Dagrenning - 01.12.1958, Page 41

Dagrenning - 01.12.1958, Page 41
VICTOR ALBA: Kommúnisnimn í SuSur-Ameríku „Ástandið í Suður-Amcríku bendir ótvírætt til þess, að það sé ekki fá- tæktin, sem elur af sér kommúnismann, heldur getuleysi þeirra, sem vilja útrýma fátæktinni án þess að fórna fyrir það frelsi og réttlæti.“ í hinu ágæta riti upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna, „Problems of Com- munism“, birtist á s.l. hausti útdrátt- ur úr bók, sem þá var nýlega komin út, og er eftir Robert J. Alexander, hagfræðiprófessor við Rutgers-háskól- ann í New Jersey. Útdrátt þennan hafði gert spanskur blaðamaður að nafni Victor Alba, nú búsettur í Banda- ríkjunum og mjög kunnugur stjórn- málalífi í Suður-Ameríku. Bókarútdráttur þessi er hinn athygl- isverðasti og á erindi til allra, sem um stjórnmál hugsa. Dagrenning hefir því tekið sér það Bessaleyfi að þýða þessa grein úr „Problems of Communism" og fer hún hér á eftir. ★ „Fram að síðari heimsstyrjöldinni var Suður-Ameríka að mestu ókunnur og afræktur heimshluti, bæði á stjórnmála- sviðinu og að öðru leyti. Jafnvel Moskva með allar sínar gömlu heimsmálaflækj- ur lét sig þessi lönd litlu skipta. En eftir styrjöldina fóru að koma fram ótvíræð merki þess, að kommúnistar væru farnir að láta til sín taka í ríkj- um Suður-Ameríku. Óánægja og þjóð- félagslegir árekstrar hafa rutt jarðveg- inn fyrir áróður kommúnista í allt of mörgum þessara ríkja. í nýútkominni bók er ítarleg lýsing á þróun kommúnismans í Suður-Ame- ríku og þeim vandamálum, sem hann skapar þar. Bók þessi er eftir Robert J. Alexander, hagfræðiprófessor við Rut- gers-háskólann í New Jersey, en hann hefir varið mörgum árum til þess að kynna sér þróun málanna í þessum heimshluta. Þetta verk hans er ekki að- eins merkilegt heimildarrit um alþjóða- kommúnismann eins og hann er rekinn í þessum heimshluta, heldur er það einnig greinagott yfirlit um þau vanda- mál, sem þjóðir Suður-Ameríku eiga nú við að etja, en mjög lítið hefir verið skrifað um fram að þessu. Hinar skarplegu athuganir höfundar- ins munu leiðrétta nokkuð af þeim mis- skilningi um Suður-Ameríku, sem mjög er útbreiddur. Fyrst er þá sú almenna skoðun, að óánægja íbúanna í ríkjum Suður-Ameríku eigi, eins og annars DAGRENNING 39

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.