Fréttatíminn - 14.08.2015, Blaðsíða 62
B jörninn, eftir William Wal-ton, er tuttugustu aldar ópera sem byggð er á sög-
um Chekhovs. Bryddað er upp á
nýju samtali við óperuformið á
óhefðbundinn hátt þegar óperan
hittir samtímaleikhúsið á hverfis-
barnum Players í Kópavogi. Einn
aðstandenda sýningarinnar, Pét-
ur Oddbergur Heimisson, segir
staðinn frábæran fyrir þessa teg-
und tónlistaruppfærslu. „Þetta
er í rauninni grín-ópera,“ segir
Pétur. „Tónlistin er ótrúlega flott,
hún hljómar langt frá Mozart eða
álíka klassískum meisturum. Það
er erfitt að læra hana en þegar
hún er komin í systemið hjá
manni er hún mjög skemmtileg
að syngja og hljómar mjög töff.
Við erum með frábæran leik-
stjóra í Tryggva Gunnarssyni
og svo er undirleikurinn allur á
píanói sem leikin er að Matthildi
Önnu Gísladóttur,“ segir Pétur.
Aðrir leikarar í sýningunni eru
þau Hugi Jónsson og Guja Sand-
holt ásamt Pétri.
„Hugmyndin kviknaði fyrir
rúmu ári. Okkur langaði að setja
upp öðruvísi óperu á Íslandi, sem
væri ekki steypt í sama mót og
venjan er,“ segir Pétur. „Hug-
myndin var að gera lágmenn-
ingaróperu og bar væri besti vett-
vangurinn fyrir það. Svo erum
við partur af Cycle listahátíðinni
og þá lá Players vel við höggi, þar
sem hátíðin fer fram í Kópa-
vogi,“ segir Pétur. „Það er mjög
þægilegt andrúmsloft á Players
og góður bar sem er partur af
okkar leikmynd, alveg fullkomið
fyrir okkar konsept,“ segir hann.
„Sagan gerist ekkert á bar en
við látum hana bara gerast þar.
Fíkniefni og hestar og allskonar
skrýtnir og skemmtilegir hlutir
koma þarna við sögu og þetta
er spennandi,“ segir Pétur. „Við
frumsýnum á sunnudaginn og
verðum með sýningar 18. 21. og
23. ágúst á Players, og verðum
svo með eina lokasýningu á barn-
um í Tjarnarbíói 27. ágúst svo
þetta verða bara fimm sýningar,“
segir Pétur Heimisson söngvari.
Hópurinn stendur fyrir söfnun
á Karolinafund fyrir verkefninu
og má styrkja það þar, undir
nafninu The Bear.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Hljómsveitin FM Belfast heldur tónlistarskemmtun
í Tjarnarbíói á laugardaginn. Í fréttatilkynningu
sveitarinnar segir sveitin þetta einstakt tækifæri til
þess að tryllast og skemmta sér, enda er FM Belfast
ein allra besta tónleikasveit landsins.
FM Belfast hefur verið iðin við tónleikahald er-
lendis á þessu ári og hefur mikið spilað í Þýskalandi
þar sem sveitin nýtur töluverðra vinsælda og mun
hún koma fram á tónlistarhátíð í Hamborg seinna í
mánuðinum ásamt tónlistarmönnum á borð við José
González og hljómsveitina Four Tet. Einnig skemmti
hún nýverið á þjóðhátíð í Vestmannaeyjum við góð-
an orðstír. FM Belfast gaf út breiðskífuna Brighter
Days fyrir síðustu jól og hlaut hún góðar undirtektir.
Á tónleikunum í Tjarnarbíói á laugardag er bannað
að sitja kyrr og verða því öll sæti fjarlægð af gólfinu
svo fólk geti sleppt fram af sér beislinu. Húsið opnar
klukkan 21 og er miðasala á www.midi.is -hf
Jussi Adler-Olsen. Ljósmynd/Hari
Ný bók frá Jussa
Áhugafólk um góðar spennusögur
getur sett sig í stellingar því sjötta
bók danska rithöfundarins Jussi
Adler-Olsen er komin út í íslensku.
Bókin nefnist Stúlkan í trénu og um-
fjöllunarefnið er sem fyrr Deild Q.
Söguþráður bókarinnar er á þá
leið að eldri lögreglumaður hringir
í Carl Mørck til að skýra honum
frá máli sem hefur plagað hann í
sautján
ár. Carl
vísar
honum
snarlega
frá en
daginn
eftir er
aftur
hringt:
þá hefur
maðurinn
stytt sér
aldur í sinni eigin starfslokaveislu.
Carl og félagar hans hjá Deild Q,
þau Assad og Rose, sjá sig tilneydd
að halda af stað og komast að því
hvað það var sem hann vildi þeim.
Meðfram þessu segir frá atburði
árið 1997 er fannst lík ungrar
stúlku á Borgundarhólmi. Ekið
hafði verið á hana á miklum hraða
og hún kastast upp í tré en bíl-
stjórinn stungið af. Málið var rann-
sakað en ekki upplýst. Habersaat
lögreglumaður vildi þó ekki gefast
upp og brátt snerist allt hans líf um
þetta slys – eða var það kannski
ekki slys?
Íslandsvinurinn Jussi Adler-Olsen
áformar að bækurnar um Deild
Q verði alls tíu svo hann er rétt
hálfnaður.
Kópavogur óperuuppfærsla á players á listahátíðinni CyCle
Fíkniefni, hestar og allskonar skrítnir hlutir
Það er ekki algengt að óperur séu fluttar á börum en um helgina mun óperan Björninn, eftir William Walton, verða flutt á veitinga-
staðnum Players í Kópavogi. Það er sviðslistahópurinn Sómi þjóðar sem stendur að sýningunni og er hún liður í listahátíðinni Cycle
sem opnar nú um helgina í Kópavogi.
Hópurinn sem stendur að Birninum er klár í slaginn fyrir helgina. Ljósmynd/Hari
tónlist fM Belfast í tjarnarBíói
Bannað að sitja kyrr
... bannað að
sitja kyrr og
verða því öll
sæti fjarlægð
af gólfinu
svo fólk geti
sleppt fram af
sér beislinu.
62 menning Helgin 14.-16. ágúst 2015