Fréttatíminn - 14.08.2015, Qupperneq 28
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
LEIKTÆKI
LEIKFÖNG
REIÐHJÓLAGRINDUR
KÍKTU Á VEFVERSLUN
KRUMMA.IS
BJÓDUM BÖRNIN VELKOMIN
BARNAHORN
LEGO BORÐ
LESTARBORÐ
VÖLUNDARHÚS
V
ið leggjum hvað
mesta áherslu á að
breyta orðræðunni
um karlmennsku og
hvað það er að vera
karlmaður í dag,“ segir Heimir
Snorrason, sálfræðingur hjá Kvíða-
meðferðarmiðstöðinni. Hann stýrir
þar námskeiðinu „Styrkur og sátt“,
ásamt Ásmundi Gunnarssyni sál-
fræðingi, en námskeiðið er ætlað
karlmönnum sem vilja efla öryggi
og áræðni. „Við höfum í mörg ár
verið með sjálfsstyrkingarnám-
skeið en þar voru aðeins um eða
undir 10% þátttakenda karlmenn
sem er í hrópandi mótsögn við allar
rannsóknir á skertu sjálfsmati sem
sýna að það kemur fram nánast jafn
mikið hjá kynjunum. Í fyrravetur
byrjuðum við því með námskeið
sem eru aðeins fyrir karlmenn
þar sem við ræðum meðal annars
kynjamun og sjálfsmynd karla út
frá nýjum áherslum í samfélaginu,“
segir hann.
Heimir segir flesta þeirra sem
sækja námskeiðin vera í kringum
fertugt en alls hafi karlmennirnir
verið frá tvítugu og upp í sjötugs-
aldur, sem eiga það sameiginlegt að
kljást við sjálfsmat. „Lágt sjálfs-
mat er ákveðin skekkja, það er til-
hneiging til að meta sjálfan sig með
neikvæðum hætti. Þessi tilhneiging
til neikvæðrar sjálfskoðunar hefur
í kjölfarið áhrif á alla okkar hegðun
og hugsun. Oft á þetta upptök sín í
æsku og til þess hvernig okkar nán-
ustu komu fram við okkur á heimili,
skóla eða félagsstörfum. Þess ber
þó að geta í lang flestum tilfellum
reyna foreldrar sitt besta í upp-
eldi barna sinna. Foreldrar okkar
eru sjálf afsprengi síns uppeldis
sem litar hegðun þeirra gagnvart
börnum sínum. Ég get sagt fyrir
mitt leiti sem faðir tveggja barna að
þetta er flóknasta verkefni sem ég
mun nokkurn tíman takast á við.
Í sumum tilfellum er þó um skýra
vanrækslu, misnotkun eða óhóflega
Endurskil-
greining karl-
mennskunnar
Skert sjálfsmat er jafn algengt hjá körlum og konum, þrátt fyrir
það sem margir halda. Heimir Snorrason sálfræðingur ákvað í
félagi við Ásmund Gunnarsson að halda sérstök námskeið fyrir
karla til að aðstoða þá við að byggja upp sjálfsöryggi og áræðni.
Hann segir marga karlmenn ekki hafa náð að fóta sig í samtím-
anum þar sem konur eru í mikilli sókn, þeir upplifa jafnvel ógnun
og þurfa aðstoð við að læra að vinna með tilfinningar sínar.
gagnrýni að ræða. Stundum er þó erfitt
að finna ákveðin upptök neikvæðrar
sjálfsmyndar. Hún hefur þá bara þróast
með tímanum og getur svo styrkst
í sessi eftir áföll hvers konar, eftir
skilnað eða eftir uppsögn í vinnu.
Hún mótast smátt og smátt,“
segir hann.
Konur í sókn
Samhliða jafnréttisbaráttu
kynjanna hefur hlutverk
karlmanna í samfélaginu
breyst og eiga margir karl-
menn erfitt með að fóta
sig í breyttum aðstæðum.
Heimir segir að þeir Ás-
mundur hafi viljað skoða
hvað aðgreinir karlmenn
frá konum þegar kemur
að því að vinna með skert
sjálfsmat en í gegnum árin
höfðu þeir tekið eftir eins
konar óþoli hjá sumum
karlmönnum fyrir sjálfs-
vinnu. „Þetta birtist sem
einskonar fordómar gagnvart
því að vinna með tilfinningar
sínar og við spurðum okkur
hvers vegna karlmenn væru
frekar í þeirri stöðu en konur.
Í umræðum um kynin nú á
dögum hafa konur mikinn
meðbyr og margir karl-
menn eiga erfitt með það.
Ef við líkjum þessu við
fótboltalið þá er eins og
karlmenn séu Manchester
United sem hafa verið 5-0
yfir frá örófi alda. Síðan
byrjar litla liðið að sækja á
og skora fjöldann allan af
mörkum. Staðan er orðin
5-4 og við karlmenn eru í
sjokki yfir því að horfa á
okkar fastmótuðu félags-
sálfræðilegu hugmyndir
um eigin yfirráð eigi ekki
lengur við rök að styðjast.
Ég held að þetta geti út-
skýrt óþol margra karlmanna fyrir
femínisma og umræðu um jafnrétti
kynjanna. Við upplifum ógnun,“ segir
Heimir. Hann bendir þarna á kollega
sína, háskólamenntaða karlmenn, sem
hafa verið í fararbroddi þegar kemur
að samfélagsumræðu og segir þá ekki
hafa verið nógu duglega á að ræða jafn-
réttismál. „Sumir þeirra hafa eflaust
óttast að ef þeir spyrja „Hvað um okkur
karlana?“ þá verði orð þeirra mistúlkuð
sem einhvers konar afturhvarf til „mas-
kúlín“ samfélagsviðhorfa. Reynsla
okkar af námskeiðunum er að karlmenn
eru oft brenndir af því að hafa reynt að
koma áhyggjuefnum sínum á framfæri
en hafa jafnvel gert það klaufalega og
orðið afturreka með athugasemdir sínar
vegna þess. Þeir fá karlrembustimpilinn
og bregðast við með því að fara í vörn.
