Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.08.2015, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 14.08.2015, Blaðsíða 20
Verðbólgan í enska boltanum Er Raheem Sterling 49 milljón punda virði? Er eðlilegt að hann hafi kostað meira en Sergio Aguero? Kostaði hann í raun meira en Aguero þegar allt er tekið með í reikninginn? Sérfræðingar hafa reiknað út fótboltaverðbólgu og þeirra útreikningar sýna að á verðlagi dagsins í dag kostaði Aguero í raun mun meira en Sterling. Dýrastur allra er svo Andriy Shevchenko. M ikil umræða hefur verið í fótboltaheim-inum um verðlag á leikmönnum í sumar. Sér í lagi þykir dýrt pundið í ensku leik- mönnunum og Rio Ferdinand lýsti því sem „brandara“ á dögunum að Raheem Sterl- ing hafi kostað 50 milljónir punda þegar Manchester City keypti hann frá Liver- pool. Sér í lagi þegar það væri skoðað í samhengi við þær 38 milljónir sem Sergio Aguero kostaði fjórum árum fyrr. En þ et t a er kannski ekki alveg svo einfalt . Um nokkurra ára skeið hafa tveir fót- boltasérfræð- ingar, Paul Tomkins og Graeme Riley, unnið að því sem þ e i r k a l l a Félagsskiptavísi- töluna (Transfer Price Index - TPI) en við út- reikning hennar hafa þeir reiknað út meðal- verð sem greitt hefur verið fyrir leikmann í ensku úrvalsdeildinni á hverju tímabili. Ár frá ári mæla þeir svo breytingar á þessu meðalverði og út- koman er það sem þeir kalla fótboltaverðbólga. Samkvæmt útreikn- ingum þeirra kostuðu kaupin á Aguero í raun 66 milljónir punda á verð- lagi dagsins í dag. Og hinn yfirlýsingaglaði Rio Ferdin- and er einmitt með dýrustu leikmönnum sögunnar. Tvö félagsskipti hans komast á topp 20 yfir dýrustu félags- skiptin í enska boltanum. Meðalverð leikmanna tvö- faldast frá 2012 Frá 1992, á meðan hefðbundin verð- bólga í Bretlandi hefur ekki einu sinni tvöfaldast, hefur kostnaður við kaup á leikmönnum ellefu- faldast. Alan Shearer var seld- ur til Blackburn árið 1992 fyrir metfé, 3,3 milljónir punda, sem reiknast á 5,9 milljónir punda á hefðbundnu verðlagi dagsins í dag. En þegar sölufé Shearers er reiknað með vísitölu Tomkins og Ri- ley er það 37 milljónir. Það er aðeins nær raunveruleikanum þegar um er að ræða eftirsóttasta enska framherjann á markaðinum, 22 ára gamlan. Hver er svo ástæðan fyrir þessu? Ósköp einfaldlega auknar vinsældir enska boltans og sífellt stærri sjón- varpsréttarsamningar. Samkvæmt vísitölunni lækkaði verð á leikmönn- um árið 2003 þegar virði sjónvarps- réttarsamningsins fyrir 2004-2007 var lægra en þess fyrri og útlit á markaði var svart. Á árunum 2008 til 2013 var verðið líka sveiflukennt í takt við efna- hagsástandið og yfirvofandi reglur um fjárhagsafkomu knattspyrnuliða. Síð- ustu tveir sjónvarpsréttarsamningar hafa hins vegar hleypt öllu upp í loft og meðalverð á knattspyrnumanni í ensku úrvalsdeildinni hefur nær tvöfaldast frá 2012. Spikfeitir sjónvarpsréttarsamn- ingar kynda verðbólgubálið Þau lið sem eyddu miklu á samdráttar- tímum í boltanum skera sig úr á verð- lagi dagsins í dag og virðast því mun dýrari. Þegar Chelsea og Manchester United punguðu út 20-30 milljónum punda