Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 21.08.2015, Blaðsíða 6
Vertu eins og heima hjá þér 79.990 kr. 99.990 kr. ELLY Þriggja sæta sófi. Litir: Ljósgrár, grár og Town dökkgrár. Stærð: 183 x 82 x 85 cm ELLY Stóll. Litir: Ljósgrár, grár og Town dökkgrár. Stærð: 83 x 82 x 85 cm 54.990 kr. 69.990 kr. PASO DOBLE Tungusófi. Hægri eða vins tri tunga. Grátt eða brúnt slitsterkt á klæði. Stærð: 306 × 156 × 80 cm Reykjavík og Akureyri www.husgagnahollin.is Húsgagnahöllin 50 ára Eftir hálfrar aldar farsæla s ögu kynnum við endurnýja ða og glæsilega verslun með stó rauknu vöruúrvali. Við þök kum þjóðinni samfylgdina og tr austið í fimm áratugi. Fagn aðu þessum tímamótum með o kkur og gerðu einstök kau p. Vertu eins og heima hjá þér 299.990 kr. 369.990 kr. Nýtt blað er komið í dreifingu http://www.youblisher.com/p/1196290-Husgagnahollin-agust-2015/ www.husgagnahollin.is 558 1100 Það er stöðug og íþyngjandi áminning fyrir barnið að bera nafn brotamannsins. U mboðsmanni barna bárust á síðasta ári tvær ábendingar þar sem Þjóðskrá Íslands tók ekki tillit til óska stálpaðra barna um kenninafnbreytingu jafnvel þó börnin greindu frá því að þau hefðu verið beitt kynferðisofbeldi af hálfu þess foreldris sem þau eru kennd við. Þetta kemur fram í ársskýrslu Umboðsmanns barna fyrir árið 2014 sem er nýkomin út. Þar segir að embættinu hafi borist „nokkr- ar ábendingar um að ekki hefði verið tekið tillit til vilja barna sem óskuðu eftir að breyta nafni sínu.“ Umboðsmaður barna ritaði Þjóð- skrá bréf í október á síðasta ári þar sem bent var á að kenninöfn barna skipti ekki síður máli fyrir sjálfsmynd þeirra en eiginnöfn enda vísi þau oftast til tengsla við móður og/eða föður. Slíkt geti haft jákvæð áhrif á barnið en í sumum tilfellum upplifi börn það á nei- kvæðan hátt að vera kennd við tiltekið foreldri. „Þá geta komið upp aðstæður þar sem foreldri hefur brotið gegn barni með alvarlegum hætti og það er stöðug og íþyngjandi áminning fyrir barnið að bera nafn brotamannsins,“ segir í bréfinu. Samkvæmt gildandi lög- um um mannanöfn getur Þjóðskrá sam- þykkt breytingu á kenninafni barns þó sá sem barnið er kennt við sé andvígur því ef sérstaklega stendur á og telja verður að nafnbreytingin verði barninu til verulegs hagræðis. Umboðsmaður barna hefur fengið ábendingar um að Þjóðskrá túlki þessi lög afar þröngt, ekki í samræmi við réttindi barna sam- kvæmt Barnasáttmálanum og óskaði eftir skýringum. Í svari Þjóðskrár segir að það sé ekki hlutverk stofnunarinnar að leggja mat á eða taka afstöðu til þess hvort barn hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu foreldris þegar ekki liggi fyrir dómur eða annars konar sönnun um sekt for- eldris. Þetta gagnrýnir umboðsmaður barna og segir ljóst að í sakamálum sé allur vafi metinn sökunaut í hag og því þurfi mikið til að koma til að hægt sé að sakfella í slíkum málum. „Er því mat umboðsmanns barna að rétt sé að meta allan vafa börnum í hag þegar tekin er afstaða til þess hvort nafnbreyting geti talist barni til verulegs hagræðis.