Dagrenning - 01.12.1958, Side 32
inum „yfir þeim heimi, sem þá var“ (II.
Pét. 3.6) „þar sem aðeius átta sálir frels-
uðust“ (I. Pét. 3.20), m. ö. o.: Nói, kona
hans og þrír synir þeirra ásamt eiginkon-
um (I. Móseb. 7.7 og II. Pét. 2.5). Eftir
hörmungar flóðsins leituðu þeir, sem eft-
ir lifðu á nýjar slóðir. Ritningin segir:
„Þessir eru synir Nóa þrír, og frá þeim
byggðist öll jörðin" (I. Móseb. 9.20). Sum-
ir nota orðið „kynstofnar" í mjög óná-
kvæmri merkingu og vilja halda því fram,
að til séu óteljandi kynstofnar, en sam-
kvæmt grundvallar skilgreiningu Biblí-
. unnar og vísindanna eru þeir aðeins þrír.
Vér skulum nú kveðja til vitnis nokkra
færustu menn á því sviði, sem með hlut-
.lausum niðurstöðum staðfesta áreiðan-
leik Biblíunnar.
2. VITNIÐ:
Dr. Ales heitinn Hrdlicka, forstöðu-
maður mannfræðideildar þjóðminja-
safnsins í Washington, sagði: „Það eru
aðeins til þrír frumstofnar eða kynflokk-
ar: Hvítir menn, gulbrúnir og svartir,
eða Kákasusstofninn, Mongólar og Negr-
ar. (Sbr. Human Biology and Racial Wel-
fare, 7. kap. bls. 166. Útg. Edmund V.
Gowdry, 1930.)
í World Almanac 1947, bls. 672, í kafl-
anum „Races of Mankind", er þetta haft
eftir dr. Hrdlicka: „Nú á dögum eru
kynstofnar mannkynsins taldir þrír:
Hvítir menn, gulbrúnir og svartir. Hvíti
kynstof ninn: M iðj arðarhaf sþ j óðimar,
Alpaþjóðimar og Norður-Evrópuþjóð-
irnar. Gulbrúni stofninn: Mongólar, Mal-
ajar og amerískir Indíánar. Þeir síðast
nefndu eru nú yfirleitt taldir eiga upp-
runa sinn í Norður-Asíu og þess vegna
af fornum mongólskum ættstofni. Sum-
ir af frumbyggjum Mið-Ameríku og vest-
urhluta Suður-Ameríku hefðu getað
komið frá Suðurhöfum.
Svartir menn eru: Afríku-Negrar,
Búskmenn og Ástralíu-Negrar.
3. VITNIÐ:
Samkvæmt skoðun A. C. Haddons,
þjóðfræðings og prófessors við háskól-
ann í Cambridge, má skipta mánnkyn-
inu í þrjá kynflokka — hrokkinhærða
menn, liðhærða og stríðhærða. Flestir
Ameríkumenn af evrópskum uppruna
eru liðhærðir."
Þannig kemur í Ijós, að þegar hinum
vísindalegu niðurstöðum er safnað sam-
an og þær rétt metnar, reynast þær sam-
hljóða þeim sannleika, sem alltaf hefur
verið til, óbreyttur, í Heilagri Ritningu.
★
Allir þessir þrír vitnisburðir eiga við
hina sömu þrjá kynstofna. Þeir, sem Bibl-
ían kallar niðja Sems, er sami kynstofn-
inn, sem dr. Hrdlicka kallar Kákasus-
stofninn eða hvíta menn og prófessor
Haddon liðhærða. Afkomendur Kams
eru þeir, sem Hrdlicka kallar svarta
menn eða Negra og prófessor Haddon
hrokkinhærða. Og afkomendur Jafets eru
þeir, sem Elrdlicka nefnir Mongóla eða
gulbrúna stofninn, en Haddon stríð-
hærða menn.
Á árunum eftir 1940 voru ritaðar
margar bækur og blaðagreinar, undir
pólitískum áhrifum, um kynstofna heims-
ins, auðsjáanlega til þess að þóknast
ákveðnum kynkvíslum eða stjórnmála-
flokkum, og áttu þetta að vera „vísinda-
legar“ ritsmíðar. En vísindalegar fullyrð-
ingar, sem ekki eru reistar á staðreynd-
um, eru verri en ekkert og verða aðeins
til þess að rugla þá, sem ófróðir eru og
hneyksla þá, sem meira vita. Það, sem
30 DAGRENNING