Fréttatíminn - 21.08.2015, Page 54
Gerðu kjarakaup á húsgögnum
frá Tekk Company og Habitat
Enn mEiri afsláTTur!
50-90%
afsláttur af öllum vörum
allt á að seljast!
Verslunin flytur í byrjun september
LAGERSALAN
KAUPTÚNI 3 - GARÐABÆ
– VIÐ HLIÐINA Á
TEKK COMPANY OG HABITAT
SÍMI 861 7541
OPiÐ
fÖsTuDaG Kl. 13-18
lauGarDaG Kl. 11-18
sunnuDaG Kl. 13-18
Innritun
2015-2016
w
w
w
.s
on
gs
ko
lin
n.
is
H
5
5
2
7
3
6
6
so
ng
sk
ol
in
n@
so
ng
sk
ol
in
n.
is
DAVÍÐHáskóladeild
SOLV
EIG
Fram
hald
sdei
ldSARA
Ungli
ngade
ild
Ari
Miðdeild
ELÍN
Grunn
deild
Söngskólinn í Reykjavík
Þjóðlag
asöngu
r
Dægurlög
Söngleikir
Óperur
Íslen
sk o
g
erlen
d sö
nglö
g
Eitthvað!
fyrir
alla!
☞
Þ að er stórkostlegt fyrir okkur að fá Balta hingað inn enda er hann orðinn risastór bíómó-
gúll úti í heimi. Þetta verður eitt-
hvað,“ segir Ari Matthíasson þjóð-
leikhússtjóri.
Vetrardagskrá Þjóðleikhússins
var kynnt í vikunni og þar kennir
ýmissa grasa. Athyglisverður er nýr
söngleikur byggður á hinni þekktu
sögu Einars Kárasonar, Djöflaeyj-
unni, sem settur er upp í samvinnu
við Baltasar Kormák. Balti skrifar
og leikstýrir verkinu í samvinnu við
Atla Rafn Sigurðarson og Memfis-
mafían sér um tónlistina. Ekki hef-
ur verið gengið frá því hverjir leika
aðalhlutverkin.
Þá verður afar spennandi að sjá
hvernig til tekst með Hleyptu þeim
rétta inn eftir Jack Thorne sem
frumsýnt verður í febrúar. Þetta
er hrollvekjandi fantasía sem
byggð er á samnefndri
skáldsögu og bíómynd og
mun Vigdís Hrefna Páls-
dóttir leika vampíru í verk-
inu. Auk hennar leika Sig-
urður Þór Óskarsson og
Þröstur Leó Gunnarsson.
„Þetta verður svolítið
blóðugt, það eru
menn drepnir
þarna. Þetta verð-
ur örugglega dá-
lítið óvenjuleg
sýning f yr ir
ýmsa af okkar
fastagestum,“
segir Ari um
verkið.
Fyrsta stóra frumsýning vetrarins
verður Í hjarta Hróa hattar sem Gísli
Örn Garðarsson og Selma Björns-
dóttir leikstýra. Salka Sól Eyfeld
semur tónlistina og í aðalhlutverk-
um eru Lára Jóhanna Jónsdóttir,
Þórir Sæmundsson, Guðjón Davíð
Karlsson og Sigurður Þór Óskars-
son.
Í október fáum við að sjá Heim-
komuna eftir Harold Pinter í leik-
stjórn Atla Rafns Sigurðarsonar.
Sannkallað stórskotalið leikara
verður í verkinu; Ingvar E. Sigurðs-
son, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Björn
Hlynur Haraldsson, Ólafur Egill Eg-
ilsson, Snorri Engilbertsson og Egg-
ert Þorleifsson.
Annað sígilt verk verður á fjölun-
um í vetur; Sporvagninn Girnd sem
Stefán Baldursson leikstýrir. Nína
Dögg Filippusdóttir fer með aðal-
hlutverkið en meðal leikara er
einnig Baltasar Breki Samper,
sonur Baltasars Kormáks.
Fyrsta frumsýning hausts-
ins verður í Kassanum hinn
5. september. Það eru Móð-
urharðindin eftir Björn Hlyn
Haraldsson, kolsvört kó-
medía með bræðrunum
Kjartani og Árna Pétri
Guðjónssonum í að-
alhlutverkum. Að
síðustu má nefna að
Spaugstofan verð-
ur með sérstaka
afmælissýningu
í tilefni 30 ára
afmælis síns. Á
heimasíðu Þjóð-
leikhússins má
lesa sér nánar til
um vetrardag-
skrána.
Höskuldur Daði
Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Berglind Björk verður á Jómfrúnni
á laugardag.
TónlisT sumardjass á laugardag
Berglind Björk á Jómfrúnni
Á tólftu tónleikum sumarjazztónleika-
raðar veitingahússins Jómfrúarinnar
við Lækjargötu, laugardaginn 22. ágúst
(á Menningarnótt), kemur fram söng-
konan Berglind Björk Jónasdóttir. Með
henni leika þeir Agnar Már Magnússon
á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontra-
bassa og Magnús Trygvason Eliassen
á trommur. Þau munu leika fjölbreytt
úrval jazztónlistar. Berlind Björk hefur
komið víða við í íslensku tónlistarlífi en
er kannski þekktust sem dýpsta Borgar-
dóttirin. Tónleikarnir fara fram utandyra
á Jómfrúartorginu. Þeir hefjast kl. 15 og
standa til kl. 17. Aðgangur er ókeypis.
leikhús leikár Þjóðleikhússins kynnT
Tveir Baltar og
vampírur á fjölunum
Baltasar Kormákur setur upp söngleikinn Djöflaeyjuna í Þjóð-
leikhúsinu í vetur og sonur hans fer með hlutverk í Sporvagn-
inum Girnd. Spaugstofan verður með afmælissýningu og Vigdís
Hrefna leikur vampíru.
Nína Dögg
Filippusdóttir mun
leika Blanche DuBois
í Sporvagninum
Girnd eftir Tennessee
Williams. Ljósmynd/
NordicPhotos/Getty
Baltasar Kormákur mun setja upp söngleik í Þjóðleikhúsinu í vetur, byggðan
á Djöflaeyjunni eftir Einar Kárason. Balti lék sem kunnugt er aðalhlutverkið í
kvikmynd eftir sömu bók. Ljósmynd/NordicPhotos/Getty
Helgin 21.-23. ágúst 2015