Fréttatíminn - 14.08.2015, Side 66
TónlisT Bone symphony með lag í Ted 2
Gamlar glæður Jakobs Frímanns í Hollywoodmynd
Í kvikmyndinni Ted 2, sem nú er í kvik-
myndahúsum, má heyra skemmtilegt
„synthapopp“ með hljómsveitinni Bone
Symphony, sem þekktust var fyrir lagið
It´s A Jungle Out There, snemma á
níunda áratugnum. Einn af meðlimum
sveitarinnar var Jakob Frímann Magn-
ússon. Hann mundi ekki eftir laginu
One Foot In Front Of The Other, sem
hljómar í myndinni en það rifjaðist upp
fyrir honum við hlustun.
„Bone Symphony er sveit sem ég var
í með þeim Scott Wilk og Marc Levint-
hal þegar ég bjó í Los Angeles í byrjun
níunda áratugarins,“ segir Jakob.
„Sveitin starfaði bara í eitt ár, en gaf þó út
eina EP plötu þar sem It´s A Jungle Out
There hljómar. Það varð mjög vinsælt, en
þetta lag sem hér um ræðir komst ekki á
plötuna. Við tókum þó upp alveg helling af
lögum og þetta er eitt þeirra,“ segir Jakob
en lög Bone Symphony hafa hljómað í
nokkrum kvikmyndum sem og í þáttunum
um Family Guy.
Jakob segir þó að Stuðmenn hafi togað
hann heim. „Stuðmannagiggið var nú bara
betur borgað á þessum tíma, svo það varð
ekkert meira úr þessu. Það er þó gaman að
heyra að þetta lifir,“ segir Jakob Frímann
Magnússon. -hf
Íris Hólm heldur
í haust til New
York í leiklistar-
nám.
KveðjuTónleiKar íris hólm í leiKlisTarnám í new yorK
Kvíðir því að skilja
dótturina eftir heima
Söngkonan Íris Hólm flytur á næstunni til Bandaríkjanna þar sem hún ætlar í leiklistarnám í
New York. Hún er bæði spennt og einnig mjög kvíðin þar sem tveggja ára dóttir hennar mun
verða eftir heima í umsjá föður síns. Íris hefur komið víða við í söngnum en fékk hugljómun
síðasta vetur og fann að sig langaði að hella sér út í leiklist. Íris ætlar að halda kveðjutónleika
áður en hún flytur út.
É g fer út í byrjun september,“ segir Íris Hólm söngkona. „Það er bara alveg að koma að þessu. Það eru allskonar til-
finningar í loftinu yfir þessu. Spenna, kvíði og
tilhlökkun og allt þar á milli,“ segir hún. „Ég
á tveggja ára dóttur sem mun bíða heima með
pabba sínum og vonandi verða þeir hjá Icelandair
sanngjarnir þannig að maður komist heim í frí-
unum sínum,“ segir Íris sem tók þá ákvörðun í
vetur að skella sér í prufur í leiklistarskóla.
„Leiklist var aldrei eitthvað sem ég hafði
verið að pæla í, því ég var alltaf meira að hugsa
um sönginn. Svo tók ég þátt í uppfærslu Leik-
félags Mosfellsbæjar á Ronju ræningjadóttur
og það var eitthvað sem heillaði mig,“ segir
Íris. „Svo fór ég til London ásamt Agnesi Wild,
vinkonu minni og leikstjóra Ronju, og fór að
sjá söngleikinn Memphis, sem sýndur var í
London. Þá má segja að ég hafi fengið ein-
hverskonar hugljómun um hvað mig langaði til
að gera. Ég var alveg vitlaus að geta ekki bara
hoppað upp á svið til að vera með. Sama kvöld
tók ég þá ákvörðun að fara í prufur,“ segir Íris.
