Fréttatíminn


Fréttatíminn - 14.08.2015, Page 38

Fréttatíminn - 14.08.2015, Page 38
Hópurinn á bak við Profectus. F.v. Hrefna Brigitta, Ingvar Jónsson, Guðrún Snorradóttir, Guðbjörn Gunnarsson, Unnar Sigurðs- son og Matti Ósvald Stefánsson. Gera gott betra Sérstaða Profectus, sem samanstendur af öflugum hópi markþjálfa með ICF vottun, er að miðla þekkingu og efla persónufærni þeirra sem hafa löngun til að gera gott betur. Profectus býður upp á fjölbreytt námskeið í fræðslusetri sínu í haust, sem öll miða að því með ýmsum hætti að fólk geti orðið betra eintak af sjálfum sér. K jarninn í okkar vinnu er hjálpa fólki að vaxa, ná markmiðum sínum og auka árangur sinn í því sem fólk er að fást við,“ segir Ingvar Jónsson, mark- þjálfi og framkvæmdastjóri Profec- tus. „Það gerum við með aðferða- fræði markþjálfunar að leiðarljósi ásamt ýmsum greiningarverkfær- um þar sem við viljum helst alltaf vinna út frá raunstöðu ef því er við komið. Á mörgum námskeiðum notum við til dæmis NBI-greining- ar sem greina hvernig við höfum tilhneigingu til að hugsa. Allt sem við gerum byrjar í heilanum, allt frá því hvernig við hugsum, bregðumst við öðrum, tökum ákvarðanir, eig- um samskipti, veljum okkur störf, stjórnum fólki, til hvernig við ölum upp börnin okkar. Allt veltur á því hvernig við hugsum.“ Með NBI-huggreiningu er á hugsanferlið kortlagt og nýtt til þjálfunar til dæmis til að öðlast færni í að vinna með þeim sem hugsa öðruvísi en maður sjálfur. „Sumir leggja áherslu á staðreyndir, aðrir leita eftir tengslum. Sumir eru gefnir fyrir smáatriði, aðrir vilja sjá heildarmyndina,“ segir Ingvar og þegar búið er að kortleggja hugsun- ina nýtist það til dæmis við að bæta árangur í samskiptum og samvinnu. „Sá hópur sem nær bestum árangri samanstendur af fólki með ólíkar hughneigðir sem nær að skilja hvert annað, styrkleika og takmarkanir hvers og eins.“ Ingvar segir að það sé öllum til framdráttar að þekkja eigið hugs- anaferli og leggur hann ríka áherslu á að hver og einn geti auðveldlega lært að beita heildarhugsun í starfi, námi og í samskiptum. NBI-grein- ingar hafa verið notaðar af náms- ráðgjöfum, þjálfurum, kennurum, markþjálfum og afreksmönnum í íþróttum í yfir 20 löndum í meira en 20 ár. Profectus sem hefur verið starf- andi í rúm tvö ár býður upp á mik- ið úrval námskeiða og í haust mun NBI-ráðgjafanám, fyrir þá sem vilja vinna með NBI-huggreiningar og nám í markþjálfun, bætast við. Markþjálfaranámið sem við ætl- um að bjóða upp á nú í haust und- irbýr nemendur undir ACC-vott- un og er byggt að hluta til á NLP samskiptagrunni. „Námskeiðið er lengra en tíðkast þar sem við viljum fara dýpra í samskiptaþætti eins og djúpa hlustun, svipbrigðalestur og líkamstjáningu og aðra mikilvæga samskiptaþætti. Það eru bæði þeir sem vilja starfa sem markþjálfar sem sækja þetta nám og eins þeir sem vilja öðlast framúrskarandi samskiptafærni.“ Námið er leitt af markþjálfum Profectus sem allir eru með vott- un frá ICF sem stendur fyrir Inter- national Coach Federation. „Markþjálfi er ekki ráðgjafi! Hann nýtir hæfnisþætti sína til þess að virkja þig og vitundarskapa þá framtíð sem þú þráir að verði að veruleika. Góður markþjálfi hálp- ar þér að komast þangað sem þig hefur einungis dreymt um að kom- ast. Hann vinnur líka með þér við að finna, greina og yfirstíga þær hindranir sem standa í vegi fyrir því að þú ert ekki kominn þangað” segir Ingvar. Þjálfun leiðtoga er stór hluti af starfsemi Profectus. Í október kemur út bókin „The Whole Brain Leader“ þar sem stjórnendum er kennd heildarhugsun og hvernig þeir geta orðið markþjálfandi leið- togar. Bókin byggir að mestu á Leið- togafærninámskeiði Profectus og er skrifuð af framkvæmdastjóra Prof- ectus, Ingvari Jónssyni og Sjoerd de Waal, hollenskum stjórnendaþjálfa. Bókin er skrifuð á ensku og verð- ur fyrst gefin út í Suður-Afríku og verður einnig fáanleg í bókabúðum og á Amazon. Ingvar kynntist NBI- greiningum í MBA námi við CBS og varð sér í framhaldinu út um ráð- gjafaréttindi til að starfa með NBI- greiningar og einnig NBI-kennar- araréttindi og gekk það vel að eftir var tekið og úr varð að honum var boðið til Suður-Afríku til að kenna leiðtogafærni. „Það felst í því að kenna leiðtogum heildarhugsun og markþjáflun. Góður leiðtogi hefur það sem þarf til að skapa fleiri leið- toga, ekki bara afla sér fylgjenda,“ segir Ingvar. Unnið í samstarfi við Profectus 38 fréttir Helgin 14.-16. ágúst 2015 Vilt þú gera gott betur? Við höfum opnað fræðslusetur þar sem við bjóðum upp á opin námskeið. Að sjálfsögðu bjóðum við einnig öll okkar námskeið til fyrirtækja eins og við höfum gert hingað til. Lengri námskeið og alþjóðlega vottað nám: ACC markþjálfanám (byggt á NLP-samskiptagrunni) Leader as a Coach - leiðtogaþjálfun NBI-leiðbeinendanám NLP-practitioner NLP-master practitioner Mentor markþjálfun til ACC-vottunar Styttri námskeið: Nútíma- og orkustjórnun Listin að viðhalda árangri Styrkleikar - þín innri auðlind Kjarninn í jákvæðri vinnumenningu Þrautseigja - að bogna án þess að brotna BTM - starfsmannasamtalið Vitundaveisla og hópefli Liðsheildin - samskipti og samvinna Persónuleg stefnumótun (markþjálfun) Áhrifaríkar kynningar Heildarhugsun - lærðu að lesa í fólk og aðstæður Umsjón með heilsudögum fyrirtækja Upplýsingar og skráning á www.profectus.is Námskeið í boði á haustönn:

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.