirra. Hins
vegar hinn svokallaði Reykjavík-
urarmur sem fylkir sér að baki
Heiðu Kristínar. Þar á meðal er
mikið af ungu fólki sem áberandi
var í starfi Besta flokksins og fólk
sem starfar nú í borgarmálunum.
Þessu fólki finnst Björt framtíð
vera orðinn of formfastur og hefð-
bundinn stjórnmálaflokkur.
„Mér finnst vandinn fyrst og
fremst vera sá að það er ákveðið
tengingarleysi. Það er alltaf verið
að bera á borð einhverjar tækni-
legar lausnir við tilfinningalegum
vandamálum. […]Mér finnst
flokkurinn hafa „formaliserast“
of mikið fyrir mína parta og mér
finnst hann vera að elta eitthvað
form sem er fyrirfram gefið í
pólitik. Og mér finnst það ekki
vera eitthvað sem er mikil eftir-
spurn eftir,“ sagði Heiða Kristín í
Vikulokunum.
„Þessi flokkur þarf að hætta
kjaftæðinu og fara að berjast fyrir
því að ungt fólk geti búið hérna
– að landið sé samkeppnishæft
við önnur lönd í Evrópu. Það þarf
að taka ákveðnari afstöðu,“ sagði
einn óánægður flokksmaður við
Fréttatímann.
Átakapólitík eða ekki
átakapólitík
Átök þessara tveggja fylkinga birt-
ust vel í kjöri á nýjum stjórnarfor-
manni í byrjun ársins. Á yfirborð-
inu létust allir vera vinir en innan
flokksins var vitað að tvær blokkir
tókust á. Brynhildur S. Björnsdóttir
var kandídat formannsins en Mar-
grét Marteinsdóttir kom frá Reykja-
víkurarminum. Margrét sigraði sem
kunnugt er í kjörinu en lítið hefur
farið fyrir henni síðan.
Sumir vilja reyndar meina að um-
mæli formannsins um að vilja engin
átök um embætti innan flokksins
séu hálf hjákátleg því ekki séu nema
nokkrir mánuðir síðan þessi barátta
um annað af stóru embættunum inn-
an hans fór fram. „Þá var verið að
vinna í fólki. Skrítið að tala núna um
að þetta sé úrelt,“ sagði einn heim-
ildarmanna blaðsins.
Tilbúin að kljúfa flokkinn?
Stóra spurningin er væntanlega
hvort að Heiða Kristín njóti al-
mennrar hylli innan Bjartrar fram-
tíðar og hvort raunhæft sé að hún
nái kjöri sem formaður, gefi hún
kost á sér. Almennir flokksfélagar
telja að hún hafi litið afar stórt á sig
eftir gott gengi með Besta flokkn-
um, hafi á stundum virkað hroka-
full. Fylgið í alþingiskosningum
og í borginni hafi svo verið undir
væntingum.
„Heiða er ekki farsælasti pólitíkus
landsins. Hún stýrði baráttunni í
Reykjavík þar sem þau skíttöpuðu.
En ég held að hún sé búin að læra
af þessu og þroskast,“ sagði einn
viðmælenda.
Í gærkvöldi, fimmtudagskvöld, var
boðaður fundur hjá Bjartri framtíð
og bjuggust viðmælendur Frétta-
tímans við því að nýjustu vendingar
yrðu þar til umræðu. Sér í lagi tillaga
formannsins. Miklar og líflegar um-
ræður munu hafa verið á Facebook-
síðu flokksfólks að undanförnu.
Ekki er gott að segja fyrir um
hvað verður en þó er ljóst að búast
má við öllu. Heyrst hefur af fundum
Heiðu með þingkonunum Björt
Ólafsdóttur og Brynhildi Péturs-
dóttur en ekki er vitað hvað þeim fór
í milli. Þá herma heimildir Frétta-
tímans að þegar sé farið að ræða
möguleika á því að Reykjavíkurarm-
urinn kljúfi sig frá Bjartri framtíð,
verði niðurstaða ársfundarins í sept-
ember þeim ekki að skapi.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
4,4%
fréttaskýring 11 Helgin 14.-16. ágúst 2015