„Ég skoðaði nokkra skóla á netinu, bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum, og fór í prufur í
fjóra sem allir voru í New York,“ segir
hún. „Ég komst inn í þrjá þeirra og
valdi skóla sem heitir Circle in the
Square, sem er á Manhattan. Þar
er söngurinn jafn mikilvægur
og leiklistin og mér leist best á
það, því mig langar líka til þess
að syngja meira. Þetta verður
mikið ævintýri og ég hlakka til,“
segir Íris. Hún var í bakradda-
hópi Maríu Ólafsdóttur í Euro-
vision síðasta vor, en í sumar
hefur hún verið að njóta þess að
vera með dóttur sinni. „Manni
finnst eins og maður hafi svo
langan tíma, en svo eru bara allt
í einu nokkrir dagar. Svo ég hef
bara verið að njóta sumarsins
með fólkinu mínu.“
Íris ætlar að halda kveðju-
tónleika á Rósenberg þann 1.
september þar sem vinir og
fjölskylda munu koma fram.
„Þetta eru líka smá fjáröflunar-
tónleikar, þar sem þetta er dýrt
ferðalag og dýr skóli,“ segir hún.
„Afi minn mun syngja og bróðir
minn og frændi líka og mamma
ætlar að syngja líka,“ segir Íris. „Svo
verða þarna minni stjörnur eins og
Páll Óskar, María Ólafs, Pétur Örn,
Friðrik Dór og fullt af öðrum vinum
mínum sem ætla að koma fram,“ segir
Íris Hólm og glottið heyrist í gegnum
símann.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Bláu húsin v/Faxafen • S. 555 7355 • www.selena.is
Selena undirfataverslun
Æðisleg
sundföt!
ÚTSALAN
hefst í dag!
30-60% afsl.
af völdum
vörum.Undirföt
sundfö
t
náttföt
Fjallið til Mexíkó
Kraftajötuninn Hafþór Július, eða
Fjallið eins og hann er kallaður,
hélt til Mexíkó í gærmorgun,
fimmtudag, þar sem hann mun
taka þátt í Expo Fitness þar í
landi. Hann birti mynd af sér í
flugvélinni í morgun þar sem
hann var að leggja af stað og var
ekkert sérlega glaðlegur þar sem
hann þarf að millilenda í Toronto
og Dallas áður en til Mexíkó er
komið. Hafþór er vinsæll um allan
heim eftir að hafa leikið Fjallið
í Game of Thrones þáttunum
vinsælu.
Veglegt Tónaflóð
Tónaflóð, tónleikar Rásar 2 á Menn-
ingarnótt í ár, verða veglegir að
vanda. Ungstirnið Gísli Pálmi mun
koma fram ásamt AmabAdama og
Dimmu og hljómsveit allra lands-
manna, Stuðmenn munu einnig
stíga á stokk. Dimma mun einnig
koma fram á tónleikum X977 sem
haldnir verða í portinu við Bar 11,
en þar mun Bubbi Morthens einnig
koma fram, ásamt Agent Fresco,
Júníusi Meyvant og fyrrnefndum
Gísla Pálma, meðal annarra. Það er
því tónleikastríð á milli stærstu út-
varpsstöðvanna þetta kvöld.
Mannakjöt á
Menningarnótt
Hljómsveitin Mannakjöt,
sem samanstendur af
meðlimum Dr. Spock,
Botnleðju og Ham ásamt
Valla sport og fleiri
góðum mönnum, mun
koma fram á stórtón-
leikum Bylgjunnar sem
haldnir verða á Ingólfs-
torgi á Menningarnótt
í Reykjavík, 22. ágúst
næstkomandi. Mannakjöt
kom fram á Gay Pride á
Steini í Quarashi á Xið 977
Rapparinn Steinar Fjelds-
ted, eða Steini í Quarashi
eins og hann er gjarnan
kallaður, hefur undan-
farið haldið úti tónlistar-
vefsíðunni albumm.is
þar sem umfjallanir um
íslenska tónlist má finna.
Bæði fréttir og viðtöl.
Steini mun í næstu viku færa sig upp á
skaftið og hefja upp raust sína á útvarps-
stöðinni X977 og byrja með þátt samnefnd-
an síðunni, Albumm. Steini verður í loftinu á
miðvikudagskvöldum klukkan 23 og fer um
víðan völl í íslenskri tónlist.
dögunum og vakti mikla
lukku. Í vikunni kom út
myndband með sveitinni
við lagið Þrumustuð
sem hljómar stanslaust
á öldum ljósvakans um
þessar mundir, en það
var tekið upp á Gay Pride.
66 dægurmál Helgin 14.-16. ágúst 2015