Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 62
menningarnótt Helgin 21.-23. ágúst 20152
B ríet Bjarnhéðinsdóttir er ein mesta kvenrétt-indabaráttukona íslandssögunnar. Barna-barnabarn hennar Anna Kolfinna Kuran dans-
höfundur hefur undanfarið ár unnið að dansverki
sem hún tileinkar henni í tilefni af 100 ára kosninga-
afmæli kvenna. Verkið verður frumflutt á Reykjavik
Dance Festival og Local danslistahátíðinni 28. ágúst,
en á Menningarnótt gefst gestum tækifæri á að kynn-
ast vinnunni á bak við verkið. Gestir fá tækifæri til
þess að vinna, undir leiðsögn Önnu Kolfinnu, lítið
verk byggt á minningu um sína eigin ömmu. Þannig
fá þátttakendur möguleika á að prufa sig sem dans-
höfundar um leið og þeir rifja upp sína sögu og sögu
Bríetar. „Þetta verður nokkurs konar örnámskeið og
tekur bara 30 mínútur í hvert sinn,“ segir Anna Kol-
finna Kuran danshöfundur. „Ég mun kynna verkið
og sýna lítinn bút úr því og þeir sem mæta geta búið
til sitt eigið ördansverk,“ segir hún. „Verkið mitt er
um langalangömmu mína og þátttakendum býðst
að gera verk um sínar ömmur eða langömmur. Ég
náði skiljanlega aldrei að hitta Bríeti svo ég lagðist í
smá heimildaöflun og rannsóknarferli,“ segir Anna.
„Þannig bjó ég til mína eigin minningu um hver hún
var. Ég vann mikið út frá viðtölum við hana og því
sem hún skrifaði sjálf og samdi verkið út frá því.
Verkið er um 45 mínútur og ég er búin að vera að
vinna að hugmyndinni í eitt ár, en æfingaferlið er
búið að standa síðan í maí. Námskeiðið á laugardag
verður í dansverkstæðinu við Skúlagötu 30 og byrjar
kl 12.00. Það þarf ekkert að skrá sig, bara mæta á
staðinn og ég vonast til þess að sjá sem flesta,“ segir
Anna Kolfinna Kuran, danshöfundur.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is Anna Kolfinna Kuran fjallar um langalangömmu sína í nýju dansverki. Ljósmynd/Hari
Bríeti boðið
upp í dans
Á menninganótt mun gestum verða boðið
upp á örnámskeiðið Amma dansar. Þar gefst
borgarbúum kostur á að kynnast vinnunni á
bak við verkið Bríet: upp með pilsin, sem Anna
Kolfinna Kuran er að vinna um langalangömmu
sína Bríeti Bjarnhéðinsdóttur.
Velkomin í HR
á Menningarnótt
Dagskrá fyrir alla fjölskylduna kl. 13
13:00
Sirkus Íslands
& ís frá Kjörís
13:30
Júníus Meyvant
Ljósmyndasýning
Vigfúsar Birgissonar
Gakktu í bæinn! - Menningarnótt í tuttugasta sinn
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar og verður haldin í tuttugasta skipti á morgun, laugardag-
inn 22. ágúst. Menningarnótt er hátíð sem allir borgarbúar skapa og upplifa saman, úti á torgum og götum
miðborgarinnar, í bakgörðum eða söfnum, fyrirtækjum og ekki síst í húsunum í bænum. Venju samkvæmt
er búist við tugþúsundum gesta í miðborgina.
Yfirskrift hátíðarinnar er „Gakktu í bæ-
inn!“ sem vísar til þeirrar gömlu og góðu
hefðar að bjóða fólk velkomið og gera
vel við gesti. Allir viðburðir hátíðarinnar
eru gestum að kostnaðarlausu og er þar
með séð til þess að allir borgarbúar geti
notið kraftmikils menningarlífs og góðrar
samveru frá hádegi til miðnættis.