Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 14
M Merk lög voru samþykkt á Alþingi í vor um leigu skráningarskyldra ökutækja en þau gilda um leigu á ökutækjum í atvinnuskyni án ökumanns og einnig um einkaleigur. Með
lagasetningunni er einstaklingum heimilt að
leigja út tvö skráningarskyld ökutæki með
milligöngu sérstakra einkaleiga. Þessi lög
skapa nauðsynlega umgjörð fyrir þá einstak-
linga sem kjósa að leigja einkabíla sína, til
að nýta fjárfestingu sína betur
og greiða með leigutekjunum
niður kostnaðinn við rekstur
bílsins.
Lagasetningin er viður-
kenning á deilihagkerfi sem
útbreitt er orðið hvort heldur
er hérlendis eða ytra hvað
varðar nýtingu á fjárfestingu
einstaklinga, leigu á einka-
bílum og íbúðum, auk þess
sem íbúða- og jafnvel bíla-
skipti hafa færst í vöxt. Mikil-
vægt var að Alþingi brást skjótt við hvað
varðaði leigu einkabíla með þessum hætti
og skapaði grundvöll slíkrar starfsemi. Þá
hefur Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra boðað frumvarp sem
ætlað er að koma skikki á heimagistingu
sem einkum fer í gegnum vefsíðuna Airbnb
en þar gefst fólki kostur á að skrá íbúðir sín-
ar til leigu fyrir ferðamenn. Þessi þjónusta
nýtur vinsælda og æ fleiri Íslendingar leigja
húsnæði sitt í gegnum síðuna – og nýta sér
sömu þjónustu ytra.
Verði frumvarp iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra að lögum verður fólki leyft að leigja út
heimili sitt og eina fasteign að auki í allt að
átta vikur á ári. Lagasetningunni er ætlað að
auðvelda skráningu heimagistingar fyrir þá
sem þegar leigja heimili sín til ferðamanna
hluta úr ári, eða hafa hug á því, fækka leyfis-
lausum og óskráðum gististöðum og draga
úr svartri atvinnustarfsemi.
Slík lagasetning er hugsuð til að einfalda
regluverk ferðaþjónustunnar og veitir ekki
af vegna þeirrar ævintýralegu fjölgunar er-
lendra ferðamanna sem sækja okkur heim.
Hótelum og gistiheimilum hefur fjölgað en
um leið hefur mjög færst í vöxt að einstak-
lingar leigi ferðamönnum herbergi eða íbúð-
ir, einkum á mesta annatímanum. Talið er að
yfir 60% íbúða sem leigðar eru ferðamönnum
séu án starfsleyfis. Með einföldum reglum og
kvaðalítilli skráningu aukast líkur á að þessi
starfsemi komi upp á yfirborðið, verði lögleg
og um leið sjálfsögð þjónusta.
Sölvi Melax, einn stofnenda jafningja-
leigunnar VikingCars, fagnar lagasetningu
vegna ökutækjaleigunnar, enda í fyrsta sinn
sem lög hérlendis heimila nútíma deilihag-
kerfi. Hann bendir á að nýting einkabíla sé
afar lítil en með slíkri leigu megi bæta nýt-
ingu bílaflotans. Þá sé umhverfisvænt að
nýta betur sérhvern bíl í stað þess að fjölga
þeim til að mæta toppum í eftirspurn. Ör-
yggi fylgir því að leyfishafa er gert skylt
að bílarnir sem leigðir eru séu ætíð í góðu
ásigkomulagi, hljóti gott viðhald og eftirlit
og fullnægi kröfum sem gerðar eru um þá í
lögum eða reglugerðum, eins og segir í lög-
unum, en leyfishafi skal einnig gæta að því að
ökutækin séu í ásigkomulagi sem tekur mið
af árstíma og færð.
Deiliþjónusta, eins og húsaleiga í gegn-
um Airbnb, gerir fólki kleift að ferðast með
ódýrari hætti en ella og er jákvæð þróun, en
nauðsynlegt er að setja þjónustunni ákveðinn
ramma með lagasetningu, enda geta fylgt
henni ákveðnir vankantar. Mikill og tíður
gestagangur getur haft ónæði í för með sér
fyrir nágranna. Það verður því að taka tillit til
þeirra. Mun betra er þó að starfsemin sé uppi
á borðum fremur en neðanjarðar. Iðnaðar- og
viðskiptaráðherra hlýtur því að endurflytja
frumvarp sitt um endurskoðun á of flókn-
um reglum sem nú gilda um heimagistingu
þegar þing kemur saman á ný í haust en ráð-
herrann stefnir að einföldun leyfisveitinga
sem gerir rekstrarumhverfi slíkrar starfsemi
einfaldara, einkum fyrir smærri aðila, þ.e. að
reksturinn verði eingöngu tilkynningaskyld-
ur en ekki leyfisskyldur.
Netið hefur skapað nýjan heim og er deili-
hagkerfið hluti þeirrar þróunar. Sú þróun
verður ekki stöðvuð en hún þarf að vera í
réttum farvegi.
Lagasetning vegna leigu íbúða og ökutækja
Viðurkenning á deilihagkerfi
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
niðurhal
einfalt
ótakmarkað
6.990
ljósleiðari ljósnet
vortex.is 525 2400
FULL BÚÐ AF
NÝJUM VÖRUM
STÆRÐIR 14-28
Jakki
Stærðir 14-28
Verð: 13990
PATNAÐU Á CURVY.IS EÐA KOMDU Í
VERSLUN OKKAR AÐ FÁKAFEN 9
OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 11-18
OG LAUGARDAGA FRÁ KL. 11-16
Upplýsingar og bókanir hjá
Trex og á vefnum:
www.trex.is
Heillandi rútuheimur!
Ferð á Busworld
15. - 18. október 2015
Nú er um að gera að bóka
sig strax í ferð á einn af helstu
viðburðum ársins í rútugeira-
num, rútusýninguna Bus-
world í Kortrijk í Belgíu. Trex
- Hópferðamiðstöðin býður
í fyrsta sinn upp á ferð á
sýninguna á hagstæðu verði.
Verð á mann kr. 97.900 á
mann í tvíbýli.
Trex - Hópferðamiðstöðin ehf
Hestthálsi 10
110 Reykjavík
s. 587 6000
info@trex.is
14 viðhorf Helgin 21.-23. ágúst 2015