Oft byrjar þetta sem spurning þeirra út í
samfélagið „Hvað um mig?“ sem endur-
speglar ótta þeirra og vanmátt sem
getur þróast út í heift og jafnvel ofbeldi
ef þeir finna orðum sínum engan hljóm-
grunn. Karlmenn sem hafa alist upp
við steríótýpísk kynjahlutverk eiga yfir-
leitt erfiðara með að tileinka sér nýjar
áherslur í jafnréttismiðaðri heimi,“
segir Heimir.
Karllæg skekkja á toppnum og á
botninum
Hann bendir á að þegar karlmenn vekja
athygli á einhvers konar kynbundnu
óréttlæti fái þeir oftar en ekki að heyra
að meirihluti stjórnenda fyrirtækja séu
karlmenn, flestir milljarðmæringar
heimsins eru karlmenn og þeir sem
stýra ríkisstjórnum eru að stærstum
hluta karlmenn. „Það er gríðarleg
skekkja á toppnum – karllæg skekkja
– en það er líka skekkja á botninum.
Karlar eru líklegri til að svipta sig
lífi en konur þó konur geri fleiri
tilraunir. Fangar eru í miklum
meirihluta karlmenn. Með auk-
inni vélvæðingu og sjálfvirkni
á vinnustöðum eiga ómennt-
aðir karlmenn erfiðara með
að fá vinnu. Krafan um
líkamlegan styrk verður sí-
fellt minni samfara þessari
þróun á meðan mikil eftir-
spurn er eftir störfum
sem krefjast þess sem
kallast steríótýpískir
kvenlegir eiginleikar,
svo sem við umönnun
ungra barna, matargerð
og ýmis heilbrigðisstörf.
Þetta er þróunin og með
henni er grafið undan
hinni hefðbundnu stöðu
karlmannsins. Samfé-
lagið er að breytast og
þeir karlmenn sem lifa
enn í þeim heimi að mestu
máli skipti sé að vera harður,
duglegur og taka á málum
með hörku eiga sífellt erfiðara
með að fóta sig,“ segir Heimir.
Hann hrekur burt mýtuna um
að karlmenn hafi almennt hærra
sjálfsmat en konur því fjöldi rann-
sókna sýni einfaldlega annað.
„Það er staðalímynd karlmanns
að vera með hátt sjálfsmat. Ef mér
sem karlmanni finnst ég vera vit-
laus, ófyndinn og leiðinlegur þá er
það á skjön við það sem ég held að
aðrir karlmenn upplifi hjá sjálfum
sér enda þykir karlmannlegt að
bera sig alltaf vel þrátt fyrir innri
vanlíðan. Við berum okkar innri
mann í sífellu saman við ytra
byrði annarra,“ segir hann.
Jafn neikvæð líkams-
skynjun
Heimir telur að ein ástæða þess að fólk
telur sjálfsmat mismunandi eftir kynjum
eiga einnig rætur að rekja til misvísandi
rannsókna á líkamsskynjun kynjanna.
„Þar var sérstaklega spurt um hvort fólk
myndi vilja léttast en konur vilja það í
flestum tilfellum. Karlar vilja hins vegar
ýmis léttast eða þyngjast, það er missa
fitu eða byggja sig upp af vöðvum. Í nið-
urstöðum olli þetta skekkju. Neikvæð
líkamsskynjun er jafn algeng hjá konum
og körlum. Algengast er að konur vilji
léttast. Karlmenn vilja hins vegar verða
grennri, verða vöðvastæltari, verða
hávaxnari, með stærri getnaðarlim, með
meira hár á höfðinu eða með minna lík-
amshár. Þetta síðastnefnda er reyndar
frekar nýtilkomið en hér áður fyrr vildu
menn helst vera með loðna bringu. En
það er margt sem karlmenn vilja breyta
hjá sér,“ segir hann.
Tíu ára sonur Heimis hefur einnig
tekið eftir ólíkum birtingarmyndum
kynjanna í barnaefni en það er af sem
áður var þegar karlkyns persónurnar
voru alltaf þær hraustustu. „Hann benti
mér á sem dæmi að í teiknimyndinni
Rio væru karlkyns persónurnar í því
hlutverki að láta aðra hlæja og vera jafn-
vel svolitlir rugludallar á meðan kven-
persónurnar eru sterkari og ráðandi
aðilinn. Það er ekki undarlegt að það
geti reynt á að vera karlmaður í samfé-
lagi þar sem nýjar kröfur eru gerðar til
þeirra og ég held að karlmenn almennt
hafi mjög gott af því að skoða tilfinning-
ar sínar náið til að auka sátt og skilning
á sjálfum sér og til að geta byggt sig upp
á sínum eigin forsendum.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Ef við líkjum
þessu við
fótboltalið
þá er eins og
karlmenn séu
Manchester
United sem
hafa verið 5-0
yfir frá örófi
alda.
Heimir Snorrason,
sálfræðingur hjá Kvíða-
meðferðarstöðinni,
fann í starfi sínu að
karlmenn voru í miklum
minnihluta þeirra sem
sóttu sjálfsstyrkingar-
námskeið sem stangað-
ist á við rannsóknir sem
sýna að sjálfsmat karla
er síst betra en kvenna.
Í félagi við annan sál-
fræðing býður hann því
nú upp á sérstök nám-
skeið fyrir karlmenn.
Ljósmynd/Hari
28 viðtal Helgin 14.-16. ágúst 2015