í leikmenn á árunum 2002-2004 voru aðrir klúbbar í vandræðum vegna samdráttar í tekjum af sjónvarps- samningnum. Þegar nýr og spikfeitur sjónvarpsréttarsamningur tók gildi árið 2008 tók landið að rísa á ný. Þeg- ar nýr samningur tók gildi aftur 2013 hækkaði kaupverð á leikmönnum til muna og nú er búið að semja upp á nýtt. Að ári tekur gildi nýr sjónvarps- réttarsamningur sem eykur tekjur ensku liðanna úr þremur milljörðum punda í rúma fimm milljarða. Því má búast við að verð á leikmönnum hækki enn frekar á næsta tímabili. Fólk ætti því kannski að staldra að- eins við áður en það skammast yfir því hverjir séu fimmtíu milljón punda menn og hverjir ekki. Fimmtíu millj- ón punda maður frá 2010, Fernando Torres, er 72 milljón punda maður á verðlagi dagsins í dag. Bæði Torres og Rio Ferdinand voru margreyndir landsliðsmenn þegar þeir voru seldir fyrir metfé. Í dag kostar 20 ára, afar efnilegur strákur, 50 milljónir punda. Hinn ungi Ra- heem Sterling hefur verið á allra vörum í sumar eftir að hann var seldur frá Liver- pool til Manc- hester City á 49 milljónir punda. Ljósmynd/NordicPho- tos/Getty H eim ildir: Vice.com , Tom kinstim es.com . Leikmaður Keyptur til Verð* 1. Shevchenko Chelsea 83 2. Rooney Man. Utd. 82 3. Rio Ferdinand Man. Utd. 82 4. Essien Chelsea 78 5. Drogba Chelsea 73 6. Torres Chelsea 72 7. Shearer Newcastle 67 8. Aguero Man. City 66 9. Wright-Phillips Chelsea 63 10. Veron Man. Utd. 61 11. Carvalho Chelsea 61 12. di Maria Man. Utd. 59 13. Reyes Arsenal 58 14. Duff Chelsea 56 15. Crespo Chelsea 55 16. Mutu Chelsea 52 17. Rio Ferdinand Leeds 52 18. Hazard Chelsea 52 19. Owen Newcastle 51 20. Carroll Liverpool 50 21. Carrick Man. Utd. 50 22. Yorke Man. Utd. 49 23. Sterling Man. City 49 24. Özil Arsenal 49 25. Makelele Chelsea 46 26. Tevez Man. City 44 27. Cole Man. Utd. 44 28. Robinho Man. City 44 29. Adebayor Man. City 44 30. Hasselbaink Chelsea 43 31. Cisse Liverpool 43 32. Ashley Cole Chelsea 43 33. Mata Man. Utd. 43 34. Saha Man. Utd 42 35. Heskey Liverpool 42 36. van Nistelrooy Man. Utd. 41 37. Veron Chelsea 41 38. Berbatov Man. Utd. 41 39. Stam Man. Utd. 41 40. Oscar Chelsea 41 41. Ronaldo Man. Utd 40 42. Ferreira Chelsea 40 43. Mata Chelsea 40 44. Nasri Man. City 40 45. Dzeko Man. City 40 46. Robben Chelsea 40 47. Yaya Touré Man. City 39 48. van Persie Man. Utd. 39 49. Torres Liverpool 39 50. Lescott Man. City 38 Dýrustu leikmenn sögunnar í enska boltanum *Kaupverð á verðlagi ársins 2015 í milljónum punda miðað við hæsta mögulega verð kaupsamnings leiðrétt fyrir fótboltaverðbólgu. www.odalsostar.is TINDUR OSTUR ÚR SKAGAFIRÐINUM Þessi bragðmikli meðlimur Óðalsfjölskyldunnar er framleiddur í Skagafirði og nefndur eftir fjallinu Tindastól. Tindur er einstakur ostur sem fengið hefur drjúgan þroskunartíma þar til hinu einkennandi þétta bragði hefur verið náð. Óðals Tindur er sérstaklega bragðmikill, hæfir við ýmis tækifæri og er dásamlegur einn og sér. Tindur parast vel með sterku bragði enda lætur hann fátt yfirgnæfa sig. 20 fótbolti Helgin 14.-16. ágúst 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.