“ Umboðsmaður barna óskaði enn- fremur eftir upplýsingum frá Þjóðskrá um hversu mörg börn 12 ára og eldri hefðu frá árinu 2009 óskað eftir breyt- ingu á kenninafni en fékk þau svör að þær upplýsingar væru ekki til. Þjóð- skrá sagðist hins vegar reiðubúin, ef umboðsmaður barna óskar sérstaklega eftir því, til að hefja söfnun á umrædd- um upplýsingum. Samkvæmt svörum frá umboðsmanni barna hefur vegna anna hjá embættinu ekki verið tekin af- staða til þess hvort formleg beiðni um slíkt verður send. Erla Hlynsdóttir erla@frettatiminn.is  Heilbrigðismál HeilbrigðisráðHerra ræddi jáeindaskanna á ríkisstjórnarfUndi Rannsóknir í jáeindaskanna gætu orðið tvö þúsund á ári Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráð- herra kynnti kaup á jáeindaskanna fyrir Landspítala á fundi ríkisstjórnarinnar í gær, fimmtudag. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hyggst Íslensk erfða- greining færa þjóðinni jáeindaskanna að gjöf. Gjöfin, sem Kári Stefánsson kynnti fyrr í mánuðinum, nemur allt að 5,5 milljónum Bandaríkjadala og nær hún til kaupa og uppsetningar á tækinu sem nýtist til að mynda við rannsóknir á krabbameinssjúklingum. Í máli heilbrigðisráðherra kom fram að sjúklingum sem sendir eru frá Íslandi til rannsókna í jáeindaskanna Rigsho- spitalet í Kaupmannahöfn samkvæmt samningi við Sjúkratryggingar Íslands fjölgar ár frá ári. Árið 2012 voru 29 sjúklingar sendir héðan til rannsókna í jáeindaskannanum við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn, árið 2014 voru þeir 87 og nú er áætlað að á þessu ári verði þeir á bilinu 140 til 160. Heildarkostnaður við hverja rannsókn að meðtöldum kostnaði vegna ferða og uppihalds nemur 400-500 þúsund krónum. Ef áætlanir danskra heilbrigðisyfirvalda um þörf fyrir rann- sóknir með jáeindaskanna þar í landi eru heimfærðar á Ísland má áætla að þörfin hér sé allt að 2000 rannsóknir á ári, seg- ir í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu. „Talið er að ávinningurinn af notkun jáeindaskanna sé það mikill, m.a. vegna betri meðferðar og færri legudaga, að beinn sparnaður sé meiri en nemur heildarkostnaði við notkun hans. Undir- búningur að uppsetningu jáeindaskanna við Landspítala er hafinn og leggur heilbrigðisráðherra áherslu á að koma honum í notkun eins fljótt og mögulegt er. Uppsetning skannans kallar á tölu- verðar framkvæmdir þar sem hann þarf um 250 fermetra húsnæði sem uppfyllir strangar kröfur um geislavarnir,“ segir ennfremur. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis- ráðherra vill koma jáeindaskanna Kára Stefánssonar í notkun eins fljótt og mögulegt er.  börn UmboðsmaðUr barna gagnrýnir Þjóðskrá íslands Þjóðskrá neitar brota­ þolum um nafnabreytingu Þjóðskrá Íslands hefur tvisvar hafnað beiðnum stálpaðra barna um að breyta kenninafni sínu þó þau hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu þess foreldris sem barnið er kennt við. Ef við- komandi foreldri er mótfallið nafnbreytingunni og ekki liggur fyrir sakamál telur Þjóðskrá það ekki sitt að taka afstöðu. Umboðsmaður barna gagnrýnir þessa framkvæmd harðlega og hvetur Þjóðskrá til að setja hagsmuni barna í forgang. Það getur verið íþyngjandi fyrir barn að vera kennt við foreldri sem hefur beitt það ofbeldi. Ljósmynd/NordicPhotos/ GettyImages 6 fréttir Helgin 21.-23. ágúst 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.