Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 20
Prófaðu þetta heyrnartæki í 7 daga Bókaðu tíma í fría heyrnar mælingu Sími 568 6880 www.heyrnartaekni.is Heyrnarskerðing er þreytandi! Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880 Ofurnett - ósýnileg í eyra eða falin á bak við eyra Alta2 heyrnartækin frá Oticon búa yfir einstakri tækni sem kallast BrainHearing™. Þessi tækni hjálpar heilanum að vinna betur úr hljóði þannig að þú upplifir það eins eðlilega og hægt er. Með Alta2 heyrnartækjunum verður auðveldara fyrir þig að heyra og skilja, hvort heldur sem um lágvært samtal er að ræða eða samræður í krefjandi aðstæðum. Ferill Óttars 2005 A Little Trip To Heaven 2010 Inhale 2011 Love, Wedding, Marriage 2011 Korriró - stuttmynd 2013 The Numbers Station 2015 Hitman: Agent 47 af vinnunni að ég hætti í náminu og hélt áfram á Stöð 2, þar sem ég var í þrjú ár,“ segir Óttar. „Þá flutti ég mig yfir til Saga Film. Eigandinn Jón Þór Hannesson nánast keypti mig yfir,“ segir hann. „Þá byrjaði ég í þessum aug- lýsingabransa og hægt og rólega vann maður sig upp í það að fá erlend verkefni og slíkt, sem ég geri svo nánast eingöngu í dag. Fyrsta kvikmyndin sem ég gerði var svo A Little Trip To Heaven með Baltasar árið 2005. Síðan þá hef ég gert nokkrar myndir og Hitman er sjöunda kvikmyndin sem ég mynda,“ segir Óttar, sem vinnur mikið erlendis og er því lítið heima. Hann segir þó mjög gott að eiga samastað á Íslandi í þessum bransa. „Ég geri sirka 25-30 auglýsingar erlendis á ári, og á síðasta ári var ég næstum 300 daga erlendis,“ segir hann. „Vissulega spilar vinnan við Hitman þar inn í, en alla jafna er ég um 230 daga á ári erlendis. Þetta er mikil fjarvera sem gerir það að verk- um að maður missir af afmælum og öðrum viðburðum barnanna,“ segir Óttar sem er fjölskyldumaður og á þrjú börn. „Þetta er algert sjómannslíf en þetta er líka vinna þar sem maður þarf að vera sýnilegur,“ segir hann. „Ef maður ætlar sér að taka frí í eitt ár þá tekur langan tíma að koma sér inn í bransann aftur. Maður þarf að vera sýnilegur og ferskur í þessu. Sama gerist líka þegar auglýsinga- tökumenn eins og ég fara í kvik- myndaverkefni. Þá er eins og fók gefi sér að maður sé hættur í auglýs- ingunum, svo maður þarf alltaf að vera að hamra járnið,“ segir Óttar. „Það er samt frábært að geta bland- að þessu saman eins og mér hefur tekist undanfarin ár. Þetta eru mis- jöfn verkefni og ólík, en bæði mjög skemmtileg. Það hvarflaði að mér í mörg ár að flytja út, en svo er bara Ísland svo vel staðsett,“ segir Ótt- ar. „Bæði er stutt í báðar áttir frá Íslandi og svo er bara gott að búa hér. Konan og börnin eru í sínum verkefnum hér heima og mér finnst alltaf notalegt að lenda í Keflavík og labba landganginn eftir verkefni úti,“ segir Óttar. Fer í lúxussalinn með fjöl- skyldunni Aðalhlutverkið í kvikmyndinni Hit- man: Agent 47 er leikið af Rupert Friend sem þekktur er fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum Home- land. Upphaflega átti leikarinn Paul Walker, sem sló í gegn í kvikmynd- inni Fast And The Furious, að leika í henni. Þegar undirbúningurinn á myndinni var hafinn bárust þær fréttir að Walker hefði látist í bíl- slysi. Óttar var þá handviss um að hætt yrði við myndina. „Walker var byrjaður að æfa fyrir myndina,“ segir Óttar. „Fréttirn- ar bárust þegar við voru að skoða tökustaði í Singapore, sem var mik- ill skellur og ég var handviss um að þetta væri búið. Við funduðum með Fox um kvöldið sem vildu halda áfram og nokkrum dögum seinna var búið að ráða Rupert Friend. Þetta var mjög skrýtið en ég gæti vel trúað því að þeir tileinki honum myndina,“ segir Óttar. Kvikmyndin er frumsýnd hér á landi í kvöld, föstudagskvöld, og Óttar er spenntur að sjá. „Ég mun fela mig í fjöldanum með popp og kók í lúxus-sal og horfa á myndina með eiginkonunni og börnunum. Framundan er ég með nokkrar auglýsingar á planinu og tvær kvik- myndir sem eru í undirbúningi og þessi bransi er nú bara þannig að þegar eitt verkefni klárast þá tekur annað við,“ segir Óttar Guðnason kvikmyndatökumaður. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is „Ég geri sirka 25-30 auglýsingar erlendis á ári, og á síðasta ári var ég næstum 300 daga erlendis,“ segir Óttar Guðnason. Ljósmynd/Hari 20 viðtal Helgin 21.-23. ágúst 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.