Dagrenning - 01.12.1958, Qupperneq 29

Dagrenning - 01.12.1958, Qupperneq 29
marki með ríkisstjóm nýkommúnista 1956—1958. Sá draumur, að hægt sé að sameina allt það vitlausasta í þremur stjómmálaflokkum í eina samstæða heild, getur aldrei rættst. Það er gott að sú tilraun var gerð til þess að úr þessu fengist skorið, svo nú er þetta búið. Það hefir reynzt að vera enn rétt, sem Ólafur pái sagði forðum, „að því verr gefast heimskra ráð sem þau koma fleiri sam- an.“ Að hinu ber að stefna að sameina sem mest og bezt alla þjóðholla, vitra og ábyrga menn í þeim þremur flokkum sem eru íslenzkir, og hreinsa burtu úr þeim smátt og smátt það msl sem þang- að hefir safnast fyrir tilverknað kommún- ista. Ef það tekst á íslenzka þjóðin bjarta og gæfuríka framtíð fyrir höndum. AÐ LOKUM. Þá verða jressar hugleiðingar ekki öllu lengri. Ég veit að margir lesendur Dag- renningar skilja það, að erfitt er að hafa opinberlega þá skoðun á alþjóða stjórn- málum, og mikilvægum landsmálum, sem ég hefi, svo gjörsamlega gagnstæð sem hún er jreim „sannindum", sem við- tekin eru af ráðandi stofnunum og „vís- indum vorra tíma“. Það er varla hægt að segja, að skoðanir mínar falli á nokkru sviði saman við jrað, sem aðrir telja hið rétta. Frá almennu sjónarmiði er það auðvitað heimskulegt að vera að eyða tíma sínum og fjármunum í það, að reyna að opna augu fámennrar þjóð- ar, sem litlu skiptir á heimsmælikvarða hvoru megin hryggjar liggur, fyrir sann- indum, sem fáir eru svo andlega þrosk- aðir að geta skilið eða þora að viður- kenna opinberlega, þó að þeir kannski finni það hið innra með sjálfum sér, að það er margt sennilegt og rétt. Það er að sjálfsögðu einnig jafn óhyggilegt að eyða tíma og kröftum í það, að berjast gegn stjórnmálaöflum, sem flestir sjá og viðurkenna í orði að séu Jijóðhættuleg og leiði til glötunnar, en flestir skríða þó fyrir og grípa hvert tækifæri sem býðst til að vingast við, og nota sér til framdráttar eða einhverskonar ávinnings. Það var um skeið von mín, að íslenzka þjóðin mundi bera gæfu til að skilja þessi mikilvægu sannindi fyrr og betur en aðrar þjóðir, og yrði fyrst til að átta sig á joví, á hvílíkum helvegi mannkynið er, en nú sé ég að svo verður varla. Verði ]:>að, verður jiað ekki fyrr en eftir að síðasta holskeflan hefir riðið yfir, og þjóð- in hefir af dýrkeyptri reynslu áttað sig á sjálfri sér og hlutverki sínu. Ég held ]jó ekki að Dagrenning hafi verið gagnslaus. Einstaka maður skilur nú betur en áður ýmislegt, sem honum var hulið eða óljóst. Líklega er það Jró aðeins til að auka kvöl þessa fólks, því að hér, eins og í Helvíti, er sá ekki mik- ils metinn, sem segir sannleikann, eða skilur, að Jrað er lýgin og blekkingin, sem beztan hafa byrinn og flestir fylgja. Ég veit það líka af eigin reynslu all- langrar ævi, að það þarf oft langan tíma til að átta sig á nýjum kenningum, og Jrað er sjaldnast sú kynslóð, sem þær eru fyrst boðaðar, sem við þeim tekur. Það er ekki fyrr en næsta eða þar næsta kyn- slóð, sem getur að einhverju leyti til- einkað sér þær. Ég finn það ofur vel, að nú eru ein- hver mikilvæg þáttaskil í lífi mínu, og því hefi ég nefnt þessar hugleiðingar því nafni. Hver þau muni verða get ég ekki gert mér ljóst ennþá. En ekki kæmi mér það á óvart þó þau yrðu á einhvem hátt tengd þeim þáttaskilum og þeirri stefnubreytingu, sem nú er að verða í DAGRENNING 27

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.