Dagrenning - 01.12.1958, Síða 38

Dagrenning - 01.12.1958, Síða 38
Eftir því sem þróttur líkamans þvarr, fór að setja að mér áköf hræðsluköst, áhyggjur og efa. Ég fór að kvíða fyrir því, hvað um mig yrði þegar ég hætti að prédika fyrir aldurs sakir. Ótti við sjúkdóma tók að ásækja mig. Ég var hrædd um að ég fengi krabba eða ein- hvern álíka voðalegan sjúkdóm. Ég var slæm í maga í mörg ár. Ég þjáðist af höfuðverk marga daga í einu og mér fannst eins og band væri reyrt utan um höfuðið á mér. En óttalegast af öllu var það, að djöfullinn fór að hvísla að mér röngum ásökunum gegn sjálfri mér og þröngva að mér hugsunum um hræði- lega fordæmingu. Asókn Satans. Árið 1949 kom ég aftur frá austur- ströndinni til Tulsa. Þá liafði ég undan- farið þjáðst af höfuðverk, vegna heila- brota um ákvörðun, sem ég bjóst við að þurfa að taka. Ég var í óvissu um fram- tíðina. Þegar ég kom heim, varð mér ljóst að þensluafl tauga minna var þrot- ið. Margra ára erfiði hafði veikt líkama minn meira en ég gerði mér grein fyrir. Þegar ég var sezt að heima hjá mér í Tulsa, urðu höfuðkvalirnar svo óbæri- legar, að ég gat ekki beðizt fyrir nerna stutta stund í einu, vegna líkamlegra þjáninga. Þegar ég var að biðjast fyrir, óraði mig ekki fyrir því, að ég mundi innan skarnms verða komin inn í „skuggadal dauðans". Ég vissi ekki, að ég ætti að litlum tíma liðnum eftir að standa aug- liit til auglitis við öfl annars heims, berj- ast við illa anda og lifa daga, sem væru „víti á jörðu“. Prestar komu heim til mín og báðu fyrir mér, og oft létti mér við það um stundar sakir, en á eftir varð þrýstingur- inn á höfuðið ennþá meiri. Hroðalegt andlegt myrkur fór að koma yfir mig. Efinn fór að ásækja mig og ég spurði: „Ó, Guð, heyrir þú ekki bænir mínar?“ Vegna þess að ég fékk ekki strax hugg- un, fór sá vondi að freista mín og sagði: „Þú finnur ekki náð í augum Guðs; ef svo væri, mundir þú fá lækningu strax.“ Sumarið 1949 voru margar nætur, sem mér kom ekki dúr á auga. Ég missti einnig matarlystina. Oft sá móðir mín mig brjótast um og bylta mér í rúminu og tárin streyma niður kinnar mínar. Satan kom aftur og sagði: „Ef þú treystir Guði, mundirðu fá lækningu, en þú trú- ir ekki og þess vegna ertu glötuð. Guð hefur ekki svarað bænum þínum. Þú ert glötuð sál.“ Ég var orðin svo mátt- farin, að mér var ekki unnt að verjast þessum ásóknum óvinarins, og brátt fannst mér Guð hafa yfirgefið mig. Loks kom sá voðalegi ótti, að ég mundi ekki lifa þetta af, og þá var ákveðið að flytja mig í sjúkrahús. Ég var hrædd við að deyja, en langaði þó ekki til að lifa. Móðir mín var hjá mér, og þegar ég kyssti hana að skilnaði, sagði ég: „Mamma, djöfullinn er að taka mig og fara með mig til vítis.“ Engin orð geta lýst því, sem ég varð að þola, eftir að ég var komin í samband við heim myrkurs- ins. Lost-aðgerðir. í sjúkrahúsinu voru reyndar við mig lost-aðgerðir með rafmagni, en mér batn- aði ekkert. Þessa daga reyndi ég kvalir fordæmdrar sálar. Ég heyrði hróp ann- arra sálna, sem voru glataðar, og rödd mín blandaðist kveinstöfum þeirra. Lik- ami minn var eins og að brenna upp, frá hvirfli til ilja. Hjúkrunarkonurnar reyndu að leggja ískalda bakstra á enni 36 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.