Dagrenning - 01.12.1958, Blaðsíða 36

Dagrenning - 01.12.1958, Blaðsíða 36
vandlega næsta vers í sama kapitula. Það tekur af öll tvímæli. „Út frá þeim kvísl- uðust þeir, sem byggja eylönd heiðingj- anna“ — I. Móseb. 10.5. Eins og ljóst má vera af framangreind- um tilvitnunum, voru það afkomendur Jafets, sem nefndir voru heiðingjarnir (Gentiles) og svo sem nöfnin segja til um, voru þeir allir Mongólar — af gulbrúna kynstofninum, og því má ekki rugla þeim saman við Kákasusmenn, hvíta kynstofn- inn, sem er kominn af sonurn Sems. Þeg- ar Biblían talar um heiðingjana sem kynstofn á hún ætíð við afkomendur Jaf- ets. Þegar orðið heiðingjar er notað um þjóðir, merkir það aðeins stjómarfars- lega heild. T. d. stendur skrifað um af- komendur Jósefs, að þeir verði fjöldi þjóða (gentiles) — I. Móseb. 48.lð. Orð- ið heiðingjar (gentiles) var upphaflega ekki notað til þess að tákna aðra kyn- flokka, en það er stundum notað í þeirri merkingu síðar, og þá sem háðsyrði, um þá, sem gengið höfðu í flokk heiðingja, með því að semja sig að siðurn þeirra og tilbiðja guði þeirra. Niðjar Kams. í I. Móseb. 10.6 segir svo: „Og synir Kams: Kús (Ethiopia), Mísarím (Egypta- land), Pút (Líbya) og Kanaan." Ef vér lesum þjóðatalið áfram sjáum vér að í 20. versinu stendur skrifað: „Þetta eru synir Kams, eftir kynþáttum þeirra, eftir tungum þeirra, samkvæmt löndum þeirra og þjóðerni." Niðjar Sems: Evrópumenn og Ameríkumenn. í 21. versi segir: „En Sem, ættfaðir allra Ebers sona, eldri bróðir Jafets, eign- aðist og sonu.“ Takið eftir orðalaginu: „ættfaðir allra Ebers sona.“ Eber (Heber) er rót orðsins „Hebrear", eins og kemur fram í 25. v. 10. kap. I. Móseb. og Lúk. 3.35. Eber og Heber er sama orðið. He- brei þýðir „frá Heber“, og þannig var Heber-ættkvíslin, sem kornin er frá Sem, valin til þess að vera farvegur fyrir þá blessun, sem fyrir Sem skyldi koma. Það, sem raunverulega er átt við í 21. versinu, er að Sem, ættfaðir hebreska kynstofns- ins, hafi verið valinn sem fyrsti viðtak- andi náðarinnar. Sá, sem veit endalokin þegar í upphafi, vissi að hjá þessum stofni gæti hann fundið þá trúmennsku, sem nauðsynleg er til þess að framkvæma eilífðaráform hans. Hann valdi „Hebrea", en það hefur einnig þá aukamerkingu, að það táknar „þann, sem hefnr farið vestur yfir Evfrat." Úr þessum stofni kallaði Drottinn Abraham og lofaði honum að hann skyldi margfalda kyn hans og niðjar hans skyldu eignast borgarhlið óvina sinna, bæði af kyni Jafets og Kams (I. Móseb. 22.17). Vér höfum fengið það staðfest, bæði með mannfræðirannsóknum og sjálfri sög- unni, að niðjar Sems, eða Hebrear (sem Gyðingar eru aðeins lítið brot af) er sami kynstofninn, sem allar vestrænar þjóðir, eða Kákasusstofninn, eru komn- ar af. í 10. kap. 28.—30. v. I. Móseb. segir svo: „Þetta eru synir Sems, eftir ættkvísl- um þeirra, eftir tungum þeirra, sam- kvæmt löndum þeirra, eftir þjóðerni þeirra.“ Hér er rétt að veita því athygli, að ekkert orð er sagt um það, að heiðingjar verði meðal afkomenda Sems. Niðurlag kapítulans er svona: „Þetta eru ættkvíslir Nóa sona, eftir ættartölum þeirra, samkvæmt þjóðerni þeirra; og frá þeim kvísluðust þjóðimar út um jörðina eftir flóðið." 34 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.