Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 54

Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 54
Gerðu kjarakaup á húsgögnum frá Tekk Company og Habitat Enn mEiri afsláTTur! 50-90% afsláttur af öllum vörum allt á að seljast! Verslunin flytur í byrjun september LAGERSALAN KAUPTÚNI 3 - GARÐABÆ – VIÐ HLIÐINA Á TEKK COMPANY OG HABITAT SÍMI 861 7541 OPiÐ fÖsTuDaG Kl. 13-18 lauGarDaG Kl. 11-18 sunnuDaG Kl. 13-18 Innritun 2015-2016 w w w .s on gs ko lin n. is H 5 5 2 7 3 6 6 so ng sk ol in n@ so ng sk ol in n. is DAVÍÐHáskóladeild SOLV EIG Fram hald sdei ldSARA Ungli ngade ild Ari Miðdeild ELÍN Grunn deild Söngskólinn í Reykjavík Þjóðlag asöngu r Dægurlög Söngleikir Óperur Íslen sk o g erlen d sö nglö g Eitthvað! fyrir alla! ☞ Þ að er stórkostlegt fyrir okkur að fá Balta hingað inn enda er hann orðinn risastór bíómó- gúll úti í heimi. Þetta verður eitt- hvað,“ segir Ari Matthíasson þjóð- leikhússtjóri. Vetrardagskrá Þjóðleikhússins var kynnt í vikunni og þar kennir ýmissa grasa. Athyglisverður er nýr söngleikur byggður á hinni þekktu sögu Einars Kárasonar, Djöflaeyj- unni, sem settur er upp í samvinnu við Baltasar Kormák. Balti skrifar og leikstýrir verkinu í samvinnu við Atla Rafn Sigurðarson og Memfis- mafían sér um tónlistina. Ekki hef- ur verið gengið frá því hverjir leika aðalhlutverkin. Þá verður afar spennandi að sjá hvernig til tekst með Hleyptu þeim rétta inn eftir Jack Thorne sem frumsýnt verður í febrúar. Þetta er hrollvekjandi fantasía sem byggð er á samnefndri skáldsögu og bíómynd og mun Vigdís Hrefna Páls- dóttir leika vampíru í verk- inu. Auk hennar leika Sig- urður Þór Óskarsson og Þröstur Leó Gunnarsson. „Þetta verður svolítið blóðugt, það eru menn drepnir þarna. Þetta verð- ur örugglega dá- lítið óvenjuleg sýning f yr ir ýmsa af okkar fastagestum,“ segir Ari um verkið. Fyrsta stóra frumsýning vetrarins verður Í hjarta Hróa hattar sem Gísli Örn Garðarsson og Selma Björns- dóttir leikstýra. Salka Sól Eyfeld semur tónlistina og í aðalhlutverk- um eru Lára Jóhanna Jónsdóttir, Þórir Sæmundsson, Guðjón Davíð Karlsson og Sigurður Þór Óskars- son. Í október fáum við að sjá Heim- komuna eftir Harold Pinter í leik- stjórn Atla Rafns Sigurðarsonar. Sannkallað stórskotalið leikara verður í verkinu; Ingvar E. Sigurðs- son, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Björn Hlynur Haraldsson, Ólafur Egill Eg- ilsson, Snorri Engilbertsson og Egg- ert Þorleifsson. Annað sígilt verk verður á fjölun- um í vetur; Sporvagninn Girnd sem Stefán Baldursson leikstýrir. Nína Dögg Filippusdóttir fer með aðal- hlutverkið en meðal leikara er einnig Baltasar Breki Samper, sonur Baltasars Kormáks. Fyrsta frumsýning hausts- ins verður í Kassanum hinn 5. september. Það eru Móð- urharðindin eftir Björn Hlyn Haraldsson, kolsvört kó- medía með bræðrunum Kjartani og Árna Pétri Guðjónssonum í að- alhlutverkum. Að síðustu má nefna að Spaugstofan verð- ur með sérstaka afmælissýningu í tilefni 30 ára afmælis síns. Á heimasíðu Þjóð- leikhússins má lesa sér nánar til um vetrardag- skrána. Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Berglind Björk verður á Jómfrúnni á laugardag.  TónlisT sumardjass á laugardag Berglind Björk á Jómfrúnni Á tólftu tónleikum sumarjazztónleika- raðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu, laugardaginn 22. ágúst (á Menningarnótt), kemur fram söng- konan Berglind Björk Jónasdóttir. Með henni leika þeir Agnar Már Magnússon á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontra- bassa og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Þau munu leika fjölbreytt úrval jazztónlistar. Berlind Björk hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi en er kannski þekktust sem dýpsta Borgar- dóttirin. Tónleikarnir fara fram utandyra á Jómfrúartorginu. Þeir hefjast kl. 15 og standa til kl. 17. Aðgangur er ókeypis.  leikhús leikár Þjóðleikhússins kynnT Tveir Baltar og vampírur á fjölunum Baltasar Kormákur setur upp söngleikinn Djöflaeyjuna í Þjóð- leikhúsinu í vetur og sonur hans fer með hlutverk í Sporvagn- inum Girnd. Spaugstofan verður með afmælissýningu og Vigdís Hrefna leikur vampíru. Nína Dögg Filippusdóttir mun leika Blanche DuBois í Sporvagninum Girnd eftir Tennessee Williams. Ljósmynd/ NordicPhotos/Getty Baltasar Kormákur mun setja upp söngleik í Þjóðleikhúsinu í vetur, byggðan á Djöflaeyjunni eftir Einar Kárason. Balti lék sem kunnugt er aðalhlutverkið í kvikmynd eftir sömu bók. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty Helgin 21.-23. ágúst 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.