Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.08.2015, Blaðsíða 60

Fréttatíminn - 14.08.2015, Blaðsíða 60
Kristín heldur tónleika í kvöld, föstudags- kvöld, í Mengi við Óðinsgötu. Sunna Gunnlaugsdóttir segir mikla grósku vera í íslenskum djassi. Ljósmynd/Hari  TónlisT AfAr fjölbreyTT dAgskrá á jAzzháTíð í reykjAvík Djassinn dunar í Hörpu um helgina Jazzhátíð í Reykjavík er haldin um helgina í 26. skiptið. Há- tíðin í ár er hin glæsilegasta og dagskráin afar fjölbreytt. Í ár var ákveðið að gera konur í djassheim- inum sýnilegri og segir Sunna Gunnlaugsdóttir, píanóleikari og einn skipuleggj- anda hátíðar- innar, alltaf fleiri konur stíga fram á sjónarsviðið í djassinum, sem í áratugi var einokaður af körlum. j azzhátíð í Reykjavík var sett með árlegri jazzgöngu. Undanfarin ár hefur verið skrúðganga niður Laugaveg að Hörpu þar sem hátíðin fer fram, en sökum vonskuveðurs, sem var í höfuðborginni á miðvikudag, var gangan gengin um húsakynni Hörpu og var mikil stemning um allt húsið. Hátíðin byrjaði svo formlega um kvöldið og stendur fram á sunnudag og verða yfir tuttugu tónleikar í öllum sölum hússins alla helgina. Sunna Gunnlaugsdóttir djasspíanisti og einn skipuleggj- enda hátíðarinnar segir hátíðina fara vel af stað og fagnar aðkomu kvenna í ár. „Þetta fór mjög vel af stað á miðvikudag þrátt fyrir veðrið, sem var ekki að spila djass með okkur,“ segir Sunna. „Skrúðgangan var því bara í Hörpu, sem var mjög skemmti- legt. Hátíðin er haldin í 26.sinn en fagnar 25 ára afmæli þar sem fyrsta hátíðin var haldin árið 1990,“ segir hún. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég tek þátt í skipulagningu á hátíð- inni. Pétur Grétarsson var búinn að vera framkvæmdarstjóri í 8 ár og núna erum við þrjú sem erum að skipuleggja þetta. Það má segja að það hafi þurft þrjá til þess að jafnast á við hann,“ segir Sunna. „Við ákváðum að gera konum hátt undir höfði á hátíðinni í ár, í tilefni af 100 ára kosningaafmæli kvenna og það eru margar konur að koma fram, innlendar sem erlendar. Það eru marg- ar konur sem læra djass en stundum hverfa þær eftir nám, og við erum búin að vera að leita að þeim. Það er mikil gróska í djasslífinu á Íslandi og það sést best í því að það eru 8 útgáfu- tónleikar á hátíðinni, sem er mjög skemmtilegt,“ segir Sunna. „Jazzhátíð í Reykjavík er uppskeruhátíð djass- leikara hér heima, sem og þeirra sem koma til okkar í tilefni af hátíðinni og dagskráin höfðar til mjög margra. Svo það er eitthvað fyrir alla á hátíðinni. Þetta er tónlistarhátíð,“ segir Sunna Gunnlaugsdóttir píanóleikari. Allar nánari upplýsingar um há- tíðina má finna á heimasíðunni www. reykjavikjazz.is. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is Sellóleikarinn Kristín Lárusdóttir heldur tónleika í kvöld, föstudagskvöld, í Mengi við Óðinsgötu. Kristín er klassískt menntaður selló- leikari. Hún hefur að auki menntað sig í barokk- tónlist, gömbuleik og djassi. Kristín hefur spilað með Íslensku óperunni, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, er meðlimur Fimm í Tangó og Reykjavík Barokk. Í apríl 2012 frumflutti Krist- ín á Íslandi, ásamt Kammerkór Suðurlands, hið stórkostlega verk Svyati eftir John Tavener fyrir einleiksselló og blandaðan kór. Kristín hlaut mikið lof fyrir flutning sinn á Tavener. Sellókennsla hefur verið eitt aðalstarf Kristínar síðastliðin 19 ár ásamt því að spila. Kristín lauk framhaldsprófi í raftónlist vorið 2013 og hlaut toppeinkunn fyrir lokatónleikana. Kristín gaf út sína fyrstu sólóplötu, Hefring, haustið 2013 með eigin tónsmíðum, útsetningum og sellóleik. Hún sá einnig sjálf um upptökur og hljóðblönd- un á þeirri plötu. Tónleikarnir hefjast klukkan 21 og er aðgangseyrir 2000 krónur.  TónleikAr klAssík á óðinsgöTunni Selló Stína í Mengi 60 menning Helgin 14.-16. ágúst 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.