Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.08.2015, Síða 27

Fréttatíminn - 14.08.2015, Síða 27
Eclipse borð Verð frá 34.900 kr. ⁄ ⁄ M-sófi Verð frá 239.900 kr. ⁄ ⁄ Catifa 80 hægindastóll Verð frá 214.900 kr. ⁄ ⁄ 4240 Octo ljós Verð 144.900 kr. 4210 standlampi Verð 154.900 kr. ⁄ ⁄ Nordic Plain gólfmotta Verð á m2 74.900 kr. ⁄ ⁄ Arper púðar Verð 28.900 kr. ⁄ ⁄ Manhattan teppi Verð 18.900 kr. Omaggio thermobolli Verð 3.990 kr. ⁄ ⁄ Botanica vasi Verð 11.490 kr. GÓÐ HÖNNUN FEGRAR HEIMILIÐ ÞITT HEIMILI – ÞÍN STUND OPIÐ VIRKA DAGA KL. 11–18 • HLÍÐASMÁRA 1 • 201 KÓPAVOGUR • 534 7777 • modern.is Vönduð hönnun, fagurlega unnin húsgögn og munir eru hlutir sem halda verðgildi áratugum saman. Í Módern bjóðum við það besta í evrópskri hönnun og leggjum metnað í fallegar útstillingar sem gefa viðskiptavinum okkar hugmyndir og innblástur. Það er mikilvægt að vanda valið og sérfræðingar verslunarinnar eru ávallt til taks með fróðleik og ráðgjöf byggða á vöruþekkingu og þrautþjálfuðu auga fyrir samræmi og stíl. PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 53 13 9 Af hverju var Hjalti sá sem þú sást fram- tíð með? „Það er svo lítið vesen á honum,“ segir Margrét. „Hann er ekki fyllibytta að leita að viður- kenningu. Hann er bara svo hlýr og góður og ótrúlega fallegur,“ segir hún og flissar. „Hugsandi manneskja. Það er ekkert jafn kynþokkafullt og maður sem er góður faðir.“ Er erfitt fyrir hann að vera í sambandi við konu sem er jafn áberandi og þú ert? „Nei. Hann er ekki bjáni. Ég efast um að kona fengi þessa spurningu – finnst þér erf- itt að vera í sambandi með svona áberandi manni?“ segir Margrét. Bómull um börnin Margrét hefur ekki áhyggjur af því að vera of áberandi, eða að fólk fái nóg af sér. Hún er á því að þegar fólk er í hennar stöðu, að vinna við margt í einu þá sé nauðsynlegt að vera sýnileg. „Það er fullt af fólki sem fær nóg af mér, en það er bara eitthvert leiðin- legt fólk,“ segir hún. „Ég hef aldrei ætlast til þess að ég sé einhver þjóðargersemi. Ef enginn veit ekki af því sem ég er að gera þá kemur enginn að sjá sirkusinn, eða í dans- kennslu. Ég þarf að vera sýnileg ef ég ætla að vera í öllum þessum vinnum. Ég tek allt- af pásur inn á milli,“ segir hún. „Sirkusinn er að fara í vetrarham og þá er ég ekkert í honum. Þá tekur annað við. Ef einhver fær nóg af mér þá er bara hægt að slökkva á tölvunni og fara út að hlaupa,“ segir Mar- grét. „Það er alveg hægt að velja það sem maður fylgist með. Mér finnst líka sum um- fjöllun svo leiðinleg. Eins og þegar ónefnt blað fór að fjalla um ástarlíf mitt þegar við Hjalti vorum nýbyrjuð saman, við vorum við ekki búin að tala við börnin um það. Okkur væri alveg sama ef við værum bara tvö, en það eru fleiri sem koma að þessu sambandi,“ segir Margrét. „Þegar ég er ástfangin þá er ég til í að standa uppi á Esj- unni og garga það yfir alla, en þegar það eru tvær litlar manneskjur með í dæminu þá er þetta spurning um tillit. Ég skrifaði facebook status þar sem ég bað fólk um að setja eitthvað annað yfir þessar forsíður í verslunum í Vesturbænum, sem gekk mjög vel. Það myndaðist smá bómull um þetta,“ segir Margrét. Þarf mínar kaloríur Margrét veit ekki hvað mun taka við í vetur en er þó með nokkur tilboð á borðinu sem skýrast á næstu dögum. Hún verður ekki í Gettu betur þriðja árið í röð. „Ég er alltof sæt til þess að vera gáfuð,“ segir hún og hlær. „Fólki fannst það að minnsta kosti því það var alltaf talað um mig sem stigavörð en ekki höfund spurninga. Fólk náði því bara ekki að stelpa gæti samið spurningar.“ Margrét hefur verið dugleg á samskipta- miðlinum Twitter þegar kemur að Euro- vision í umræðu undir merkinu #12stig, og hana dreymir um starf Felix Bergsson- ar. „Ég er með einlægan áhuga á þessari keppni og það er bara tímaspursmál hve- nær Felix hættir,“ segir hún. „Hann fer að komast á heimsreisualdurinn og þá er ég til- búin,“ segir hún og hlær. „Twitter umræðan er bara skemmtileg, en það er þunn lína á milli þess að vera fyndin eða dónaleg og ég hef oft eytt einhverju sem ég hef skrifað. Þegar ég fylgist með keppninni þá skil ég þá sem horfa á HM í fótbolta. Þetta er alveg sami pakkinn,“ segir hún. „Það eru samt margir í þessari umræðu bara til þess að vera með móðganir, sem er leiðinlegt.“ Margrét hefur einnig verið iðin á miðl- unum að lýsa aðdáun sinni á KFC. Sem er kannski ekki eitthvað sem konur tala mikið um. „Ég er bara svo hrifin af heiðarlegum feitukrakkamat,“ segir hún. „Ég þarf mínar kaloríur í því sem ég er að gera, og það er auðvelt að fá þær þarna. Ég er í forsvari fyrir Facebooksíðuna „Við viljum KFC í 101“, og það eru margir með mér í þessu og þetta er skemmtilegt áhugamál. Samt er maður dæmdur fyrir að finnast þetta gott af því að maður á að vera fínn og flottur. Mér finnst þetta bara gott,“ segir Margrét Erla Maack. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is viðtal 27 Helgin 14.-16. ágúst 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.